Fálkinn


Fálkinn - 20.01.1964, Qupperneq 31

Fálkinn - 20.01.1964, Qupperneq 31
Þegar forstjórar . . . Framhald af bls. 28. — Ertu ekki orðinn þreytt- ur i fótunum, Ragnar? — Nei nei, ég er á Dolcis- skóm, svarar hann. Þetta er nú meira puðið. Það var erfitt fyrsta daginn, en nú er það að lagast. Ég er að hugsa um að selja bara starfsfólkinu fyrir- tækið. Uppi á lofti er Rut Guð- mundsdóttir við afgreiðslu á kápum. Hún er systir Ragnars og eigandi fyrirtækisins með honum. Það kemur margt skrítið upp í verkföllum. Til dæmis segir hún okkur að þess séu mýmörg dæmi að kaup- menn hafi yfirborgað starfs- fólk sitt, greitt því mun meira kaup en taxtinn segir til. Og fái kröfur afgreiðslufólksins fram að ganga, þá mun það fá lægra kaup en áður. Samkvæmt taxta. í Kjörgarði er líf og fjör. Þar má segja að hver silki- húfan sé upp af annarri, það er að segja hver stórforstjór- inn við annan. Þarna er Bern- harð Laxdal klæðskerameistari á þönum kringum kúnnana og Kristján Friðriksson í Últíma lætur sig ekki muna um sporin. Við komum Örlygi Sigurðssyni í opna skjöldu. Hann er að af- greiða bleyjubuxur í Storkin- um og mælir ákaft með vör- unni. Hann er kvongaður eig- andanum, frú Unni Eiríksdótt- ur. Hann verður ofsakátur þegar hann sér okkur, segir frá Kæri Astró. Ég er fædd kl. 10.30 að kvöldi dags í Vestmannaeyjum. Hef verið í skóla og unnið í frysti- húsum á sumrin. Mig langar til að vita það helzta um ástar- mál mín og framtíðina. Hvern- ig er útlit mannsins, sem ég giftist? Þekki ég hann nú og hef ég ef til vill verið með hon- um? Hvenær giftist ég? Hvað mörg börn eignast ég? Hvar á ég að búa í framtíðinin? Hvern- ig verða fjármálin? Á ég ef til vill eftir að ferðast til út- landa? Beztu þakkir fyrirfram. Bjargey. Svar til Bjargeyjar. Geisli sjöunda húss stjörnu- spár þinnar fellur á fyrstu gráðu Vatnsberamerkisins. Það eru því allar líkur til þess að þú þekkir mannsefni þitt nú þegar, því yfirleitt þróast ásta- málin þannig hjá fólki með þessa afstöðu að langur kunn- því að hann hafi byrjað hér sem sendisveinn í gær, en hafi nú hækkað í tign og er orðinn innanbúðarmaður hjá konu sinni. Og hann sér fram á for- stjórastól ef þessu heldur áfram. — Byrjaði ekki Vilhjálmur Þór sem sendisveinn, segir hann og skellihlær svo bleyj- urnar þyrlast upp af borðinu, og þetta er hann orðinn. Svo bætir hann við í lægri tón: — Annars vona ég að verk- fallinu fari að ljúka svo ég geti hætt að vinna. Kristján í Últíma leikur við hvern sinn fingur, snarar krumpuðum jökkum af austan- fjallsbændum og Reykjavíkur- gæjum og steypir yfir þá splunkunýjum Últímafötum. Þetta eru eins og nýir menn og ljóma upp þegar þeir líta í spegilinn. Það er fljótlega gert út um kaupin. — Þeir eru komnir til að taka mynd af forstjórunum sem allt í einu eru farnir að vinna ærlegt handtak, gellur við í Ör- lygi- — Ég skal bara segja ykkur það, piltar, að ég hef alltaf unnið lengstan vinnudag hjá mínu fyrirtæki, svarar Kristján. Þó ég sé forstjóri. Svo býður Kristján upp á kaffi, þetta eru miklir höfð- ingjar og hafa gamansögur á hraðbergi, hreint ekki bangnir þó tímarnir séu svona erfiðir og ástandið ljótt. Niðri í Hafnarstræti er mikil umferð og ys og þys, beint á ingsskapur á sér stað áður en málin komast á það stig að verða gifting. Það eð geisli sjö- unda húss fellur í merki Vatns- berans eru allar líkur til þess að mannsefni þitt verði fætt undir því sólmerki eða á tíma- bilinu frá 21. jan. til 20. febr. Fólk, sem fætt er undir þess- um árstíma og þó einkum þeir, sem fæddir eru fjmstu dagana í merkinu hafa hvelft enni, allt að því kartöflunef og línur andlitsins mjög áberandi boga- dregnar. Þcir eru mjög félags- lyndir og hafa unun af tónlist og vísindalegri hugsun en eru þó venjulega meira gefnir fyrir að ræða um lnutina heldur en lesa sér til um eínið. Líklegasta giftingarár þitt verður um 22. aldursár þitt. Það eru allar líkur til þess að þú eignist ein sex til sjö börn og sveinbörn verða í meiri- hluta. Það eru ekki miklar líkur til móti Steindóri er verzlunin Gluggar h.f., stór og mikil og þar er margt um manninn og helzt eru það konur sem eru að fá sér efni í gardínur, þurfa margt að handfjalla, skoða, spekúlera og bera saman. Við afgreiðslu í þessari stóru búð er hins vegar aðeins einn mað- ur og hann þó ekki af verri endanum, sjálfur forstjórinn, Þorvaldur Ari Arason hæsta- réttarlögmaður með meiru. Heldur er hann þreytulegur þar sem hann stendur við eitt borð- ið og ber fram hvern strang- an á fætur öðrum fyrir virðu- lega frú í bænum. Hann lítur upp þegar við nálgumst og Runólfur hefur uppi myndavél- ina. — Hvað get ég gert fyrir ykkur annað en að brosa? Svo brosir hann sínu breið- asta brosi og sagðist hreint ekki kunna illa þessu nýja starfi sínu. — Það er bara verst hvað ég er vitlaus í verðinu á þessu, sagði hann. En ég skal segja ykkur það, að ég afgreiddi hvorki meira né minna en 80 afgreiðslur í gær — á 8 tímum! Og við spyrjum: — Og hvaða kaup fyndist þér réttlátt fyrir það? — Mikið kaup, svarar Þor- valdur Ari og flýtir sér að af- greiða næsta viðskiptavin. Hjá Agli Jacobsen í Austur- stræti er mikið um að vera þrátt fyrir verkfallið. Þar stendur fjallakempan og öræfa- hetjan Úlfar innan við búðar- borðið og selur nælonundirföt þess að þú eigir í miklum bú- staðaskiptum yfir ævina, held- ur verður búsett í heimahög- unum lengst af. Hins vegar gæti verið að þú eigir eftir að ferðast eitthvað, en það verða fremur stutt ferðalög. Það lítur hins vegar ekki eins vel út með efnahaginn hjá þér og peningana, því þrátt fyrir að þú kunnir að hafa tals- verðar tekjur eða maki þinn þá mun þér haldast mjög illa á fé, sakir ýmiskonar kostnað- ar, t. d. í sambandi við börnin, skemmt'anir og aldrei ættirðu að ieggja út í tvísýnu með fjár- muni með sxyndigróða fyrir augum. Þú æ-ttir einnig að gæta tilfinninga þinna og láta ekki skyndií hrif, reiði eða hrifningu leiða þig út í að framkvæma verknað, sem þú dauðsérð eftir síðar meir að hafa gert. Máninn í sjöunda húsi bend- ir til þess að þér mundi farnast vel í félagslífinu og þú og aðx'ir kvenna og annan flngerðan varning. Hann er glaður og reifur og segir að þetta sé bara gaman. Við spuiðum Egil bróð- ur hans hvernig Úlfar stæði sig. — Hann er bara efnilegur. Exx við gætum samt ti-úað að Úlfar óskaði sér upp í Öskju eða Ódáðahraun. Eitt mál á dagskrá Framhald af bls. 14. einhver verði hræddur, Kalli minn, spaugaði ég. — Þeir hirði sneið, sem eiga, anzaði hann í sama tón. — Jæja, þegið þið þá, ef þið ætlið að hlusta, sagði Grímur og hóf frásögn sína: — í sumar eru liðin elleíu ár síðan þetta gerðist. Ég var þá á síldarbát fyrir norðan. Við höfðum lítið aflað og vorum því leiðir á lífinu. Og einmitt þegar við vorum að byrja að vei’ða varir við síld bilaði vél- in í dallinum. Við leituðum hafnar í litlu sjávai-þoi-pi og þar var vélin athuguð. Hún reyndist mikið biluð og þurfti að fá stykki í hana að sunnan. Þetta var á föstudegi og útséð um það að ekki yi-ði hægt að fá stykkið og ljúka viðgei'ðinni fyrr en eftir miðja næstu viku. Við höfðum lítið við að vera skipvei'jarnir, sumir ui'ðu sér úti um bækur að lesa eða brennivín, nú ellegar eitthvað annað, eins og gengur. Framh. á bls. 37 mundu hafa mikla ánægju af störfum þínum í þágu þeirra. Júpíter verður í ellefta húsi allt næsta ár og bendir það til þess að þú eigir auðveldara með að afla þér vina og kunn- ingja heldur en að öði-u jöfnu. Ýmsar vonir þínar og óskir munu einnig rætast undir þess- um áhrifum. Satúrn nálgast nú hvirfillínu þína og verður í níunda og tí- unda húsi næstu ái’in. Það bend- ir til þess að þú eigir í nokki'- um erfiðleikum með að vinna þig í álit og fá viðui-kenningu fyrir vel unnin störf. Eldra fólk kann einnig að valda þér erfiðleikum. 31 FALKINN

x

Fálkinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.