Fálkinn - 20.01.1964, Side 32
IfiAMDAK
TUK
Þetta virðist vera á þann veg, að þér séuð frekar
kviklyndur en ákveðinn, virðist hafa nokkurn áhuga á
bókmenntum. Þér virðist vera nokkuð erilsamur maður
og notið tímann sjaldan til ónýtis. Þér virðist hafa ferð-
ast nokkuð utanlands. En það er eins og þér eigið erfitt
með að vera lengi á sama stað vegna hinna öru geðs-
sveifla yðar.
Þér vírðist nokkuð forvitinn maður en ég gæti trúað
að það tilheyrði frekar starfi yðar. Þér framkvæmið
oft hlutina um leið og þeir koma í huga yðar en hugsið
ekki um það verulega fyrr en eftir á.
Það virðast vera tvö verkefni sem liggja fyrir yður
nú á næstunni, yður munganga svona rétt sæmilega
mc-ð það fyrra en betur með síðara verkefnið.
Þér virðist umgangast nokkuð lávaxna frekar full-
orðna konu og ég gæti trúað að hún kæmi yður bráð-
lega á óvart.
9/~J**
Ég gæti trúað að þér ættuð eftir að búa utanlands
um 1—2ja ára skeið og þér farið sennilega fyrir næstu
áramót.
Þér virðist hneigjast nokkuð til trúmála en ég reikna
með að þér hafið of mikinn áhuga á dulrænum efnum. Þó
að yður þyki gaman að fylgjast með því efni.
Þér virðist finna stundum til þreytu í hægri fætinum,
aðallega. Þér virðist nokkuð mæðinn og fáið þá þunga
fyrir brjósiið, og eigið til með að fá eins og suðu fyrir
eyrun, er gæti stafað af þyngslum í höfðinu.
Svo vonast ég til að þér finnið eitthvað af sjálfum
yður í þessu bréfi.
Með kveðju
Ó. D.
— Jæja, nú erum við búin að tala nóg
um mig. Nú skulum við spjalla um tekjurn-
ar yðar.
HVAÐ GERIST í NÆSTU VIKU?
Hrútsmerhiö (21. marz—20. avríl).
Þessi vika mun verða yður með ýmsum hætti
ánæg.iuleg og ekki hvað sízt er við kemur um-
gengni yðar við vini og vandamenn. Helgin sem
í hönd fer verður ein sú ánægiulegasta i langan
tíma.
Nautsmerkið (21. avríl—21. maí).
Svo sem við sögðum um daginn væri það yður
fyrir beztu að fara gætiiega um þessar mundir
og ráðast ekki í neinar stórframkvæmdir nú sem
stendur heldur bíða átekta og s.iá hver.iu fram
vindur.
Tvíburamerkið (22. mai—21. iúní).
Þér ættuð að gera vður dagamun um næstu
helgi og vita hvort það mundi ekki bæta skapið.
Hætt er við að þér verðið fyrir töluverðri ágengni
af f.iölskyldunni en en þér skuluð taka því með ró.
Krabbamerkið (22. iúnl—22. iúlí).
Svo sem fyrir vika verður þessi m.iög róman-
tisk og þér ættuð að lyfta yður upp svo sem
frekast er kostur. Þér skuluð þó fara gætilega í
þeim efnum sem öðrum þvi allt er bezt með
fors.iá.
Ljðnsmerkið (23. iúli—23 áaúst).
Þér skuluð taka lífinu með ró næstu daga og
s.iá hvaða stefnu málin taka. Einkum á þetta við
um allt er lýtur að vinnustað. Laugardagurinn
getur orðið skemmtilegur.
Jómfrúarmerkið (2h. áaúst—23. sevt.).
Nú er um að gera að notfæra sér hinar heppi-
legu afstöður sem eru um bessar mundir. Óvíst
er að vita hvenær þær gefast aftur og þess vegna
er um að gera að notfæra sér þær.
Vogarskálamerkið (2h. sevt.—23. okt.).
Ýmisleg eru þau mál sem þarfnast úrlausnar
hjá yður um þessar mundir og þér ættuð að
koma þeim í örugga höfn áður en þér ráðist i
önnur. Miðvikudagurinn verður skemmtilegur.
Svorðdrekamerkið (2h. okt.—22. nóvJ.
Þér ættiið að tala minna en framkvæma þess
meira. Nú eru líka að ýmsu leyti heppilegar
afstöður til slíkra verka og þess vegna er um að
gera að notfæra sér bær.
Bogamannsmerkið (23. nóv.—21. des.).
Þér ættuð að gera meira af áætlunum og vinna
eftir þeim en þér hafið gert til bessa. Þetta mun
koma berlega í ljós áður en langt um líður.
Undirbúið framtíðina vel.
Steinaeitarmerkið (22. des.—20. ianúar).
Minnist þess að ráðast ekki í of mikið. Ljúkið
við eitt áður en ráðist er í annað og þá mun
yður ganga allt betur. Vikulokin kunna að verða
með nokkuð sérstökum hætti.
Vatnsberamerkið (21. janúar—18. febrúar).
Þér eigið sem fyrr að leggja alla áherzlu á
iafnvægið sem fyrri daginn og gæta þess vel að
sýna stillingu og hógværð. Þriðiudagurinn verður
skemmtilegur.
Fiskamerkið (19. febrúar—20. marz).
1 þessari viku skuluð þér gefa yður lausan
tauminn og gera það sem yður langar til. Verið
nú einu sinni þér sjlfur og látið aðra ekki hafa
of mikil áhrif á yður.
32
FALKINN