Fálkinn - 20.01.1964, Síða 35
KVENÞJOÐIN
Ritstjóri: Kristjana Steingrímsdóttir
húsmæðrakennari.
. Hárið á að bursta daglega
svo að það verði fallegt og silkimjúkt
Þar eð hárið fær næringu sína frá blóðinu, hefur það
mikla þýðingu að örfa daglega blóðrásina í hárssverðinum,
svo blóðið geti runnið óhindrað að hársrótunum.
Kröftug bursting á hárinu kvölds ög morguns. er því
nauðsynleg. Hárið á að bursta í allar áttir. Beygið höfuðið
niður, svo blóðið geti runnið betur fram.
Kröftug bursting dreifir líka hinni eðlilegu hárfitu jafnt
um hárið og gefur því failegan gljáa. Jafnframt burstast
úr hárinu ryk og það helzt því lengur hreint og lifandi.
Kröftug bursting á hárinu, allt þar til það hitnar, gerir
okkur hægara um vik að greiða það eins og okkur fellur
bezt og fer bezt. En það er skilyrði að burstarnir séu vel
hreinsaðir. Þá á að skola 1—2 í viku úr volgu salmiaks-
vatni og skolast á eftir úr köldu ediksvatni.
Eyrnahlífar 4 stk.
Hlý í vetrarkuldum
Efni: 25 cm af 120 cm breiðu skinnlíki. 25 cm af 90 cm breiðu
fóðri. Stíft í skyggnið. 2% cm breiðan hnapp.
Sníðið húfuna eftir mynsturteikningunni, gert er ráð fynr %
cm í saumfar. Þekið hnappinn með efni. Sníðið á ská lengju
12Vz cm langa og 2V2 cm breiða, saumið hana saman, búið til
lykkju. Saumið eyrnahlífarnar saman á röngunni, festið lykkj-
unni með í þá, sem á að vera hægra megin. Snyrtið sauminn,
snúið þeim við. „
Merkið fyrir miðju kollsins. að framan verðu og að aftan (Það
Framhald á bls. 39.
35
FALKINN