Fálkinn


Fálkinn - 05.04.1965, Blaðsíða 36

Fálkinn - 05.04.1965, Blaðsíða 36
HVAÐ GERIST ÞESSA VIKU HrúUirinn, 21. marz—20. apríl: Þessi vika verður án efa full af skemmti- legum atburðum. Nýjar hugmyndir sk.ióta upp kollinum, ok œttir þú að nota fyrri hluta vikunnar til að vinna að þeim, því að seinni hluta vikunnar ættir þú að nota til að skemmta þér. NautiÖ, 21. apríl—21. maí: Diarfar or frumleKar hugmyndir geta fært þér gull i mund, og einnig gert þig reynslunni rikari. Þú ættir því að grípa hvert tækifæri sem þér gefst. Nágrannar þínir munu líta til þín öfundarauga. Tvíburarnir, 22. maí—21. júní: Þú munt una þér vel í glöðum hópi vina þinna og kunningia, og þú ættir að taka vel eftir þeim málefnum, sem þar eru til umræðu, því að hver veit nema þú hafir gagn af þeim hugmyndum, sem þar koma fram síðar. Krábbinn, 22. júní—23. jútt: Þér mun veitast einhiver óvæntur heiður eða viðurkenning: þú skalt samt ekki láta það stiga þér til höfðus. Um helgina munu einnig verða líkur fyrir auknum tek.ium, þetta hefur allt m.iög góð áhrif á skaps- muni þína, og mun því helgin verða sér- lega ánæg.iuleg. Ljóniö, 2U. júlí—23. ágúst: Utanlandsferðir eru undir sérlega hag- stæðum afstöðum, og þar af leiðandi má búast við, að nokkuð margir taki sér ferð á hendur og fl.iúgi til útlanda, og eru viku- lokin alveg sérstaklega heppileg til að hef.ia slíkt ferðalag. Meyjan, 2í. ágúst—23. sevt.: F.iármálaviðskipti við aðra eru nú undir sérstökum afstöðum, og virðist svo sem þér b.ióðist tækifæri til að auka við eignir þín- ar eða að hlúa að þeim á einhvern hátt. Notaðu helgina til að taka þér hvíld. Voain, 2h. sept.—23. okt.: Þetta er sérlega heppilegur tími fyrir ógifta að ganga i hiónaband og fyrir þá giftu að bæta samkomulagið við makann. Helgin er tilvalin til að skemmta sér meðal vina og stofna til nýs kunningsskapar. Drelcinn, 2h. okt.—22. nóv.: Þú munt verða í góðu skapi þessa viku, er fólki þvi sérstök ánæg.ia að vera nálægt þér. Þú skalt einbeita þér að gera samstarfs- mönnum þínum til þægðar og vera Þeim hiálplegur. Bogmaöurinn, 23. nóv.—21. des.: Samkvæmislífið verður án efa mest áber- andi h.iá þér þessa vikuna og verður þér til ánæg.iu: sérstaklega verður þó helgin ánæg.iuleg. Þó munu heimilis- og f.iölskyldu- málin valda þér nokkrum áhygg.ium. Steingeitin, 22. des.—20. janúar: Þessa viku ættir Þú að nota til að hlúa að f.iölskyldu þinni og heimili. og seinni hluti vikunnar er sérlega hagstæður til þess að koma f.iármálum heimilisins á réttan grundvöll. Vatnsberinn, 21. janúar—19. febrúar: Þú munt umgangast ættingia þína og ná- granna meira en endranær: þú getur orð- ið þeim hiálplegur við eitt og annað, en varastu samt að blanda þér um of í persónu- leg mál þeirra, bví að það gæti valdið árekstrum. Fiskarnir, 20. febrúar—20. marz: Þú gætir orðið fyrir óvæntu happi í pen- ingamálunum: þú ættir því að nota tæki- færið og létta þér eitthvað upp. En samt sem áður ættirðu að reyna sem mest að skipuleggia fiármálin. LJTPRJDNAÐAR JACQARD DÖMUPEYSUR MEÐ LAUSUM KRABA ALLIR TÍZKULITIR PRJÓIUASTOFA \m\ ÞÓRÐARDÓTTIR ÁRIVKJLA 5 SÍMI 38172 36 FALKINN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.