Fálkinn - 24.05.1965, Blaðsíða 38
KYEl NÞJÖÐIl N
RITSTJÓHI: KRISTJANA STEIIVGHÍMSDÓTTIH
HREINSIÐ HÖRLNDIÐ VEL FYRIR VORIÐ
Þegar sólin fer að skína á vorin
koma ýmsir hörundsgallar í ljós,
sem þó er hægt að koma í veg
fyrir, ef hörundið er hreinsað
nógu vel.
Þvoið fyrst andlitið vel eða
hreinsið hörundið með hreinsi-
kremi. Að því loknu er farið í
gufubað með andlitið. Gufan
mýkir hið fína hörund í kringum
hörundsholurnar, svo hörundið
„andar“ betur, einnig opnast hol-
urnar betur, svo auðveldara reyn-
ist að fullhreinsa hörundið.
Ef hörundið er mjög þurrt, er
sjálfsagt að bera þunnt lag af
lanolinolíu á það, áður en farið
er í gufubaðið. Hin heita gufa
stuðlar að því að olían gengur
betur inn í húðina en ella, og ger-
ir því meira gagn en venjulega.
Ef hörundið er mjög feitt, er
1—2 msk. af kamferspritti sett út
i heita vatnið.
Að gufubaðinu loknu — á að
taka 5—10 mínútur — er húðin
þerruð vel og síðan er borin and-
litsgríma á sem valin er eftir því
hvernig húðin er.
1. Ef hörundið er þurrt er lanolin-
krem borið á áður en byrjað
er á gufubaðinu.
2. Andlitsgríman, sem valin er
eftir hörundsgerð, er borin jafnt
á andlit, háls og hnakka.
3. Meðan gríman þornar, er bezt
að liggja út af og slaka á öll-
um vöðvum. Leggið kompress-
ur yfir augun, vættar í köldu
tei eða andlitsvatni.
4. Þegar gríman hefur verið þveg-
in af, er hörundið vætt aftur
og aftur með ísköldu vatni. Þá
lokast andlitsholurnar og vöðv-
arnir styrkjast.
5. Hörundið þerrað vel, síðan
vætt með andlitsvatni og nær-
andi krem borið á.
Þurrt og eðlilegt hörund:
1 eggjarauða hrærð út með 1—2
msk. af möndluolíu,
1 eggjarauða hrærð út með 1
msk. af mýktu hunangi og 1 tsk.
af rjóma.
1 eggjarauða hrærð saman á-
samt 1 msk. af haframjöli og 1
msk. af möndluolíu.
Feitt hörund:
1 eggjahvíta þeytt dálítið ásamt
1 msk. af sítrónusafa eða tómat-
safa. Borið á hörundið oft, eftir
því sem hver yfirferð þornar.
Framh. á bls. 42.