Fálkinn - 26.07.1965, Side 5
REMUR mánuðum áður hafði frú Dixon — sem hún
þekkti aðeins lauslega — komið og hringt dyrabjöll-
unni hjá henni í mikilli geðshræringu. „Ég bið yður afsök-
unar, að ég skuli ryðjast inn til yðar á þennan hátt,“ hafði
hún sagt, „en ég veit, að þér þekkið forsetann vel, og ég á
ekki aðgang að mörgum vinum hans. Hann var rétt í þessu
að taka ákvörðun um að fara í einhverja ferð til Suðurríkj-
anna, en sú ferð verður hans bani. Þér verðið að fá hann til
að hætta við hana. Ég hef lengi séð svart ský yfir Hvíta
húsinu. Það er stöðugt að stækka, og nú er það byrjað að
hreyfast niður til Suðurríkjanna. Forsetinn verður myrtur
ef hann fer í þessa ferð.“
Kay reyndi að vera kurteis. En hún hafði ekki mikla trú
á þessum spádómi. „Ef svona nokkuð er ákveðið fyrirfram,“
sagði hún efins, „er víst ekki mikið við því að gera.“
„Jú, stundum er hægt að afstýra ógæfunni ef maður fær
vitneskju um hana nógu snemma,“ sagði Jeane áköf. „Þér
v e r ð i ð að vara hann við.“
Ungfrú Halle horfði vandræðalega á gest sinn. Hún hafði
heyrt, að Jeane væri gædd dulargáfum, en þóttist vita, að
hún væri ekki óskeikul. „Hvernig ætti ég að geta fært for-
setanum slík skilaboð?“ sagði hún. „Hvað myndi fólkið í
Hvita húsinu halda, ef ég kæmi með svona dularfulla spá-
sögn upp úr þurru?“
Jeane skildi tregðu hennar, en hélt áfram að sárbæna hana.
Loks lofaði Kay að gera allt sem í hennar valdi stæði. Jeane
létti við það, og hún hélt heim til sín heldur ánægðari en
hún hafði komið.
„Ég braut heilann um þetta vikum saman,“ sagði Kay Halle
síðar með djúpri eftirsjá, „en ég vissi, að það myndi ekkert
þýða að færa jafnhugrökkum manni og Kennedy forseta
skilaboð af þessari tegund. Hann hefði bara hlegið og látið
viðvörunina eins og vind um eyrun þjóta.“
Spddómurinn birtist í PARADE 1956.
Jeane Dixon hafði fyrst séð hið dökka ský dauðans yfir
Hvíta húsinu ellefu árum áður eða 1952. Þá hafði hún séð
í sýn ungan hávaxinn mann með blá augu og þykkt og
óstýrilátt brúnt hár. Hún heyrði innri rödd segja, að hann
væri demókrati og yrði kjörinn forseti árið 1960 og myndi
farast vofeiflega meðan hann væri við völd. Fjórum árum
síðar, sagði hún á fundi með fréttamönnum tímaritsins
Parade, að „bláeygur demókrati yrði kjörinn forseti árið
1960 og myrtur meðan hann væri við völd.“
Fréttamönnum brá í brún að heyra þessa afdráttarlausu
yfirlýsingu og spurðu hvort ekki væri betra að skrifa, að
hann „myndi deyja áður en embættistímabil hans væri út-
runnið.“
„Þið getið orðað það eins og ykkur sýnist,“ svaraði Jeane,
„en hann verður myrtur.“
Jeane á tali við frú Marguerite
Oswald. móður Lee Oswald, sem
ákcerður var fyrir morðið á Kenn-
edy forseta. Jeane reyndi árang-
urslaust að vara forsetann við ó-
gœfunni sem steðjaði að honum,
og nokkrum vikum áður en morðið
var framið sá hún bregða fyrir
nafni — tveggja atkvœða nafni
með fimm eða sex stöfum. „Annar
stafurinn var áreiðanlega S og sá
fyrsti annað hvort O eða Q. en ég
sá það ekki nógu greinilega."
FALKINN