Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 15
FVRRI
GREIN
ERLENDUR HARALDSSON litast um í Teheran og hefur blaða-
mennsku og efnisöflun fyrir blöð og sjónvarp að yfirvarpi, en
meginerindið er a3 ná sambandi vi3 Kúrda hinum megin vi3
landamœri íraks. Hann leggur ekki í a3 fara til Bagdad því a3
hann óttast a3 Arabar í írak séu ekki hrifnir af fer3um hans og
mundu ekki vanda honum kve3jurnar.
distan, hafði ég sloppið gegn-
um Bagdad með hjálp Kúrda
þar. En ýmislegt hafði
breytzt síðan. Fyrir örfáum
vikum var t. d. hringt til út-
gefanda þess í Þýzkalandi,
sem gefa mun í haust út bók
mína um Kúrda, sem útkom
hjá Skuggsjá fyrir síðustu
jól. Röddin, sem mælti á
bjagaða þýzku og lét ekki
nafns síns getið, skýrði útgef-
andanum frá því skemmstra
orða, að stæði einhver „ó-
hróður“ um írak í bók minni,
skyldi hann fara varlega og
hljóta allt annað en gott af.
Graichen, en svo heitir eig-
andi þessa fyrirtækis, varð
heldur hverft við þessa ó-
væntu ógnun, sem varð þó
til að auka áhuga hans fyrir
útgáfunni að mun og sann-
færa hann betur en áður, að
ég hafði farið réttum orðum
um eðli og þroskastig stjórn-
mála hins arabíska hluta
íraks.
Meðal annars af þessum
ástæðum taldi ég um of á-
hættusamt að reyna leiðina
um Bagdad. Og þá var vart
um annað að velja en Teher-
an, höfuðborg írans, sem
sumir nefna enn Persíu, en
það ríki á sem kunnugt er
löng landamæri að írakska
Kúrdistan.
Andi stjórnmálanna í ír-
an, þótt nokkuð einræðis-
kenndur sé, á samt lítið skylt
við glundroða þann og ribb-
aldaskap, sem tíðast hefur
ráðið lofum og lögum í írak
á síðustu árum.
Stjórnmálasamband Persa
og Araba er allt annað en
gott. Arabar, þar fremstur
Nasser, hafa nú um hríð
lialdið uppi hörðum áróðri á
móti íranskeisara og viðhaft
kröfur á þá lund, að svæði
það í íran við Persaflóa
(sem Arabar nefna nú Ar-
abaflóa), sem Persar nefna
Khuzestan, (en Arabar Ara-
bistan) og er að mestu byggt
Aröbum, sé arabískt land en
ekki persneskt. En það er
ólánlega við þetta svæði er,
að það er rétt fyrir sunnan
og vestan stærstu olíulinda-
svæði írans og þar er hafn-
arborg þeirra Abadan og
einhverjar mestu olíuhreins-
unarstöðvar heims. Við þetta
bætist svo gamall rígur milli
Persa og Araba vegna þess
að hinum fyrrnefndu þykir
Arabar hafa eyðilagt forna
menningu sína, er þeir réð-
ust inn í Persíu á 7. öld,
gerðu landið múhameðskt og
brenndu í stórum stíl pers-
nesk rit, eyðilögðu önnur
menningarverðmæti og svo
lágu eins og mara yfir land-
inu í fleiri aldir. Þetta hafa
Persar, sem lengstum hafa
staðið á hærra menningar-
stigi en Arabar, átt erfitt
með að fyrirgefa og hafa í
vaxandi mæli fundið til
þessa tjóns á síðari tímum
um leið og þeir hafa verið
að losna undan blæjufargani
og kreddum múhameðstrúar-
innar.
Mulla Mustafa Barzani
leiðtogi hinna íröksku
Kúrda, hafði gefið mér upp
nafn og pósthólf Kúrda, sem
er fulltrúi fraks-Kúrda þar,
ef ske kynni að ég þyrfti ein-
hvern tíma á aðstoð hans að
halda. Að auki þekkti ég svo
einn íraks-kúrdiskan stúdent
hér, sem ég vissi að hafði
náin tengsl við kúrdíska lýð-
ræðisflokkinn og eru þá öll
sambönd mín í Teheran upp-
talin.
A3 sœkja Kúrda
Ferðina hafði borið brátt
að, svo að ekki reyndist
tími til að hafa samband við
►