Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 32

Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 32
BOLTA buxurnar Húsmæður! 1001 eldhúsrúllan er framleidd sérstak lega fyrir notkun i eldhúsum ykkar og hjálpar ykkur við dagleg störf. getur verið að maðurinn sé að reyna að fá konuna tii að hætta að drekka, eða kohan sé að reyna að fá manninn tii þess að hætta að eitast við annað kven- fólk Barnið á að klastra sam- an hjónaband sem komið er í hundana. Margir kaupendur barna eru fólk sem hefur feng- ið afsvar hjá ættleiðingarskrif- stofum af því að þeim hefur ekki verið trúandi fyrir barni. Barnasalarnir spyrja ekki, og þeir vilja fá stórfé fyrir það einmitt að spyrja ekki. + SÆKTU BARNIÐ SJÁLF UR OG SPARAÐU PENINGA. Ameríska blaðakonan Gael Green Forst hefur kynnt sér þessi mál og hvorki sparað tíma né fyrirhöfn. 17. júní 1964 birti hún frásögn af því hvað hún sjálf hafði reynt er hún þóttist vera vanfær og ó- gift. Ralph Benson heitir lögfræð- ingur nokkur í Beverley Hills við Los Angeles. Hann er mað- ur ókvæntutr, hátt á fertugs aldri. Honum fellur vel við kon- ur. Hann vill fá 6—7000 dali ryrir barn sem flutt er kaup- anda að kostnaðarlausu tii New York, en slær af því nokkrum þúsundum dala ef barmií er sótt til Kaliforníu. Benson fær ekki börnin hjá hverjum sem er. Hann hefur sín sambönd. Einn af umboðs- mönnum hans er Betty Baker, gráhærð kona og aðlaðandi. Það var fyrir atbeina hennar sem blaðakonan komst í samband við Benson. Hún hafði haft samband við frú F, konu sem leggur sig fram við að hjálpa ógiftum mæðrum, og hún setti eftirfar- andi auglýsingu í Los Angeles Examiner: „Ógift kona sem á von á barni, er á fjórða mánuði, ósk- ar eftir dvöl á góðu heimili. Fús til að gæta barna fyrir 15 dali á viku.“ •tr HVERSU HJARTAGÓÐUR? Betty Baker gleypti þessa auglýsingu. Hún skrifaði frú F. þegar og spurði hvort hún hefði ekki heyrt um Benson lögfræðing sem sæi um ætt- leiðingu ungbarna. Benson með- höndiaði mæðurnar af einstöku göfuglyndi. Hún skyldi senda þessa stúlku til Benson. Það mundi borga sig fyrir hana, líka hvað fjárhaginn snerti. Nokkrum vikum seinna sendi frú F. ólétta unga stúlku til Betty Baker. Hún hét Margie. — Þessi kona var ég, segir blaðakonan. Betty Baker sagði henni í simtali að barnið mundi eiga öldungis einstæða sældardaga meðan það lifði. Öil börn sem Benson léti ættleiða færu til efnaðra foreldra. Hann hefði jafnvel milljónamæringa meðai viðskiptavina sinna. En þeir tækju auðvitað hvorki þeldökk eða austræn börn. Betty bauð mér i mat og eft- ir það ókum við tii Bensons. Hún þurfti að bíða um stund eftir Benson, og loks þegar hún fékk að sleppa inn spurði hann heldur ruddalega um sögu hennar. — Ég nota nafn föður mins, Green, síðan ég skildi við manninn í fyrra, sagði blaða- konan. — Veit maðurinn yðar að þér eigið von á barni, spurði hann. Hún hristi höfuðið og hann hallaði sér aftur á bak í stóln- um og starði upp í þakið. — Úr því að þér notið nafn föður yðar getið þér alveg eins sagt að þér séuð ógift. — Nei, ég er þá ekki að ljúga. Haldið þér i raun og veru ...? — Fyrst þér sögðuð það mundi ég halda að þér ættuð að vera ógift. Það gerir málið miklu einfaldara. Hafið þér áð- ur eignazt barn? — Já, ég á dóttur á þriðja ári. Viljið þér helzt að ég segi að ég hafi ekki eignazt barn áður. Hann hugsaði sig um. — Það liti ekki rétt vel út, hélt hún áfram. Þá héidi fólk að ég væri lauslát stúlka sem væri með einum í dag og öðrum á morgun. — Læknarnir á sjúkrahúsinu mundu sjá að þér hefðuð áður fætt barn, sagði hann. Þér skul- uð því bara segja að þér hafið eignazt barn áður. Svo ræddu þau um hvað fram undan væri að gera. Hún var föst á því að fyrst vildi hún ganga úr skugga um hvert barnið hennar ætti að fara. En hann vildi að hún útvegaði sér fyrst vinnu. Svo vék hann af- síðis með Betty Baker. Þegar hann kom aftur sagði hann: — Ég gef stúlkunum alltaf 1500 dali fyrir barnið. En þér verðið þá sjálfar að borga lækn- ishjálp og sængurlegu. Þér get- ið valið dýrasta sjúkrahúsið eða það ódýrasta eftir eigin vild, það kemur mér ekki við. Það sem afgangs verður eigið Framh. á bls. 42 NVJHNÍi frá OLTRfí+LfíSH Mascara geru augtinarin etns löng og silki- mjúk 02 'rpkast verður á knsið. ULTHA-uAJH gæð ir augnhárin mjúkrt lengd án þess að þau verði óþjálli. Hinn frábæri Taper-burstr lengir rau og gerii silkimjúk um leið og hann litar hvert hár á hlið og bak ULTRA-LASH storknar ekki, smitar, rákar, óhreinkar eða flagnar. H-nn er voð- felldur, vatnsfastui og lyktarlaus ... eng ar áhyggjur af gljáa. lausum eða hlykkjuð- um hárum. Þvæst uf á svipstundu með Mayu-utne Mascara uppleysara, í prem hríf- andi litbrigðum: Flauelssvörtum, eirbrúnu og myrkbláu. alltaf hið vandaðasta og bezta ti) augnfegrunar. Tóófe^ ^efíure Einangrunargler Framleitt einungis úr úrvals gleri. — 5 ára ábyrgð. Pantið tímanlega. KORKIDJAIXI H.F. Skúlagötu 57 — Símar 23200 32 fALWNN

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.