Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 31

Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 31
þess konar verzlun. En það eru engin lög til sem banna það að selja börn á milli ríkja. Nú er í undirbúningi að breyta þessu þvi að á hverju ári eru seld 45 þúsund börn í Banda- ríkjunum og málflutningsmenn, læknar, hjúkr- unarkonur og milliliðir raka saman fé á viðskipt- unum. Ráð sem fjallar um afbrotamál æskufólks og er undir stjórn Thomas Joseph Dodd öldunga- deildarmanns vill fá samþykkt lög þar sem svo er kveðið á að gjald fyrir útvegun barna til ætt- leiðingar ( að undanskilinni venjulegri þóknun fyrir lögfræðilega aðstoð) sé látið varða 5 ára fangelsi eða allt að 700 þúsund kr. sektum. * SAKAMENN VEKZLA MEÐ BÖRN. Rannsóknir sem laganefnd öldungadeildarinnar lét gera í þessu sambandi leiddi átakanlega at- burði í ljós. Gangverð á nýfæddum börnum í Bandaríkjunum var 1000—10 000 dalir. Og þessi viðskipti ná yfir allt landið, allt frá Kaliforníu til Florida, frá New York til annarra landa. — Ég heiti Katherine B. Oettinger. Ég er yfir- maður barnadeildarinnar í Félagsmálaráðuneyt- inu. Það var gráhærð kona sem talaði við full- trúa frá ráðinu. Frá 1953 hefur mín deild verið önnum kafin við að rannsaka svartamarkað á smábörnum. Upplýsingar þessarar rólyndu gömlu konu eru þessar: 1 Bandaríkjunum fæðast á hverju ári um 245 000 börn utan hjónabands. Árið 1962 voru yfir fimm þúsund mæður undir 15 ára aldri og yfir 50 þúsund undir 18 ára aldri. Þessar mæður sem enn eru börn sjálfar þarfnast verndar fyrir sig og börn sín. Árið 1962 voru 121 000 börn ætt- leidd í Bandaríkjunum, þar af voru 97 000 fædd utan hjónabands. Og af þessum 121 000 ættleið- ingum eru um 45 000 látnar fara fram án þess að opinberar ættleiðingarskrifstofur fái að koma ná- lægt, en þær leggja jafnan mikla vinnu í að at- huga móðurina og barnið og einnig foreldrana, sem við barninu eiga að taka. Þetta þýðir að 45 000 börn eru seld háu verði. Frú Oettingar heldur áfram: — Yfirvöld í Kaliforníu hafa látið fara fram athugun á svokölluðum óháðum ættleiðingum og komizt að þeirri niðurstöðu að verðið fyrir börnin er frá 3000 upp í 7500 dali. í Nevadaríki er starfandi vel skipulagður hringur sem selur börn sem fædd eru í Las Veg- as (Nevada) til Kaliforníu. Aðalmiðstöðin er í Los Angeles og verðið á börnunum er frá 1000 upp í 4000 dali. Aðalumboðsskrifstofan er hjá lögfræðingi nokkrum sem sviptur hefur verið rétt- indum til lögfræðistarfa. Lögfræðingurinn hafði í sinni þjónustu hóp af stúlkum sem reyndu að þefa uppi „framleiðend- ur“ og „kaupendur". Hringurinn saman stóð af 15 manns, þar á meðal læknum, lögfræðingum og samvizkulausum húsmæðrum. Dæmi: Barn frá Las Vegas fór fyrir 4000 dali til fósturföður sem setið hafði af sér fangelsisdóm fyrir ósiðsamlegt athæfi gagnvart börnum. + SÍMASKÆKJUR Á EFTIR. Maður nokkur í Carson City, sem áður hafði verið dæmdur fyrir fóstureyðingar hefur meðal annars rekið verzlun með börn með flugvélum. Stúlkur sem komnar voru svo langt á leið að fóstrinu varð ekki eytt voru sendar með sérstök- um leiguflugvélum til einkaflpgvallar nálægt spilavíti einu. Þar átti maðurinn mótel og stúlk- urnar dvöldust þar, unz þær voru búnar að fæða. En börnin voru seld. — Ef ég hefði getað lagt 3000 dali á borðið hefði ég getað haft með mér þaðan 18 klukkustunda gamla mannveru, sagði Theresa L. Heath. Hún er spæjari frá New York lögreglunni, og var send til Montreal til að kynna sér svartamarkað á börnum milli Kanada og Bandaríkjanna. Hún segir að ungbörn séu seld frá Montreal til New York á 2—3000 dali. Hvort sem maður lét orð falla um það að hann vildi ættleiða barn er hann var staddur hjá slátraranum, hárgreiðslukonunni eða lyfsalanum þá mátti heita víst að hann fengi þegar í stað upp gefið símanúmer einhvers barna- salans. Kanadísku barnasalarnir ráðleggja viðskipta- vinum sínum frá Bandaríkjunum til að láta skrá börnin sem sín eigin börn, fædd meðan móðirin dvaldist í Kanada. í New York hafði lögfræðingur samband við mann úr undirheimum borgarinnar. Sá maður hafði alltaf við hendina óléttar stúlkur sem hann baúð fram í viðskiptum sínum við lögfræðing- inn. Eftir að þær voru búnar að fæða voru þær svo látnar gegna störfum sem símaskækjur. ★ KEYPTI EIGIÐ BARN A ÞÚSUND DALI. Lögfræðingur nokkur í Washington seldi barn í gegnum síma. Hann þekkti ekki foreldrana, vissi bara að þau vildu verða sér úti um barn. Það kom hins vegar seinna í Ijós að barnið var heyrnar- laust. Lögfræðingurinn tók barnið til baka og sendi það svo til hinnar réttu móður sem „svikna VÖru“. Elizabeth Anglim, er hefur á hendi stjórn ætt- leiðingarskrifstofu í Buffaló í New York ríki, segir frá því er ,,framleiðandinn“ átti að kaupa aftur sína eigin „vöru“. — Hinn fjórða sept. 1963 átti ég tal við stúlku, sem hafði látið barn sitt af hendi við lögfræðing. Hann keypti barnið. En mánuði seinna vildi móð- irin fá barnið til baka. Hún hafði allan tímarn hvorki notið svefns né matar og ekkert gert nema hugsa um barnið. Hún fór til lögfræðingsins. Hann bað hana að hugsa líka um tilfinningar fósturfor- eldranna. En hún lét sig ekki, og þá vildi hann fá hjá henni 1000 dali. Það var upphæðin sem hann hafði fengið hjá foreldrunum fyrir barnið. Það var ekki fyrr en stjórnarvöldin gripu í taum- ana að hún fékk barn sitt aftur án þess að borga fyrir það. Lögfræðingurinn Charlton Blair varði sig á þennan hátt: — Svartamarkaður á börnum er orð sem fé- lagsmálafulltrúarnir hafa fundið upp. Ég hef á síðustu 30 árum annazt um 1000 ættleiðingar og er hreykinn af því. Ættleiðingarskrifstofan vill helzt gína yfir öllum börnum. Mig vill hún brjóta á bak aftur. Hann sagði enn fremur að foreldr- arnir hefðu greitt þau útgjöld sem móðirin hefði þurft að inna af hendi, og sjálfur hafði hann fengið 850 dali. 200 foreídrar væru á biðlista hjá sér. Börnin sagði hann að sér væru send frá lækn- um, og hann reyndi eftir megni að finna þeim hæfilegan stað. Ég mundi aldrei láta ljóshærð sænsk hjón fá barn frá Ítalíu, sagði hann til þess að sýna með hve mikilli umhyggju hann ynni þetta starf. Það er framboð og eftirspurn sem ræður verð- laginu — og biðtíminn. Foreldrarnir vilja ekki bíða. Um þetta segir Katherine Oettinger: — Það er alltof algengt að hjón sem eru að því komin að slíta samvistir kaupa sér barn. Það er ekki barnið sem þau eru að hugsa um fyrst og fremst. Þau eru að hugsa um sig sjálf. Þetta er síðasta tilraun til að bjarga hjónabandinu. Það ►

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.