Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 39

Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 39
GLEYMIÐ EKKI HRÁA SALATIML Berið saladið fram með hverri máltíð, þann stutta tíma, sem við höfum völ á fjölbreytni í grænmeti. Þegar við tölum um hrátt salat, eigum við við niðurrifið hrátt grænmeti og ávexti, borið fram í mismunandi salatsósum (mar- inadi). Sannar grænmetisætur nota t. d. aðeins sítrónusafa í stað ediks og hunang í stað sykurs í þessar salatsósur. Flestar grænmetistegundir og ávextir — hráir, niðursoðnir og þurrkaðir — eru góðir í salöt, bæði út af fyrir sig og blandað saman á ýmsan hátt og er hægt að breyta til í það óendanlega, sé ímyndunaraflinu gefinn laus taumur. Séu safamiklir ávextir not- aðir t. d. appelsínur eða rifin epli, er hægt að sleppa salatsósu. Hvaða hráefni sem notað er í salatið, þá verður það að vera óskemmt og ferskt, eins þarf að þvo og hreinsa vel fyrir notkun. Byrjið alltaf á því að útbúa salatsósuna (oft er hægt að geyma hana í marga daga í ísskápnum), svo grænmetið þurfi ekki að bíða niðurrifið. Þá verður það ljótt á litinn og ólystugt á að líta og C-vitaminið fer til spillis. Búið aldrei til meira í einu en sem ætla má að sé borðað hverju sinni og útbúið það eins seint og hægt er. Ef salat þarf að bíða, á ætíð að hylja það, þótt aðeins sé um stutta stund að ræða. Hér eru svo fyrst uppskriftir að nokkrum salatsósum og síðan fylgja nokkrar uppskriftir að salötum, en eins og áður er sagt, geta þau farið eftir því, hvað til er hverju sinni í búrinu. 8. SALATSÓSUR Rjómasósa: 1 dl súr rjómi 1 msk sítrónusafi 1 msk sykur Rjóminn linþeyttur, öðru blandað í. Súrmjólkursósa: 1 dl súrmjólk 1 tsk sykur eða hunang Hrært saman. Eggjasósa: 1 eggjarauða 1 tsk sykur 1 tsk sítrónusafi Hrist saman. Skyrsósa: 4 msk skyr 2—3msk rjómi salt, pipar 1 tsk sykur ögn af papriku Hrært vel saman. Frönsk salatsósa: 1 dl edik 3 dl matarolía 1% tsk salt 14 tsk pipar Vz tsk sykur Allt hrist saman. Getur geymzt um tíma á köldum stað. Hristist fyrir notkun. Edikssósa: 2 msk edik eða sítróna 2 msk. vatn 1 msk sykur salt, pipar Hrist saman. Sítrónusósa: Safi úr 1 sítrónu 1 msk sykur 1 msk vatn Hrært saman. Tómat-salatsósa: 14 dl tómatkraftur 14 dl matarolía 14 dl edik Hrist saman. Geymist. Tómat-gúrkusalat: 1 salathöfuð 2-3 tómatar Vz gúrka 2 msk rifinn ostur Frönsk salatsósa Salatið þvegið vel og þerrað, klippt niður, sett á fat. Tómat- arnir skornir í sneiðar, raðað of- an á salatið. Gúrkan skorin í bita, stráð ofan á ásamt ostin- um. Salatsósunni hellt yfir. Tómatsalat: 4 stórir tómatar 1 laukur tsk söxuð steinselja Frönsk salatsósa m/ sítrónusafa í stað ediks Tómatarnir skornir i smáa bita, laukurinn skorinn smátt. Sett saman í skál, steinselju stráð yfir. Salatsósunni hellt yfir. Gatt er að setja ögn af hvítlauk í þetta salat. Á vel við alla kjöt- rétti. Gulrótasalat: 2-3 gulrætur 2 epli 1-2 msk hunang 1 sítróna Gulræturnar hreinsaðar og rifn- ar, einnig epla-sítró ".usafa blandað hunangi hellt yfir. Útbúið hráa grænmetið rétt áður en það er borið fram. Raðið grænmctinu fallega á fat og bcrið sítrónu með. Skerið sítrónuna í litla bita, sem auðvclt er að pressa. Hvítkálssalat: 1. 300 g hvítkál 1 búnt hreðkur Tómatsalatsósa 2. 300 g hvítkál 1 epli sýrðar rauðrófur 6 msk majonnes Vz dl þeyttur rjómi nokkrir sítrónudropar 3. 300 g hvítkál 3 appelsínur sítrónu- eða rjómasósa 4. 300 g hvítkál 2 epli 2 msk rúsínur 2 gulrætur Frönsk olíusósa Framh. á bls. 41. FALKINN 39

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.