Fálkinn


Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 41

Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 41
Kvenþjóðíst Framh. af bls. 39. Skerið í öllum tilfellunum hvít- kálið í mjög fína strimla, rífið annað grænmeti og brytjið á- vextina. Blandið salatsósunum vel saman við. Látið bíða vel tilbirgt um stund. Hreðkusalat: 2 búnt hreðkur 3-4 soðnar, kaldar kartöflur Rjómasósa, krydduð með piparrót. Hreðkurnar skornar í sneiðar, kartöflur í ferkantaða bita. Blandað saman í skál, sósunni hrært saman við. Hún sér Framh. af bls. 6. Tákn sjáandans í lófanum. Þegar Jeane var átta ára gömul fór móðir hennar með hana til sígaunakonu sem hafði slegið niður tjöldum skammt frá heimili þeirra og fékkst við að spá í lófa. Hún leit í lófa barnsins og greip andann á lofti. „Hamingjan góða!“ sagði hún. „Annan eins lófa hef ég aldrei á ævi minni séð. Barnið er gætt merkilegri spádómsgáfu, hún hefur þau tákn í lófa sínum sem aðeins koma f ram einu sinni á hverjum þúsund árum. Sjáið þér Davíðsstjörnuna hérna og tvöföldu höfuðlínuna út frá henni? Og höfuðlínuna í hinum lófanum með hálfmán- ann við endann? Og stjörnuna hér sem geislar í allar áttir. Og « Hún hvarf inn í tjaldið sitt og kom aftur með kristalskúlu í rÖRUM v/lO VFlR MICOAufa. FRpKEM l • hendinni. „Þetta máttu eiga,“ sagði hún við Jeane. „Ógnleg- ar sýnir munu opinberast þér, því að þú berð öll tákn sjáand- ans í lófa þínum.“ Fyrst leit Jeane litla á krist- alskúluna sem hvert annað leikfang. Hún hafði gaman af að horfa í hana líkt og undra- kíki. Hún leit á það sem sjálf- sagðan hlut, að allir sæju sömu myndirnar í henni og hún sjálf. Þýzka barnfóstran henn- ar reyndi að skýra merkingu táknanna og sýnanna sem barn- ið lýsti, og frú Pinckert hvatti dóttur sína til að þroska þessa gáfu með sér. Brátt tóku vinir fjölskyldunnar að leita ráða hjá telpunni, og jafnvel ókunnugt fólk kom til hennar með vanda- mál sín. Hún var ekki nema níu ára þegar kona kom og spurði hana hvort hún ætti að hætta við leiklistarstarf sem gekk mjög illa, og setja upp gestaheimili í staðinn. Jeane leit í kristals- kúluna og sá hana „lýsast upp eins og flugeldum væri skotið innan í henni og úr þeim kæmu eintómir hundrað og þúsund dollara seðlar". Hún áleit, að þetta þýddi frægð og auðæfi, og hún sagði við konuna: „Þér skuluð hætta við að setja upp gestaheimili og halda áfram að leika.“ Síðar, er Marie Dressler var orðin heimsfræg kvikmynda- stjarna, sagði hún oft, að það væri eingöngu Jeane litlu Pinckert að þakka, að hún hefði ekki gefizt upp á leiklist- inni. En Jeane segir: „Hún hefði samt orðið fræg. Það voru for- lög hennar.“ Dauðatáknið yíir kvikmyndastj örnunni. í síðari heimsstyrjöldinni hitti Jeane aðra fræga leikkonu sem hún spáði fyrir. Hún var að láta leggja á sér hárið í Westmore hárgreiðslustófunni í Los Angeles þegar Charole Lombard kom inn. Jeane þekkti strax hina fögru kvik- myndastjörnu og eiginkonu Clarks Gable sem hún hafði séð ótal myndir af, og þegar þær voru kynntar tók hún hrifin í hönd hennar. En um leið fann hún viðvörun í loftinu. Hún gleymdi sér og sagði fljótmælt: „Ó, ungfrú Lombard, þér megið ekki fara neitt í flugvél næstu sex vikurnar!“ Ljóshærða leikstjarnan brosti og svaraði, að hún væri um það bil að leggja af stað í ferða- lag til að hvetja menn til kaupa á stríðsskuldabréfum. Jeane skildi vel, að hún gæti ekki hætt við þá ferð, en lagði ríkt á við hana að fara aðeins með bílum og lestum meðan „hættutímabilið stæði yfir.“ Hárgreiðslukonan sagði Jeane seinna, að eftir að hún var farin út hefði ungfrú Lombard varp- að hlutkesti um hvort hún ætti að fylgja ráðlegginguni eða ekki. Útkoman varð sú, að hún ætti e k k i að gera það. Og nokkrum dögum síðar fórst hin fagra Caole Lombard í flug- slysi á leið til miðvesturríkj- anna. Jeane var spurð hvernig hún hefði skynjað hinn yfirvofandi háska. „Þegar ég snerti hönd hennar,“ svaraði hún hugsi, „sá ég dauðatáknið yfir henni. Það var hátt fyrir ofan jörðina. Ég sá líf á jörðinni kringum hana, svo að ég vissi, að hún myndi geta forðazt hættuna, ef hún færi ekkert í flugvél. Og ég heyrði innri rödd segja: „Sex vikur“. Ég heyri oft þessa rödd innra með mér, og ég fer alltaf eftir því sem hún segir. Eins og hver önnur guðsgjöf. Spádómsgáfa Jeane Dixon er ekki bundin við kristalskúlu eða handsnertingu. Stundum sér hún sýnir, oft þarf hún ekki annað en snerta fingur- góma einhverrar manneskju til að vita hvaða framtíð bíður hennar, stundum getur hún rakið bæði fortíð og framtíð fólks ef hún fær að vita fæð- ingardag þess. Oftast notar hún þó kristalskúluna. En engu treystir hún sjálf eins vel og sýnum sem hún sér án þess að hafa nokkuð reynt til þess. „Þær eru eins ólíkar mynd- unum í kristalskúlunni minni og dagurinn nóttinni,“ segir Jeane. „Þegar sýnin byrjar að mótast breytist allt í kringum mig, meira að segja loftið sjálft. Ég stend einsömul og horfi of- an af hærra sviði, og ekkert veraldlegt getur snert mig á þeim augnablikum." Jeane er kaþólskrar trúar og fjarska guðrækin. Hún sækir kirkju á hverjum morgni og hefur unnið mikið að alls kon- ar góðgerðastarfsemi. Hún lif- ir einföldu og óbrotnu lífi, smakkar hvorki áfengi né tó- bak og sárasjaldan kjöt. Að hennar áliti samræmist spá- dómsgáfan trúnni fullkomlega og er eins og hver önnur guðs- gjöf. „Guð hefur gefið einum fagra söngrödd," segir hún, „öðrum dásamlegt minni, þriðja listræna sköpunargáfu, fjórða íþróttahæfileika, o. s. frv. Mér hefur hann gefið sýnirnar mín- HVERFISGOTL 16 SÍMI 2-1355 ar. Ég hef aldrei haft neinn hagnað af þeim og aldrei unnið neinum mein með þeim. Ég lít á dulargáfu mína sem opinber- un um náð Guðs, og ég reyni að nota hana í þágu meðbræðra minna.“ FRAMHALD f NÆSTA BLAÐI þar segir m. a. frá því hvernig mynd sem Jeane Dixon sá í kristalskúlu sinni bjargaði lífi eiginmanns hennar. Einnig samræðum hennar við Franklin D. Roosevelt og spásögnum hennar um kommúniskt Kina, sundurlimun Indlands, morðið á Gandhi og fleiri heimsvið- burði. • Angelita Framh. af bls. 37. Rauði Krossinn í Ameríku, Þýzkalandi og á Ítalíu gerði það sem í hans valdi stóð, en án árangurs. Blóðbaðið frá því árið 1944 hafði máð öll spor. ítalska sjónvarpið gekk einnig í lið með Heyes, með þvi að senda út þátt um leitina að Angelítu. Og þar með kunni öll Ítalía söguna. Þrír ítalskir söngvarar, „Los Marcellos Feri- al“, gerðu lag og texta um An- gelítu og platan sló öll met, hvað sölu snerti. íbúarnir , Anzio sýndu Hay- es þakklæti sitt, þegar þeir buðu honum og fjölskyldu hans til að dvelja í sumarleyfi sínu þar í þorpinu. Það v->ru ógleym* anlegir dagar fyrir Hayes, — í þorpinu, sem gerbreytti lífi hans. Nú hefur hann gefið upp von* ina um að finna foreldra Angel* ítu. En hann mun aldrei gleyma litlu stúlkunni með svörtu aug- un og skollita hárið. FALKINN 41

x

Fálkinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fálkinn
https://timarit.is/publication/351

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.