Fálkinn - 26.07.1965, Blaðsíða 26
Fl5vröSLJÓ^NÍl~"«^
BEMEDEKT VIGGÓSSOM SKRIFAR FYRIR IJNGA FÓLKID
RÁÐSKONAN á grund
Alfa hefur í hyggju að segja starfi sínu
lausu, en húsbóndinn reynir að telja
henni hughvarf og beitir bæði mælsku
og handayfirleggingum.
íslendingar eru miklir leiklistarunnendur, ef dæma má af
fjölda leikhúsgesta í höfuðborginni. Unga fólkið hefur frekar
lítið látið á sér kræla í þessum efnum. Um tíma var þó starf-
andi í Tjarnarbæ LEIKHÚS ÆSKUNNAR, en hugmynd af frek-
ari starfsemi þessa félags virðist vera komið í líkkistuna. Tölu-
vert er um það, að skólar, bæði í Reykjavík og á landsbyggð-
inni, setji á svið stutta leikþætti og sýni þá síðan á skemmt-
unum í viðkomandi skóla.
í byrjun febrúar flutti Húsmæðraskólinn að Varmalandi,
Borgarfirði, kafla úr leikritinu „Ráðskonan á Grund“. Til að
tengja saman atriðin las Guðrún Ásgeirsdóttir það, sem ekki
var sýnt á sviðinu. Eins og gefur að skilja, voru allir leikararnir
kvenkyns og var þeim, sem túlka áttu karlhlutverkin töluverð-
ur vandi á höndum. M. a. þurfti Sigríður Teitsdóttir sem hús-
bóndinn á Grund að totta pípu í einu atriðinu. Leikritið var
sett upp í skólastofu, en áhorfendur sátu frammi á gangi og
nutu sýningarinnar, sem stóð yfir í um 30 min. Stúlkurnar
Alfa, ráðskonuefnið, sækir um stöðuna hjá bónd-
anum á Grund.
Ráðskonan hefur ákveðið að fresta brottför sinni um óá-
kveðinn tíma og þau endurnýja ráðninguna í heitum
faðmlögum.
höfðu æft leikinn af miklum áhuga undir tilsögn eins
kennarans og hvað búningum viðkemur, voru þeir fengn-
ir að láni hjá nágrönnunum. Á frumsýningunni var boðið
piltum úr Samvinnuskólanum Bifröst og skemmtu gestirnir
sér konunglega. Leiksýningin var síðan endurtekin í april
sl., en þá komu í heimsókn piltarnir úr Bændaskólanum,
Hvanneyri..
Kennslutíminn í skólanum stendur yfir frá 15. sept. til
15. júní eða nánar tiltekið 9 mánuði. Síðan kemur fæðing-
in — afsakið prófin, og ef allt gengur að óskum, þá eiga
þessar verðandi húsfreyjur að geta soðið kaffi og brennt
steikina til kaldra kola hjálparlaust, þegar þær koma heim.
Félagslíf er töluvert í skólanum; t. d. eru kvöldvökur í
hverjum mánuði og þá spreyta stúlkurnar sig í spurninga-
keppni eða að þær taka lagið, en jafnan ríkir skemmti-
leg stemning á þessum kvöldum.
Mikið er hlustað á útvarp í heimavistinni og vinsælustu
þættirnir sl. vetur voru þáttur Svavars Gests, Á SVÖRTU
28 FÁLKINN