Fréttablaðið - 05.10.2009, Síða 2

Fréttablaðið - 05.10.2009, Síða 2
2 5. október 2009 MÁNUDAGUR ERLENT Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, er úr gyðingafjöl- skyldu sem snerist til íslam þegar hann var fjögurra ára gamall. Þetta var fullyrt í breska blaðinu The Daily Telegr- aph í gær. Blaðamenn byggja fullyrð- ingu sína meðal annars á athug- un sem þeir gerðu á ljósmynd sem tekin var í for- setakosningun- um þar í landi í fyrra. Á myndinni heldur forset- inn vegabréfi sínu galopnu og sé í það rýnt má sjá að ættarnafn hans var eitt sinn Sabourjian, en það er gyðinganafn og þýðir vef- ari. Forsetinn hefur margsinnis lýst yfir andúð sinni á gyðingum, meðal annars sagt að Ísrael ætti að afmá af landakorti auk þess sem hann hefur dregið í efa að helförin hafi átt sér stað. - kdk Auður Capital veitir fjárfestingaþjónustu með áherslu á gagnsæi og áhættumeðvitund. Við getum séð um séreignarsparnaðinn þinn Velkomin á opna kynningu til okkar mánudaginn 5. okt. kl. 17:15, Borgartúni 29, 3. hæð. Auður fyrir þig Eignastýring - Fjárfestingar - Fyrirtækjaráðgjöf - Séreignarsparnaður audur.is - 585 6500 VIRKJANIR Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra hefur ritað meðmælabréf fyrir HS Orku og Orkuveitu Reykjavíkur til erlendra fjárfesta. Bréf af þessu tagi eru gjarnan nefnd ástarbréf og er ætlað að liðka til fyrir fjár- festingum hérlendis. Steingrímur staðfestir þetta en vill að öðru leyti lítið tjá sig um efni bréfanna. Ráðherra segir eðlilegt að aðstoða við fjármögnun við þær aðstæður sem nú eru uppi. Fjár- málamarkaður sé í frosti og því sé eðlilegt að liðka fyrir. „Það stend- ur allt sem við höfum sagt að við styðjum og greiðum götu þeirra framkvæmda sem ákveðnar höfðu verið áður en við komum í ríkis- stjórn. Þá erum við áhugasöm um að skoða ný verkefni,“ segir Stein- grímur. Sú ákvörðun Svandísar Svav- arsdóttur að fella úr gildi úrskurð Skipulagsstofnunar um að fram- kvæmdir tengdar álverinu í Helgu- vík þurfi ekki að fara í sameigin- legt umhverfismat hefur verið nokkuð gagnrýnd, ekki síst af full- trúum atvinnulífsins. Hafa þeir sakað ráðherra um að bregða fæti fyrir verkefnið og það stangist á við stöðugleikasáttmálann. Steingrímur segir að menn ættu frekar að huga að fjármögnuninni. „Vandamálið hefur fyrst og fremst verið að fjármögnun er í frosti. Tafir á verkefninu er ekki neinu öðru um að kenna.“ Hann segir umhverfisráðherra einfaldlega hafa heimilað frekari skoðun málsins og óskað eftir frek- ari gögnum. Engin efnisleg afstaða sé tekin til málsins og ekki ætti að taka langan tíma til að skoða málið, kannski mánuð. Aðrar ástæður valdi töfum; það vanti upp á fjármögn- un bæði virkjun- ar og álvers. Samkvæmt stöðugleika- sáttmálanum á ýmsum áföngum að hafa verið náð 1. nóvember, stýrivextir komnir í eins stafs tölu, losað hafi verið um gjaldeyrishömlur og hindrunum í vegi álvers í Helguvík hrint úr vegi, svo eitthvað sé nefnt. Steingrímur segir ýmislegt hafa gengið eftir sem samið var um í sáttmálanum. Ákveðnir hlutir hafi tafist, svo sem vaxtalækkun, vegna Icesave. „Ég held að það væri mikið glapræði að gefa sér fyrir- fram að menn væru betur settir með því að segja upp kjarasamn- ingum eða auka á óstöðugleikann með því að stefna því mikilvæga samstarfi sem náðist á milli ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumark- aðar í hættu.“ kolbeinn@frettabladid.is Skrifar ástarbréf fyrir orkufyrirtækin Steingrímur J. Sigfússon hefur skrifað meðmælabréf fyrir orkufyrirtæki til erlendra fjárfesta vegna stóriðju á suðvesturhorni. Fjármálaráðherra segir fjár- mögnun standa í vegi framkvæmda en ekki ákvörðun umhverfisráðherra. FRAMKVÆMDIR VIÐ HELGUVÍK Fjármálaráðherra hefur liðkað fyrir fjármögnun álvers við Helguvík og virkjana því tengdu. Hann segir þó nokkuð skorta upp á að fjármögnun sé lokið. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON MENNTAMÁL Bæði Ólafur Stefánsson handknatt- leiksmaður og Þorvaldur Þorsteinsson, rithöfund- ur og myndlistarmaður, hafa ákveðið að vera ekki í hópi eigenda nýs grunnskóla sem á að vera í hús- næði gömlu Heilsuverndarstöðvarinnar við Baróns- stíg. „Þetta var enginn hvellur,“ segir Þorvaldur og útskýrir að vera Ólafs í Þýskalandi, þar sem hann leikur handbolta, hafi ráðið því að aðkoma hans yrði fremur lítil. Þorvaldur sjálfur segist svo vilja halda sig við ritstörf, það sé hans heimavöllur, en hann sé þess fullviss að þær Jenný Guðrún Jónsdóttir kenn- ari og Edda Huld Sigurðardóttir, fyrrverandi skóla- stjóri Ísaksskóla, muni sjá til þess að skólinn verði til fyrirmyndar en þau fjögur hafa staðið að undir- búningi skólans sem fengið hefur nafnið Mennta- skólinn. Þorvaldur útbjó námskrá fyrir skólann og segist hann vilja fá að fylgjast með því starfi sem þar fer fram og veita liðsinni þótt hann komi ekki að honum sem eigandi eins og fyrst stóð til. Skólinn átti einnig upphaflega að taka til starfa í haust en enn er ekki búið að afgreiða umsókn hans úr menntamálaráðu- neytinu. „Hvort sem skólinn tekur til starfa um ára- mót eða næsta haust þá verður þar gott starf,“ segir Þorvaldur. Ekki náðist í Ólaf, Eddu eða Jennýju við vinnslu fréttarinnar. - kdk Nýi skólinn í gömlu Heilsuverndarstöðinni enn í bið: Ólafur og Þorvaldur úr skólastarfi AÐSTANDENDUR SKÓLANS Edda Huld, Þorvaldur og Jenný Guðrún. Á myndina vantar Ólaf. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Er enginn á vakt til að fanga skúrkana? „Við erum allavega alltaf á vaktinni.“ Snæbjörn Steingrímsson, fram- kvæmdastjóri SMÁÍS, óttast að ef ekkert verði að gert haldi netþrjótar áfram að stela Fangavaktinni. MAHMOUD AHMADINEJAD Telegraph rýnir í vegabréf: Forseti Írans af gyðingaættum SIGURVEGARI George Papandreou verður þriðji ættliðurinn í forsetastóli í Grikklandi. Faðir hans, Andreas, og afi og alnafni voru báðir forsætisráðherrar. NORDICPHOTOS/AFP GRIKKLAND Pasok, flokkur sósí- alista í Grikklandi, vann sigur í kosningum í landinu í gær. Costas Karamanlis forsætisráðherra viðurkenndi ósigur sinn og óskaði George Papandreou til hamingju með sigurinn. Karamanlis boðaði til kosn- inga á miðju kjörtímabili með það fyrir augum að sækja sér nýtt umboð til að kljást við efnahags- málin. Það mistókst og þegar um helmingur atkvæða hafði verið talinn í gær hafði Pasok fengið ríflega þau 43 prósent atkvæða sem nauðsynleg eru til að komast í meirihluta. Flokkurinn hefur verið í andstöðu í fimm ár. Nýtt lýðræði, flokkur Karamanlis, hlaut um 35 prósent atkvæða. - kóp Stjórnarskipti í Grikklandi: Sósíalistar unnu kosningar BÖRN Greiðslur til foreldra á Akureyri vegna þjónustu dag- mæðra verða skertar. Skóla- nefnd bæjarins segir að greiðsl- ur vegna þjónustu dagforeldra stefni í tíu milljónir fram úr áætlun. Því miður sé ekki svig- rúm til annars en að stytta niður- greiddan þjónustutíma. Eftir 15. nóvember fá foreldr- ar því aðeins niðurgreidda að hámarki sjö klukkutíma vistun daglega í stað átta tíma nú. Þá verður ekki lengur niðurgreitt fyrir börn hjóna og sambúðar- fólks fyrr en börnin eru orðin eins árs í stað níu mánaða eins og verið hefur. - gar Skólanefnd Akureyrar: Skerða greiðslu fyrir dagmóður Reyndi að stela bíl Lögreglan í Reykjanesbæ stöðvaði góðkunningja sinn þar sem hann var að reyna að stela bíl aðfaranótt sunnudags. Maðurinn var búinn að rífa víra og fleira undan mælaborði bílsins þegar lögreglan kom að. Mað- urinn gisti fangageymslur og var síðan yfirheyrður. LÖGREGLUMÁL FJÁRMÁL Coca Cola á Norðurlönd- um hótaði Kaupþingi því að svipta Vífilfelli átöppunarleyfi fengi Þor- steinn M. Jónsson ekki að halda fyrirtækinu áfram og gera það þar með nær verðlaust. Þetta kom fram í RÚV í gærkvöldi. Í þættinum sagði einnig að heildarskuldir félaga Þorsteins væru um 13 milljarðar. Nýja Kaupþing hefði þó ekki getað gengið að Vífilfelli vegna skulda Þorsteins. Finnur Sveinbjörnsson, banka- stjóri Nýja Kaupþings, staðfesti að hann hefði fundið fyrir þrýst- ingi frá Coca Cola vegna málsins. Málinu væri þó ekki lokið. - kdk Mega ekki ganga að veðum: Coca Cola þrýsti á Kaupþing LÖGREGLUMÁL Áverkar manns- ins sem var stunginn og laminn á Spítalastíg í Reykjavík aðfaranótt sunnudags voru ekki alvarlegir. Hann fékk að fara heim á sunnu- dagsmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu réðust fjórir menn á manninn í íbúð á Spítalastíg um þrjú leytið aðfara- nótt sunnudags. Hann var bæði stunginn og laminn. Að sögn lög- reglu er ástæða árásarinnar óljós. Sex manns voru í íbúðinni þegar maðurinn var stunginn. Hinir meintu árásarmenn voru allir fjór- ir handteknir seinni partinn í gær. Þrír voru saman í bíl á Höfðabakka og sá fjórði fannst annars stað- ar skömmu síðar. Allir mennirnir, fórnarlambið og ofbeldismennirnir, eru af erlendu bergi brotnir. Þeir voru í annarlegu ástandi og voru látnir sofa úr sér áður en hægt var að yfirheyra þá. Þeir munu allir hafa komið við sögu lögreglu áður. Lögregla rannsakar málið áfram. Fjórir karlmenn í annarlegu ástandi taldir hafa ráðist á einn og náðust síðar: Erlendur maður stunginn og laminn í íbúð á Spítalastíg ÁRÁS Á SPÍTALASTÍG Fjórir menn stungu og lömdu mann í íbúð á Spítalastíg. SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.