Fréttablaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 16
16 5. október 2009 MÁNUDAGUR
timamot@frettabladid.is
MERKISATBURÐIR
1143 Konungsríkið León viður-
kennir sjálfstæði Portú-
gals.
1568 Vilhjálmur þögli ræðst
inn í suðausturhluta Hol-
lands.
1615 Spánverjavígin. Hópur
baskneskra hvalveiði-
manna er drepinn við
Skaganaust yst á Dýrafirði.
1897 Barnablaðið Æskan hefur
göngu sína.
1910 Fyrsta lýðveldið stofnað
í Portúgal. Emmanúel 2.
konungur landsins flýr til
Englands.
1946 Alþingi samþykkir að veita
Bandaríkjunum afnot
af landi á Miðnesheiði.
Samningurinn veldur
miklum deilum.
1946 Melaskóli hefur starfsemi.
Þennan dag fyrir 20
árum hlaut Dalai
Lama friðarverðlaun
Nóbels.
Dalai Lama voru
valdamestu stjórn-
málaleiðtogar Tíbet frá
því á sautjándu öld
fram til ársins 1951
er Kínverjar hertóku
Tíbet. Dalai Lama er
heitið sem einn að-
alleiðtogi lamasiðar,
helstu gerðar búdd-
isma í Tíbet, ber. Nú-
verandi Dalai Lama
heitir í raun Tenzin Gy-
atso. Hann fæddist 6.
júlí 1935 og er sagður
fjórtánda endurholdgun
Dalai Lama, andlegs
leiðtoga Tíbeta. Hann
hefur verið í útlegð frá
heimalandi sínu frá
árinu 1959 og hefur
verið búsettur á Ind-
landi síðan hann flúði
þangað sama ár. Friðar-
verðlaun Nóbels hlaut
hann fyrir að stuðla að
friðsamlegri baráttu Tí-
beta gegn hernámi
Kína á landi þeirra, en
Dalai Lama hefur ávallt
neitað að beita ofbeldi
í baráttunni fyrir bætt-
um hag landa sinna og
frelsun Tíbet.
ÞETTA GERÐIST: 5. OKTÓBER 1989
Dalai Lama hlýtur Nóbelsverðlaun
DANIEL BALDWIN FÆDDIST
ÞENNAN DAG 1960.
„Þegar fólk biður mig um
að líta vel út fyrir sig í
mynd spyr ég hvers vegna
það sé ekki tilbúið að borga
tveimur milljónum dollara
meira í laun og ráða frek-
ar Alec eða Billy. Ef það vill
mig í hlutverkið þá fær það
bara mig eins og ég er.“
Daniel Baldwin er næstelstur
Baldwin-bræðranna en þeir
hafa allir lagt leiklistina fyrir
sig. Hann hefur leikið í fjölda
mynda og leikstýrt nokkrum.
Förum aðeins aftur í tímann í huganum.
Kannski um svona tíu ár. Það er sumar,
raki í lofti og megn landalykt, sjáum
fyrir okkur illa þefjandi rútu, unglinga
á þykkbotna skóm og á leið á sveitaball.
Hafi ferðalagið í huganum tekist vel til
líður ábyggilega ekki á löngu þar til þú
færð lag með sunnlensku sveitaballa-
hljómsveitinni Skítamórall á heilann.
Hljómsveitin Skítamórall var vafa-
laust allra mest spilaða hljómsveit á
seinni hluta tíunda áratugarins en hún
ætlar að fagna tuttugu ára starfsaf-
mæli sínu á skemmtistaðnum Rúbín í
Öskjuhlíð á fimmtudaginn næstkom-
andi klukkan átta. Reyndar er þegar
orðið uppselt á þá tónleika svo ákveð-
ið hefur verið að halda aðra seinna um
kvöldið og mun meðal annars sjálfur
Helgi Björnsson troða upp með Skímó,
auk blásarasveitar Samma í Jagúar.
Enn meira er í vændum enda virðist
fólk sjaldnast fá nóg þegar Skítamórall
er annars vegar.
Saga Skítamórals hófst árið 1989 hjá
þrettán ára drengjum á Suðurlandi sem
langaði að geta pikkað upp lög eftir Led
Zeppelin, Uriah Heep og Deep Purple
sem þeir höfðu heyrt í á vínylplötum
feðra sinna. Þeir mættu síðar í Mús-
íktilraunir þegar stelpnabandið Kol-
rassa krókríðandi vann; „Og fyrir utan
stelpurnar í Kolrössu vorum við ábyggi-
lega eina bandið sem ekki spilaði dauð-
arokk þetta kvöld,“ segir Arngrímur
Fannar Haraldsson, eða Addi Fannar í
Skímó eins og hann er oft kallaður, en
mikil dauðarokksbylgja gekk yfir land-
ið þegar strákarnir frá Selfossi voru að
pikka sín fyrstu lög á gítarana.
Árið 1995 tóku þeir sig svo saman og
spiluðu á jólaballi í gagnfræðiskóla á
Selfossi og þrettándadansleik. Þetta átti
svo eftir að vinda upp á sig. Árið 1996
kom fyrsti geisladiskur sveitarinnar út
og ljóst var að Skítamórall myndi slá í
gegn. Piltarnir seldu bílfarma af geisla-
diskum og fylltu hvert félagsheimilið á
fætur öðru með rútuförmum af ungling-
um. Selfoss var mekka tónlistarlífs á Ís-
landi í hugum unglinga og það þótti töff
að reykspóla á gulum sportbílum.
Ástæður vinsældanna telur Arn-
grímur helst vera spilagleði sveitar-
innar og að meðlimir hennar tóku sig
mátulega alvarlega. „Við vorum ekk-
ert að reyna að slá í gegn í útlöndum
eins og svo margar aðrar hljómsveitir
á þessum tíma,“ segir hann. Aðalatriðið
fyrir þeim hafi verið að skemmta sér og
öðrum og það hafi þeir gert nær linnu-
laust allar helgar á sveitaböllum um
langt skeið. „Ég hefði ekki fyrir nokk-
urn mun vilja missa af þessum tíma.
Sveitaballamenningin held ég samt
að sé dauð, við rétt náðum í skottið á
henni,“ segir hann og útskýrir að mikl-
ar breytingar hafi orðið með hækkun
sjálfræðisaldursins. „Á þessum tíma
þótti eðlilegt að fylla helling af rútum af
sextán ára unglingum og bruna svo með
allt liðið meira og minna fullt með landa
í flösku í félagsheimili úti á landi þar
sem það skemmti sér svo eftirlitslaust
og fór svo með rútunni aftur heim. Þetta
yrði ekkert liðið í dag.“ Hann gefur lítið
fyrir það þegar fólk auglýsir sveitaböll
í dag, það sé allt annað að spila inni á
skemmtistað heldur en í félagsheimili út
í sveit og skipti þá engu hvort skemmti-
staðurinn sé á Akranesi, í Neskaupstað
eða annars staðar. „Reyndar finnst mér
Nasa alveg eins og Miðgarður í Skaga-
firði þannig að það kemst næst sveita-
ballastemningunni,“ segir Addi Fannar
að lokum.
karen@frettabladid.is
HLJÓMSVEITIN SKÍTAMÓRALL: 20 ÁRA
Upprisa og dauði sveitaballa
Elskuleg frænka okkar og mágkona,
Guðný Kristinsdóttir
Sléttuvegi 23, Reykjavík,
varð bráðkvödd mánudaginn 28. september. Jarðsett
verður frá Neskirkju þriðjudaginn 6. október kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeim sem
vilja minnast hennar láti líknarfélög njóta þess.
Fyrir hönd aðstandenda,
Rakel Viggósdóttir
Kristín Viggósdóttir
Ágústa Þórey Haraldsdóttir
Áslaug Jensdóttir
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
Páll G. Pálsson
Arnarhrauni 5, Hafnarfirði,
verður jarðsunginn frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 6. október kl. 15.00.
Vilhelmína S. Jónsdóttir
Anna Pálsdóttir
Ólafur Ingi Tómasson
Jónína Steiney Steingrímsdóttir Helgi Ívarsson
Þórarinn Smári Steingrímsson Elínbjörg Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og vinarhug við andlát og útför ástkærs
föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa,
Magnúsar Þórarins
Sigurjónssonar
Lindargötu 61, Reykjavík.
Ólafur Magnússon Jóna Guðjónsdóttir
Jónína Magnúsdóttir
Gylfi Þór Magnússon
Anna Sigurlaug Magnúsdóttir Frímann Ingi Helgason
Sigurjón Magnússon Helga Tryggvadóttir
og afabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur samhug og hlýju við fráfall
föður okkar, tengdaföður, afa, langafa og
langalangafa,
Leifs Eiríkssonar
kennara frá Raufarhöfn,
til heimilis að dvalarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði.
Eysteinn Völundur Leifsson Ína Sigurlaug Guðmundsdóttir
Rannveig Lovísa Leifsdóttir
Ingibjörg Fríður Leifsdóttir Jón Guðmundur Sveinsson
Erlingur Viðar Leifsson Arndís Jóna Gunnarsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabörn.
Elskuð eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Herdís Hergeirsdóttir
Móaflöt 49, Garðabæ,
lést laugardaginn 26. september á Landspítalanum í
Fossvogi. Útför Herdísar fer fram frá Vídalínskirkju
í Garðabæ miðvikudaginn 7. október kl. 13.00. Þeim
sem vildu minnast hennar er bent á Umhyggju, félag til
stuðnings langveikum börnum.
Einar H. Ágústsson
Davíð Einarsson Ragnhildur Óskarsdóttir
Hergeir Einarsson Pálína G. Hallgrímsdóttir
Hafsteinn Már Einarsson Kristín Jóna Kristjánsdóttir
Einar Örn Einarsson María Erla Marelsdóttir
Valur Freyr Einarsson Ilmur María Stefánsdóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskuleg móðir mín, tengdamamma,
amma og langamma,
Kristín Arnórsdóttir
saumakona, frá Tindum í Reykhólasveit,
andaðist á elliheimilinu Grund 21. september. Útförin
hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Arnór Einarsson Brynja Guðmundsdóttir
Einar Þór Arnórsson
Kristín Arnórsdóttir
Steinunn Hauksdóttir Jón Björn Skúlason
Birgir Hauksson Guðrún Elín Guðmundsdóttir
og langömmubörn.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
STRÁKARNIR Í SKÍTAMÓRAL Þeir hófu tónlistarferil sinn fyrir 20 árum þá 13 ára gamlir og eru enn að. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON