Fréttablaðið - 05.10.2009, Blaðsíða 17
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Mér þykir sérstaklega vænt um
uglulampann sem mamma gaf
mér í jólagjöf. Lampinn var keypt-
ur í Kisunni á Laugavegi og er úr
plasti, þannig að hann er sérlega
hentugur til flutninga. Þegar ég
hugsa út í það, þá getur meira en
vel verið að þetta sé barnalampi.
En það er þá bara hið besta mál,“
segir Anna Svava Knútsdóttir leik-
kona þegar hún er spurð um eftir-
lætishlutinn á heimili sínu.
Anna Svava segist sérlega
ánægð með hversu mikið álag
lampinn þolir, því hún hefur stað-
ið í mörgum flutningum að undan-
förnu. „Fyrst flutti ég í Þingholtin,
þaðan til Akureyrar og svo aftur
í Þingholtin og að lokum flutti ég
aftur á annan stað í Þingholtunum.
Uglan góða hefur fylgt mér í gegn-
um alla þessa flutninga. Það fylgja
mér ekki mörg húsgögn milli flutn-
inga og þegar ég sting lampanum í
samband finnst mér ég vera komin
heim.“
Þó eru það ekki einungis þolgæð-
in sem gera uglulampann að eft-
irlætishlut leikkonunnar. „Lamp-
inn gefur frá sér mjög hlýlega og
vinalega birtu. Uglan er líka svo
dramatísk og gáfuð með sín rauðu
augu. Það er frábært að geta leit-
að til uglunnar um svör við lífsins
ráðgátum,“ segir Anna Svava og
hlær.
Aðspurð segir Anna Svava uglu-
lampann vekja nokkra athygli
gesta á heimili hennar. „Flest-
ir þeirra segja einfaldlega „Hei!
Flottur lampi!“ segir Anna Svava.
kjartan@frettabladid.is
Dramatískur barnalampi
Leikkonan Anna Svava Knútsdóttir heldur mikið upp á uglulampa sem mamma hennar gaf henni í jóla-
gjöf. Lampann hefur hún í stofunni og leitar stundum til uglunnar um svör við lífsins ráðgátum.
Uglan hefur fylgt Önnu Svövu í gegnum marga flutninga. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SKELJAR eru til margra hluta nytsamlegar. Ein góð hugmynd
er að nota þær í baðherberginu til að geyma sápustykki. Hægt er
að útbúa fallega skál með því að líma litla skel undir stóra og búa
þannig til fót á stóru skelina.
Járn & Gler hf. - Skútuvogur 1h.
Barkarvogsmegin. - 104 Reykjavík
S: 58 58 900. www.jarngler.is
Speglalím
Sérhannað teygjanlegt sílikon lím, með góða
viðloðun við flestar gerðir af speglum.
Skemmir ekki spegilhúðina.
Eigum einnig til önnur lím og
þéttiefni í úrvali.
Viðhaldsfríar
ÞAKRENNUR
Smiðjuvegi 4C
Box 281 202 Kópavogur
Sími 587 2202 Fax 587 2203
hagblikk@hagblikk.is www.hagblikk.is
Varmaskiptasamstæður
loftræstistokkar og tengistykki
Hágæða
Þegar hús eru klædd með „viðhaldsfrírri“ klæðningu er nauðsynlegt að nota „viðhaldsfríar“ þakrennur.
Rennurnar frá Grövík Verk í Noregi eru gerðar úr 0,9 mm áli og tærast ekki, ryðga, né brotna.
Fyrsta rennan var framleidd árið 1956 og er enn í notkun.
Litir til á lager: Svartar, hvítar, rauðbrúnar og ólitaðar.
A
u
g
l.
Þ
ó
rh
il
d
a
r
1
4
6
0
.2
4