Iðnneminn


Iðnneminn - 01.10.1993, Síða 92

Iðnneminn - 01.10.1993, Síða 92
VERÐMÆTASÓUN OG AFTURFÖR Námsfyrirkomulag í rafeindavirkjun Undanfarin ár hefur borið á því, að sífellt fleiri nemendur í rafeindavirkjun falla á sveinsprófi. Ef litið er aftur til júní 1990 þá var 30% fall, í febrúar 1991 36% fall, í júní 1991 61% fall, í febrúar 1992 21% fall, í júní 1992 55% fall, í febrúar 1993 77% fall og nú síðast í júní 1993 52% fall. Út frá þessum tölum, sem sýna mjög slæma þróun, var ráðist í gerð könnunar meðal allra þeirra sem þreytt hafa sveinspróf í rafeindavirkjun frá júníprófinu 1990. Stefán A. Stefánsson stjómarmaður í FNÍR tók að sér framkvæmdina. Tilgangur könnunarinnar var fyrst og fremst sá, að reyna að finna þá galla sem leynst geta á sveinsprófinu. Því að stökk úr 21% falli í 77% fall á einu ári getur ekki talist eðlilegt. Sökin getur ekki eingöngu legið í skólakerfinu eins og sumir vilja meina. Leiðandi spurningar Þær spumingar sem lagðar vom fyrir í könnuninni vom leiðandi. Það var gert af ásettu ráði, til þess að fá ábendingar um þá galla sem gætu legið í sveinsprófinu, eða þá í kennslunni. Spumingamar fjölluðu aðallega um sveinsprófið, því ekki þótti nauðsynlegt að spyrja mikið út í fyrirkomulagið í skólanum. Það var gert í annari könnun í Iðnskólanum í Reykjavík á haustönn 1992 á vegum Félags nema í rafiðnum. Sú könnun gaf mjög góða mynd af námsfyrirkomulaginu í skólanum og em nú þegar hafnar breytingar á því. Tímaskortur og léleg kennsla Ekki er það ósk okkar sem stóðum að könnuninni um sveinsprófin, að sveinsprófið verði auðveldað, heldur eingöngu ef einhverjir gallar em til staðar, þá verði þeir lagfærðir. I niðurstöðunum vom sérstaklega tvö atriði sem menn bentu á. Þau voru að menn töldu kennslu í skólanum mjög ábótavant og að mikill tímaskortur væri í sveinsprófinu. Stress og tímaskortur Það sem virðist einkenna verklega þáttinn er stress og tímaskortur. Menn fá tæki sem þeir kannast jafnvel ekkert við, þurfa að læra á teikninguna, finna bilunina og útskýra hvemig þeir fundu hana, allt þetta á aðeins 30 mínútum, sem ekki getur talist eðlilegt. Svona er þetta ekki á vinnumarkaðinum. Bent hefur verið á, að menn gætu hugsanlega leyst verklega þáttinn á þessum skamma tíma, en álagið sem tímatakmörkuninni fylgir, kemur í veg fyrir það. Einhæf starfsþjólfun Meirihluti svarenda töldu að þeir komi ekki betur undirbúnir í sveinsprófið að starfsþjálfun lokinni, skýringuna sögðu þeir vera of einhæfa starfsþjálfun, á of þröngu sviði. Þess em dæmi að iðnnemar í starfsþjálfun hafi lítið komið nálægt bilanaleit eða jafnvel ekkert. Þeir sem unnu í fjölbreyttari störfum töldu að þeir kæmu betur undirbúnir í sveinsprófið eftir starfsþjálfunina, og eru þeir í meirihluta þeirra sem hafa staðist sveinspróf. Ósamræmi milli kennslu og sveinsprófa í könnuninni kom einnig fram að nemamir töldu mikið vanta upp á að það sem prófað væri úr í sveinsprófinu væri í samræmi við það sem kennt er í skólanum, eða þá að það sem kennt er í skólanum væri í litlu samræmi við efnið á sveinsprófinu. Það er alveg augljóst að þama em samskiptaörðugleikar á milli skóla og sveinsprófsnefndar, og það er mál sem menn verða að leysa í sameiningu. Það var einnig mikil óánægja með einkunnargjöfina á prófinu. Ef menn gleyma einhverju smáatriði í dæmum eða klára ekki alveg að finna bilun, þá er þeim refsað helst til mikið. Einnig kom fram sú gagnrýni að í sveinsprófinu em notuð sjaldgæf orð í stað þeirra sem menn nota dags daglega í starfi sínu, og var kennt í skóla. Mikil gagnrýni ó skólann Svarendumir töldu að þyngd prófsins væri yfir meðallagi (á kvarðanum 0 til 10 gáfu þeir því einkunina 7,5 að meðaltali). Menn kvörtuðu þó sérstaklega yfir hinum mikla tímaskorti, þann galla er nauðsynlegt að leiðrétta. Mjög mikil gagnrýni kom fram á skólann, á kennslu, á námsgögn og á tækjabúnað. Skiptar skoðanir vom um hvað væri að í kennslunni. Flestir töldu kennsluna staðnaða og úr takti við atvinnulífið, þar var helst bent á tölvusviðið. Einnig fannst sumum að kenna mætti grundvallaratriðin mun betur, í stað þess að stökkva úr einu í annað. Endurbætur hafnar Því ber að fagna að komin er í gang mikil vinna í endurbótum á námsfyrirkomulagi í rafeindavirkjun þar sem kennarar úr Iðnskólanum, undir stjóm Rafiðnaðarskólans, hafa verið að vinna að nýju og betra námsefni og námsskrá. Fjórskortur í verknómi Tækjakostur skólans var mikið gagnrýndur, það að tæki væm orðin mjög gömul og úr sér gengin, og einnig að sum tæki bráðvanti. Þetta er hægt að bæta með auknu fjármagni.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120

x

Iðnneminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Iðnneminn
https://timarit.is/publication/361

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.