Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 2
2 30. október 2009 FÖSTUDAGUR HEILBRIGÐISMÁL Gjörgæsludeild- ir Landspítala í Fossvogi og á Hringbraut fylltust aðfaranótt fimmtudags, þegar þar lágu níu sjúkl ingar með svína flensu, auk hinna sem þar voru af öðrum orsökum. „Sjúklingar sem hefðu þurft að fara á gjör- gæslu hefðu ekki komist inn,“ segir Már Kristjánsson, yfirmaður smitsjúkdómadeildar spítalans. Spurður um viðbrögð ef fleiri hefðu þurft að leggjast inn á gjörgæslu segir Már að í þeirri stöðu hefði þurft að kalla til starfsfólk af öðrum deildum spítalans eða starfsfólk sem var heima í hvíld. „Við höfum þurft að bæta við töluverðum tækjabúnaði vegna flensunnar,“ segir Björn Zoëga, forstjóri spítalans. „Um er að ræða tvö gervilungu, svo og sprautudæl- ur sem dæla lyfjum í gjörgæslu- sjúklinga. Einnig höfum við skoð- að skilvindu fyrir fólk sem lendir í nýrnabilun sem fylgir oft svona sjúkdómum.“ Á Landspítala lágu 35 um hádegi í gær, þar af átta á gjörgæslu. Það var heldur færra en á miðvikudag, því þá voru 39 inflúensusjúkling- ar inniliggjandi, þar af níu á gjör- gæsludeild. Tólf voru lagðir inn á einum sólarhring en tveir voru útskrifaðir á sama tíma. Meira reyndi á miðvikudag á starfsemi Landspítala vegna inflúensunnar en nokkru sinni frá því faraldur- inn hófst. Vegna þessarar stöðu var við- búnaður á Landspítala í gær færð- ur á svokallað virkjunarstig, sam- kvæmt viðbragðsáætlun spítalans. Þetta er næstefsta stig af fjórum sem skilgreind eru í áætluninni. Efst er neyðarstig. Á virkjunar- stigi viðbúnaðar gæti þurft að draga úr innlögnum sjúklinga og fresta þeim aðgerðum sem unnt er að fresta á Landspítalanum. Alls hafa 6.609 manns greinst með inflúensueinkenni hérlend- is. Frá 23. september hafa yfir hundrað manns verið lagðir inn á sjúkrahús hér vegna inflúensu, þar af tæplega níutíu manns á Landspítala. Af þeim eru þrír af hverjum fjórum með undirliggj- andi sjúkdóma. Frá októberbyrjun hafa fjórtán sjúklingar verið lagðir inn á gjör- gæsludeildir með staðfesta inflú- ensu eða grun um hana. Síðdegis í gær voru alls níu á gjörgæslu- deildum, þar af einn á Akureyri og átta á Landspítala, eins og áður sagði. jss@frettabladid.is Tækjum var fjölgað á yfirfullri gjörgæslu Bætt hefur verið við tækjabúnað á Landspítalanum vegna svínaflensunnar. Gjörgæsludeildir hans fylltust aðfaranótt fimmtudags og staðan var lítið skárri í gær. Í haust hafa yfir hundrað manns verið lagðir inn vegna flensunnar. LANDSPÍTALINN Auk svínaflensunnar hefur verið mikið um önnur alvarleg veikindi og slys sem hafa krafist innlagnar á gjörgæsludeild síðustu daga. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA MÁR KRISTJÁNNSON Farsóttarnefnd Landspítala ítrekar tilmæli sín til almennings um að takmarka heimsóknir sínar til sjúklinga á sjúkrahúsinu á meðan á inflúensufaraldrinum stendur. Einungis þeir sem eiga brýnt erindi mega koma inn á spítalann; aðrir eru hvattir til að nota símann og tala við sjúklingana sjálfa eða starfsfólk viðkomandi deildar. HEIMSÓKNIR TAKMARKAÐAR Jens, ætlið þið ekki að smyrja á verðið? „Nei, við notum lítið smjör.“ Jens Einarsson er einn af eigendum Kvikkfix, nýrrar þjónustumiðstöðvar fyrir bíla, þar sem hægt er að fara með bílinn í smurningu. Hann lofar lægra verði en þekkist á Íslandi. SJÁVARÚTVEGSMÁL Jón Bjarna- son sjávarútvegsráðherra segir að íslensk stjórnvöld séu knúin til að taka einhliða ákvörðun um makríl- veiðar fyrir næsta ár. Ástæðan sé sú að aðrir sem veiða úr makrílstofn- inum, sem eru Evrópusambandið, Noregur og Færeyjar, neita að við- urkenna rétt Íslands til að taka þátt í að ákveða leyfilegan heildarafla og skiptingu hans. Í fréttatilkynningu frá sjávarút- vegsráðuneytinu segir að í ljósi þess að löndin þverskallist við að viður- kenna rétt Íslands sé ekki önnur fær leið en að taka einhliða ákvörðun um kvóta. Ákvörðunin verði tekin með tilliti til makrílveiða íslenska flotans síðustu ár, og jafnframt vaxandi útbreiðslu makríls innan íslensku efnahagslögsögunnar. Íslensk stjórnvöld hafa árum saman, en án árangurs, leitað eftir því að taka þátt í heildarstjórnun makrílveiða. Því hefur verið hafn- að með þeim rökum að lítinn sem engan makríl sé að finna í íslenskri lögsögu. Íslensk skip veiddu 112 þús- und tonn af makríl í íslenskri lög- sögu í fyrra og svipað magn í ár. Ráðherra skipaði vinnuhóp í ágúst sem er ætlað að fara yfir makrílveið- ar íslenskra skipa og vinna tillögur um hvernig veiðum og vinnslu verð- ur best háttað. Veiðar og vinnsla undanfarinna ára hafa aðeins skil- að broti af þeim verðmætum sem unnt er að fá úr þeim afla sem veiddur hefur verið. - shá Sjávarútvegsráðherra afdráttarlaus varðandi afstöðu strandríkja í makríldeilu: Veiðum á okkar forsendum SIGHVATUR BJARNASON VE Íslenski flotinn veiddi 116 þúsund tonn af makríl í íslenskri lögsögu í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI VIÐSKIPTI Glitnir lánaði tíu börnum milljónir króna til stofnfjárkaupa í Byr árið 2007. Lánin voru ólögleg og hafa skuldir barnanna því verið felldar niður. Stofnfé í Byr var aukið um þrjátíu milljarða haustið 2007. Stofnfjáreigendur fengu allir boð um að kaupa meira og var þeim bent á fjármögn- unarsamning við Glitni. Börnin voru meðal stofn- fjáreigenda og foreldrar þeirra óskuðu eftir lánum fyrir börn sín. Sýslumaðurinn í Hafnar- firði samþykkti í nokkur skipti að stofnfjárbréf væru skráð á börn, en heimilaði ekki lántökur á þeirra nöfnum. Málin hafa verið í skoðun hjá Íslandsbanka frá stofnun nýja bankans. Sú athugun leiddi í ljós að þrátt fyrir að forráðamenn barnanna hafi átt frumkvæði að lántökunum lá ekki fyrir samþykki sýslumanns, sem er yfirlögráðandi, fyrir þeim. Lánssamningarnir teljast því ógildir og verða skuldirnar ekki innheimtar, samkvæmt tilkynn- ingu frá Íslandsbanka. Í tilkynningunni kemur jafnframt fram að bankinn harmi málið í alla staði. - þeb Glitnir lánaði tíu börnum fyrir stofnfjárkaupum í Byr árið 2007: Barnalán verða ekki innheimt BYR Í HAFNARFIRÐI Glitnir fjármagnaði stofnfjáraukningu Byrs árið 2007, sem var sú stærsta á Íslandi. Tíu börn voru á meðal lánþeganna. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA ÍRAK, AP Tugir hermanna og lög- reglumanna hafa verið hand- teknir í tengslum við sprengju- árásir í Bagdad, höfuðborg Íraks, um síðustu helgi. Árásirnar voru þær mannskæðustu í landinu í rúm tvö ár og urðu 155 manns að bana. Sprengjurnar sprungu í tveim- ur bílum í miðborg Bagdad á sunnudaginn. Mennirnir voru handteknir vegna þess að þeir báru ábyrgð á öryggisgæslu á svæðinu þegar árásirnar urðu. Rannsókn málsins beinist nú að því hvort þeir gerðust sekir um vanrækslu eða hvort þeir beinlín- is hjálpuðu árásarmönnunum. - þeb Handtökur í Bagdad: Tugir í haldi vegna árása DÓMSMÁL Hæstiréttur hefur snúið við dómi héraðsdóms í máli Vilhjálms Bjarnasonar gegn Glitni og sýknað bankann af kröf- um Vilhjálms. Vilhjálmur stefndi bankan- um vegna kaupa á hlutabréfum Bjarna Ármannssonar, fyrrum forstjóra Glitnis, í bankanum. Bjarni seldi bréfin við starfslok sín árið 2007 á talsvert hærra gengi en markaðsvirði þeirra var. Öðrum hluthöfum buðust ekki sömu kjör og vegna þess höfðaði Vilhjálmur mál. Héraðsdómur hafði komist að þeirri niðurstöðu í febrúar að stjórn bankans hefði hvorki gætt hagsmuna bankans né hluthafanna við kaupin á bréf- um Bjarna. - þeb Hæstiréttur um Glitni: Mátti kaupa bréf á yfirverði Í RÚSTUM Meðal þeirra bygginga sem skemmdust mikið í sprengingunum var leikskóli í nágrenni dómsmálaráðuneyt- isins. FRÉTTABLAÐIÐ/AP REYKJAVÍK Enn er óljóst hver fær lögbundin fjárframlög til stjórn- málasamtaka; F-listi eða Frjáls- lyndi flokk- urinn. Erindi lögmanns Ólafs F. Magnússon- ar, borgarfull- trúa F-lista, var vísað til innri endurskoðanda. Deilur hafa staðið um fram- lögin, en Ólaf- ur var kjörinn í borgarstjórn fyrir F-lista Frjáls- lyndra og óháðra árið 2006, en gekk síðar úr Frjálslynda flokkn- um. Hann telur, og styður með lögfræðiáliti, að greiðslurnar eigi að renna til borgarstjórnarflokk- anna, ekki stjórnmálaflokka á landsvísu. Frjálslyndi flokkurinn hefur haldið öðru fram og nú hefur nýjum gögnum verið vísað til innri endurskoðenda borgarinnar. - kóp Frjálslyndi flokkur og Ólafur: Enn deilt um fjárframlögin ÓLAFUR F. MAGNÚSSON MENNTUN Háskóli Íslands heldur í dag Þjóðarspegilinn - rann- sóknir í félagsvísindum í tíunda sinn. Á ráðstefnunni í dag verða alls 170 erindi á 48 málstof- um sem spanna litróf félags- vísindanna. Deildirnar sem taka þátt í Þjóðarspeglinum eru félags- og mannvísindadeild, félagsráðgjafadeild, stjórnmála- fræðideild, hagfræðideild, við- skiptafræðideild og lagadeild. Málstofurnar standa yfir frá 9 til 17 í dag í Háskóla Íslands og eru öllum opnar. Dagskrána má finna á thjodarspegilinn.hi.is. - þeb Háskóli Íslands: Þjóðarspegill í tíunda sinn STJÓRNMÁL Frá bankahruninu hafa ráðherrar úthlutað rúmlega 80 milljónum króna af ráðstöfunarfé sínu. Frá aldamótum hafa ráðherr- ar úthlutað tæpum 800 milljónum. Fram kom í Kastljósi í gær að Össur Skarphéðinsson utanríkis- ráðherra hefði styrkt ævisögu- ritun Einars Benediktssonar um 300 þúsund krónur af ráðstöfunar- fé sínu. Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, vill minnka ráðstöfunarfé ráðherra og setja um það skýrari reglur. - þeb Ráðstöfunarfé ráðherra: Hafa úthlutað 80 milljónum SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.