Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 12
12 30. október 2009 FÖSTUDAGUR FRÉTTASKÝRING: Endurskoðun Alþjóðagjaldeyrissjóðsins „Við höfum fremur áhyggjur af auknu atvinnuleysi en skuldum heimila og fyrirtækja. Í næstu endurskoðun okkar munum við horfa til þess að draga úr hætt- unni á uppsögnum enda kann það að auka vanda heimilanna,“ segir Mark Flanagan, yfirmaður Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) í málefnum Íslands. Hann hélt síma- fund í gær í Washington í Banda- ríkjunum fyrir blaðamenn í gær. Fundinn sat Franek Rozwadowski, sendifulltrúi AGS hér á landi. Sjóðurinn samþykkti fyrstu endurskoðun á efnahagsáætlun Íslands í fyrradag. Tafir í átta mánuði AGS samþykkti að lána stjórnvöld- um 2,1 milljarð dala fyrir tæpu ári og skildi fyrsta greiðslan innt af hendi að lokinni fyrstu endur- skoðun efnahagsáætlunar sjóðs- ins fyrir Ísland. Þetta var fimmta lánaumsókn Íslendinga síðan 1960. Síðast veitti sjóðurinn stjórnvöld- um lán vegna útflutningsbrests árið 1982. Sendinefnd á vegum AGS kom hingað til lands í byrj- un desember. Fyrsta formlega endurskoðun efnahagsáætlunar- innar átti að fara fram í febrúar á þessu ári. Stjórnarskipti í febrúar og alþingiskosningar í apríl urðu hins vegar til að tefja endurskoð- unina. Lítið gerðist þrátt fyrir væntingar um hið gagnstæða þar til í fyrradag. Flanagan var spurður hvort Icesave-deilur milli Íslendinga, Breta og Hollendinga hefðu verið ástæða þess að endurskoðunin tafðist svo mánuðum skipti. Hann sagði svo ekki vera, nema með óbeinum hætti. Dregist hafi að tryggja fjármögnun lánveitinga til handa Íslendingum og nauðsynlegt hafi verið að ná lendingu við alla sem að málinu koma. Áður hefur komið fram að þar var óbeint átt við Breta og Hol- lendinga. Nú þegar málið er í höfn telur Flanagan lánveitingar frá AGS og fleirum skila sér fljótlega, jafnvel í dag eða fljótlega eftir helgi. Lánsfjárhæðin frá AGS nemur 167,5 milljónum dala, jafnvirði 21 milljarði króna. Því til viðbótar má vænta lána frá Norðurlöndunum upp á 625 milljarða króna, jafn- virði 78 milljarða króna. Heildar- fjárhæðin nemur um hundrað milljörðum. Legið hefur fyrir að lánin frá AGS og öðrum þjóðum verða notuð bæði til að tryggja greiðslu- getu ríkissjóðs og styðja við gengi krónunnar með óbeinum hætti. Flanagan sagði ekkert því til fyr- irstöðu að ríkið nýtti lánið til að endurfjármagna eldri lán, ekki síst þau lán sem eru á gjalddaga á næstu þremur árum og á hærri vöxtum. „Það er leyfilegt, jafnvel fýsilegur kostur í einhverjum til- vikum,“ segir hann. Betri tíð á nýju ári Flanagan segir endurreisn íslenska efnahagslífsins ganga almennt vel, jafnvel þótt skuldir þjóðarbúsins hafi reynst hærri en AGS ætlaði í fyrstu. Erlendar skuldir eru nú rúmlega þrjú hundruð prósent af landsframleiðslu og langt umfram það sem AGS hafði áður talið óvið- ráðanlegt. Öðru máli gegnir nú, að mati Flanagans sem benti á breytta stefnu og að grundvöllur sé fyrir jákvæðum viðskiptaaf- gangi við útlönd. „Við gerum ráð fyrir jákvæðum hagvexti í kringum mitt næsta ár,“ segir hann og bendir á að end- urskipulagning bankanna hafi gengið hraðar fyrir sig en í fyrstu var ætlað. Flanagan telur ólíklegt að Icesave-skuldbindingar Íslendinga stefni hagkerfinu í voða. Líkur séu á góðum endurheimtum erlendra eigna og skuldin kunni að lækka verulega. Það hafi áhrif á stöðu landsins. Ekki himinháir stýrivextir Hann gerir ráð fyrir að önnur endurskoðun efnahagsáætlunar- innar verði tekin fyrir hjá AGS fyrir árslok og þá verði nokkrir þættir skoðaðir sérstaklega. Þar á meðal eru endurskoðun skulda, halli á fjárlögum og fyrstu áfangar í afnámi gjaldeyrishafta. Flanagan segir AGS almennt ekki styðja gjaldeyrishöft í þeim löndum sem hann hafi unnið með. Sjóðurinn hafi hins vegar sam- þykkt þau hér enda hafi höftin lokað dyrunum fyrir að erlend fjárfesting streymdi úr landi fyrir ári. Stýrivexti hefði mátt nota með svipuðum hætti líkt og í fleiri lönd- um. Þá hefði hins vegar þurft að hækka verulega, allt upp í fjöru- tíu til fimmtíu prósent til að virka með sama hætti. Að því leyti líti AGS gjaldeyrishöftin jákvæðari augum en ella. Flanagan kom ekki inn á vaxta- stig hér að öðru leyti. Í tilkynn- ingu frá Morilo Portugal, aðstoð- arforstjóra AGS, sem send var út eftir fyrstu endurskoðun efnahags- áætlunarinnar, segir hins vegar að skilyrði séu nú að skapast fyrir varkárum vaxtalækkunum. Haft er eftir Portúgal í tilkynn- ingunni að endurskipulagning fjármálakerfisins hafi reynst flók- in í framkvæmd en áfangar náðst með endurreisn Nýja Kaupþings og Íslandsbanka. Líkt og áður hefur komið fram samþykktu kröfuhafar Íslands- banka að taka 95 prósenta hlut í bankanum á móti ríkinu. Enn er óráðið með kröfuhafa Nýja Kaup- þings. Vaxtakjör Íslands góð Síðar um daginn átti Flanagan símafund með Íslensk-ameríska verslunarráðinu. Á þeim fundi var hann spurður hvort Ísland þyrfti að þola óeðlilega háa vexti af erlend- um lánum tengdum endurreisninni en hann sagði svo ekki vera. „Við höfum skoðað þetta vel. Reyndin er að Ísland nýtur betri vaxtakjara en önnur krísulönd hafa gert að meðal- tali.“ Ástæðuna segir hann vera að lánveitendur líta á Ísland sem þróað hagkerfi og telji góðar líkur á að efnahagslífið nái sér aftur á vel á strik. Vaxtakjör AGS segir hann mun betri en Íslandi bjóðist annars stað- ar. Sjóðurinn innheimtir eins pró- sents álag á þann kostnað sem hann ber af lánunum. Vextirnir eru fljót- andi, vegið meðaltal af stuttum ríkis- bréfum í ýmsum myntum. Grunn- álag er að meðaltali 275 punktar. Umreiknað í fasta vexti til tólf ára eru þeir samtals 6,75 prósent. Að sögn Flanagans fengi Ísland tæp- lega lán á opnum markaði nema með vöxtum í tveggja stafa tölu. AGS lofar endurreisn efnahagslífsins Skuldabyrði þjóðarbúsins er meiri en Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn taldi viðráðanlega á vordögum. Endurreisnarstarfið hefur gengið vel, að mati fulltrúa sjóðsins. Stýrivaxtalækkun liggur í loftinu. Betri tíðar má vænta eftir tæpt ár. FRANEK ROZWADOWSKI OG MARK FLANAGAN Stýrivextir hefðu þurft að vera á bilinu fjörutíu til fimmtíu prósent til að halda erlendu fjármagni í landinu eftir hrunið. Gjald- eyrishöft eru því viðunandi, segir Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN FRÉTTASKÝRING JÓN AÐALSTEINN BERGSVEINSSON jona@frettabladid.is Auglýsing um álagningu opinberra gjalda á lögaðila árið 2009 Hér með er auglýst að álagningu opinberra gjalda á árinu 2009 er lokið á alla lögaðila sem skattskyldir eru samkvæmt I. kafla laga nr. 90/2003 um tekjuskatt, með síðari breytingum, sem og aðra sem lagt er á í samræmi við VIII. – XIV. kafla tilvitnaðra laga. Jafnframt er lokið álagningu á lögaðila, sem skattskyldir eru af fjármagnstekjum samkvæmt ákvæði 4. mgr. 71. gr. laganna. Álagningarskrár með gjöldum lögaðila verða lagðar fram í öllum skattumdæmum í dag, föstudaginn 30. október 2009. Skrárnar liggja frammi til sýnis á skattstofu hvers skattum- dæmis og hjá umboðsmönnum skattstjóra eða á sérstaklega auglýstum stöðum í hverju sveitarfélagi dagana 30. október til 13. nóvember nk. að báðum dögum meðtöldum. Álagningarseðlar, er sýna álögð opinber gjöld lögaðila, hafa verið póstlagðir. Kærur vegna allra álagðra opinberra gjalda 2009 samkvæmt ofangreindu skulu hafa bor- ist skattstjóra eigi síðar en mánudaginn 30. nóvember 2009. Auglýsing þessi er birt samkvæmt ákvæði 1. mgr. 98. gr. laga nr. 90/2003, um tekjuskatt, með síðari breytingum. 30. október 2009. Skattstjórinn í Reykjavík, Gestur Steinþórsson Skattstjórinn í Vesturlandsumdæmi, Stefán Skjaldarson Skattstjórinn í Vestfjarðaumdæmi, Rósa Helga Ingólfsdóttir Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi vestra, Hanna Björnsdóttir Skattstjórinn í Norðurlandsumdæmi eystra, Gunnar Karlsson Skattstjórinn í Austurlandsumdæmi, Karl S. Lauritzson Skattstjórinn í Suðurlandsumdæmi, Steinþór Haraldsson Skattstjórinn í Vestmannaeyjum, Ingi T. Björnsson Skattstjórinn í Reykjanesumdæmi, Sigmundur Stefánsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.