Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 44

Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 44
12 • The Informant! segir frá Mark Whitacre, sem er á hraðri leið á toppinn hjá stórfyrirtæki í mat- vælabransanum sem hann starfar hjá. Það er ekki allt skrúfað fast í hausnum á honum, sem verður til þess að hann flækist í atburðarás sem hefur stórvægilegar afleiðingar. Myndin er byggð á sannri sögu sem POPP mælir með að fólk kynni sér á gömlu góðu Wikipediu. FRUMSÝND Í KVÖLD: THE INFORMANT! LEIKSTJÓRINN Steven Soderbergh, leikstjóri The Informant!, vann Óskarsverðlaunin árið 2000 fyrir stórmyndina Traffic. Síðustu ár hefur hann sent frá sér myndir á borð við Erin Brockovich og Ocean‘s-þríleikinn sem skartar mörgum af helstu stórstjörnum stjörnuborgarinnar í dag. GEÐÞEKKUR BRJÁLÆÐINGUR MAMMA „Þessi mynd er alveg æðislega skemmti- leg. Ég man ekki hvað aðalleikarinn heitir, en hann er yndislegur í hlutverki geðþekka brjálæðingsins. Ég man nú eftir þessu máli þegar það kom upp, þess vegna er gaman að horfa á svona skemmtilega mynd um það. Hún er bæði fyndin og spenn- andi.“ POPPDÓMNEFNDIN BÍÓNÖRDINN „Virki- lega vel gerð og skemmti- leg mynd. Matt Damon stendur sig vel og er nánast óþekkjanlegur í hlutverki Marks Whitacre. Steven Soderbergh er mjög skemmtilegur leikstjóri og er í miklu stuði í mynd sem minnir örlítið á Burn After Reading eftir Coen-bræðurna. Ég mæli hiklaust með þessari.“ VINURINN „Gaur. Mjög skemmti- leg! Hún var samt ekki eins fyndin og Zombie- land en ég efast reyndar um að hún hafi átt að vera það. Stað- reyndamolarnir sem aðalpersónan les inn í gegnum myndina eru algjört gull og það er gaman að sjá stelpuna sem leikur stalkerinn í Two and a Half Men í alvöruhlut- verki.“ STELPAN „Æi, mér finnst þessi mynd ekk- ert spes. Ég var hálf ringluð þegar hún var búin og áttaði mig ekki alveg á hvað vakti fyrir aðalpersónunni. Matt Damon hefur líka oft, eða bara alltaf, verið sætari. Ég myndi frekar fara á Couples Retreat. Ég gat samt alveg hlegið stundum þó að ég hafi ekki beinlínis grenjað.“ 1. Ýmsir – 5 (Hyperdub) 2. Alix Perez – 1984 (Shogun Audio) 3. Joy Orbison – Hyph Mngo (Hotflush) 4. Spectrasoul feat. Mike Knight – Melodies (Exit) 5. Break – Aftershower (Shogun Audio) 6. Terror Danjah – Gremlinz: The Instrumentals 2003–2009 (Planet Mu) 7. Kryptic Minds – 768 (Tectonic) 8. Randomer – Rough Sex (FreeP3) 9. Fever Ray – Seven (Martyn remix) (Rabid) 10. Chromeo – Night By Night (Skream Remix) Topp 10 listi október mánaðar Kringlan | 534-2951 www.mohawks.is | facebook.com/mohawksiceland Topp 10 listinn er í boði Mohawks STAKK LÖGGUNA AF Annar skoskur leikari, Ewan McGregor, hefur játað að hafa stungið lögregluna af eftir að hafa verið stöðvaður fyrir umferðarlagabrot. Notaði hann tækifærið um leið og löggan sneri í hann bakinu og brunaði í burtu. McGregor vildi ekkert gefa upp um hvar eða hvenær þetta gerðist. „Ég fékk engan sektarmiða. Ég stakk hann bara af á mótorhjólinu mínu,“ sagði hann í spjalli við Jay Leno. LÖGFRÆÐINGAR SLÁ EKKI Í GEGN Skoski leikarinn Gerard Butler er ánægð- ur með að hafa ekki orðið lögfræðingur þegar hann var yngri. Annars hefði hann aldrei slegið í gegn í Hollywood. Butler lauk lagaprófi í Glasgow og gerðist síðan lærlingur til að öðlast full réttindi sem lögmaður. „Ég var rekinn viku áður en ég átti að fá lögmannsréttindin. Það var versti dagurinn í lífi mínu en núna er hann sá besti.“ Matt Damon þurfti að þyngja sig um rúm þrettán kíló til að túlka hinn þybbna Mark Whitacre. Hann vakti mikla athygli á meðan á framleiðslu myndarinnar stóð og slúðurpressan taldi hann vera búinn að missa það.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.