Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 45

Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 45
Settu eina pakkningu af nautahakki í skál og hnoðaðu eins og deig. Bættu egginu og olíunni saman við og blandaðu vel. Gott er að klæðast plast- hönskum, þar sem þetta er subbuleg aðgerð. Mikilvægt er að hnoða hakkið til svo að það verði deigkennt og haldist vel saman. Saxaðu niður jala- peño og settu út í ásamt piparnum, hvítlauk eftir smekk og salt. Hnoðaðu enn á ný buffið vel saman og mótaðu svo nokkra um 200 gramma eðalborgara. Þeir eru mjög þykkir, en þannig á það að vera. Nú er gott að byrja að hita pönn- una nokkuð hæfilega. Loks steikirðu borgarann. Passaðu að vera ekki með of háan hita á pönnunni svo að þú brennir hann ekki að utan áður en hann steikist að innan. Taktu svo brauð, beikon, græn- meti og hvað sem þú lætur á borgara og raðaðu saman. Besti hamborgari heims er tilbúinn! • 13 Við fyrstu sýn væri mjög eðli- legt að draga þá ályktun að munurinn á Fifa 09 og Fifa 10 væri lítill sem enginn. En Fifa 10 er virkilega góð viðbót við fyrri Fifa-leiki og er gleðilegt að sjá að endurreisn þessarar fornfrægu leikjaseríu haldi áfram. Mikilvæg- ustu breytingarnar eru þær sem snúa að grafík leiksins. Leikmenn á vellinum hreyfa sig nú á mun trúverðugri máta, þeir hoppa upp úr tæklingum og stundum hitta þeir ekki boltann í upplögðu færi. Dómararnir eru nú einnig orðnir meira áberandi, meira að segja línuverðir fá að vera í mynd, sem er afar sjaldgæft. Þessar breytingar hafa það í för með sér að spilun leiksins verður enn raunverulegri og hreinlega skemmtilegri. Bætum við þetta endurbættum spilunarmögu- leikum, uppfærðum liðum og þeim möguleika að geta sett sitt eigið smetti inn í leikinn og þá er kominn pakki sem er býsna erfitt að hafna, sérstaklega ekki fyrir aðdáendur fyrri Fifa-leikja. - vij POPPLEIKUR: FIFA 10 MEIRA AÐ SEGJA LÍNUVÖRÐURINN NIÐURSTAÐAGRAFÍK 4/5 SPILUN 5/5 HLJÓÐ 4/5 ENDING 5/5 Söngkonan Lily Allen ætlar að setja á fót sitt eigið útgáfu- fyrirtæki, þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að hún ætli ekki að gefa út aðra plötu. Svo virðist sem hún vilji vera meira á bak við tjöldin í tónlistarbransanum en hún hefur verið. „Ég er ekki að hætta í tónlistinni. Kannski hætti ég að syngja um tíma. Ég væri til í að taka mér smá pásu og prófa eitt- hvað annað,“ sagði hún. Julian Casablancas kom í fyrsta sinn fram í sjónvarpi með sólóverkefni sitt í kvöld- þætti Conans O‘Brien fyrir skömmu. Strokes- söngvar- inn flutti þar nýja lagið 11th Dimension sem verður á fyrstu sólóplötu hans, Phrazes for the Young, sem kemur út í næstu viku. Eftir brösuga byrjun í þættinum komust Casablancas og félagar á flug og skiluðu sínu óaðfinnan- lega. Helst þóttu danshæfi- leikar kappans stirðbusa- legir og þarf hann líklega að lagfæra það áður en hann fer í tónleikaferðalag. Billy Corgan, forsprakki Smashing Pumpkins, ætlar ekki að láta bólusetja sig gegn svínaflensunni. Hann segist ekki treysta þeim sem búa til bóluefnið og telur að yfirvöld séu að hræða almenning að óþörfu með yfirlýs- ingum sínum. „Vírusinn er ekki orðinn að faraldri. Það er fáránlegt að forsetinn okkar Obama hafi lýst yfir neyðarástandi,“ skrifaði hann á heimasíðu sína. „Ég hef lesið skýrslur um að það séu sönnunargögn fyrir því að vírusinn hafi verið búinn til af mönnum.“ Þrátt fyrir að vera moldríkur sér 50 Cent eftir því að hafa ekki farið í viðskiptanám þegar hann var yngri. Hann segist mundu hafa viljað læra allt um viðskipti í skóla frekar en úti á götu með eiturlyfja- sölu. „Fólk í gamla hverfinu mínu hikaði ekki við að drepa til að útrýma samkeppninni. Núna starfa ég með við- skiptajöfrum sem vilja líka útiloka samkeppnina en gera það á annan hátt. Þetta eru tvær mismunandi leiðir að sama markmiðinu. Ef ég hefði haft val hefði ég farið í hina áttina og stundað viðskipta- nám,“ sagði 50 Cent. HVERNIG Á AÐ... ÚTBÚA BESTU HAMBORGARA HEIMS POPPLEIKUR: UNCHARTED 2: AMONG THIEVES INDY HVER? Uncharted 2: Among Thieves er án nokkurs vafa einn af allra bestu leikjum ársins. Öll grafík leiksins er til fyrir- myndar og er í raun ekki hægt að taka út neitt sérstakt borð sem sýnikennslu í hvernig eigi að gera tölvuleikjagrafík. Þau eru öll hreint gullfalleg, hvort sem það eru ís- hellar í Himalajafjöllum eða iðandi frumskógar. Í leiknum er vart hægt að finna daufan punkt, leikurinn er rússíbanareið frá upphafi til enda og ber sérstaklega að nefna lestarhluta leiksins sem skólabók- ardæmi um hvernig eigi að heilla unnendur tölvuleikja. Það sem Uncharted 2 gerir svo vel er að bjóða leikmönnum upp á afþreyingu sem jafnast á við að horfa á góða hasarmynd. Ímynd- um okkur Indiana Jones áður en hann varð farlama gamalmenni, nema Uncharted 2 státar af meiri hasar, meiri húmor og meiri spennu. Þeir sem finna ekki gleði í hjarta sér við að spila Uncharted 2 eru hreinlega dauðir að innan og sálarlausir. - vij NIÐURSTAÐAGRAFÍK 5/5 SPILUN 5/5 HLJÓÐ 5/5 ENDING 4/5 EINS OG HASARMYND Leikja- dómari POPPS vildi gefa leikn- um 6 af 5 mögulegum. ÞAÐ SEM ÞÚ ÞARFT: Plasthanskar, nautahakk, jalapeño, cayenne-pipar, egg, matarolía, gráðaostur, hvítlaukur, salt. # # # ERFITT AÐ HAFNA Að- dáendur FIFA verða lengi að sleppa þessum. Tónastöðin er með meiriháttar úrval magnara í öllum stærðum og gerðum frá heimsþekktum framleiðendum! Hjá okkur færðu faglega þjónustu, byggða á þekkingu og áratuga reynslu. frábært úrv al

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.