Fréttablaðið - 30.10.2009, Page 58
30. október 2009 FÖSTUDAGUR
KRISTÓFER KÓLUMBUS (1451-1506)
„Auðæfi gera manninn ekki
ríkari, heldur aðeins upptekn-
ari.“
Kristófer Kólumbus var land-
könnuður og kaupmaður. Ferð
hans til Nýja heimsins 1492 var
fyrsta skjalfesta ferð Evrópu-
búa til Ameríku eftir að norræn-
ir menn höfðu gefið landnám þar
upp á bátinn.
Á þessum degi árið
1941 lauk gerð högg-
myndarinnar af fjór-
um forsetum Banda-
ríkjanna í Rush-
more-fjalli. Fjallið
er granítfjall ná-
lægt Keystone í
Suður-Dakóta. Höggmyndinni, sem
sýnir forsetana George Washing-
ton (1732-1799), Thomas Jefferson
(1743-1826), Theodore Roosevelt
(1858-1919) og Abraham Lincoln
(1809-1865), var ætlað að endur-
spegla 150 ára sögu Bandaríkjanna.
Hvert andlit er um átján metra hátt.
Verkið nær í heild yfir 5,17 ferkíló-
metra og er 1.745 metra yfir sjávar-
máli. Hafist var handa við það árið
1927 og tók því fjór-
tán ár að ljúka því.
Eitthvað var um slys
en enginn lést.
Fjallið er umdeilt,
ekki síst meðal indí-
ána þar sem Banda-
ríkin tóku landið af
Lakota-ættflokknum eftir Sioux-stríð-
ið 1876-77. Lakota-ættflokkurinn
taldi fjallið heilagt. Upphaflega hét
það Lakota Sioux eða sex forfeður.
Það var endurnefnt árið 1885.
Eitt af upphaflegum markmið-
um með höggmyndinni var að auka
ferðamennsku í Black Hills-fjallgarð-
inum. Það hefur tekist enda koma
um tvær milljónir manna árlega til
að virða undrið fyrir sér.
ÞETTA GERÐIST: 30. OKTÓBER 1941
Forsetarnir fjórir tilbúnir
„Ráðstefnan er helguð minningu starfsfélaga okkar, Sig-
urðar Th. Rögnvaldssonar jarðeðlisfræðings, sem lést í bíl-
slysi fyrir tíu árum,“ segir Steinunn S. Jakobsdóttir, verk-
efnisstjóri jarðváreftirlits Veðurstofu Íslands sem held-
ur utan um alþjóðlega jarðskjálftaráðstefnu sem haldin er
í dag. Sigurður var mjög virkur í jarðskjálftarannsóknum
á Íslandi en á ráðstefnunni í dag verður sjónum beint sér-
staklega að jarðskjálftaspárannsóknum.
Árið 2009 markar tímamót í jarðskjálftarannsóknum.
„Í ár eru liðin hundrað ár frá því fyrsti jarðskjálftamælir-
inn var settur upp á Íslandi. Þá eru þrjátíu ár síðan þenslu-
mælingar hófust á landinu, auk þess sem net samfelldra
GPS-mælinga á Íslandi er tíu ára,“ segir Steinunn og bætir
við að auk þess séu tuttugu ár síðan fyrsta stöðin var sett
upp í sjálfvirka jarðskjálftakerfinu, sem kallast SIL.
Á ráðstefnunni verða yfirlitsfyrirlestrar um jarð-
skjálftafræði og þróun jarðskjálftaspárrannsókna. „Við
byrjum daginn snemma enda verður þetta langur dagur.
Fimmtán fyrirlestrar, innlendir og erlendir, verða flutt-
ir og í hléum verður skoðaður fjöldi veggspjalda sem sett
hafa verið upp,“ segir Steinunn og bætir við að margir
þeirra sem komi að ráðstefnunni hafi unnið með Sigurði á
sínum tíma.
En hvað er að gerast í jarðskjálftarannsóknum í dag?
„Markmiðið er að skilja eðlisfræðina að baki jarðskjálft-
um og þau ferli sem leiða til stærri jarðskjálfta. Við vinn-
um einnig að því að koma þessari þekkingu inn í hugbún-
að sem mun hjálpa okkur að fylgjast með jörðinni. Þannig
getum við metið aðstæður og gert okkur grein fyrir því
hvað er um að vera,“ segir Steinunn.
Innt eftir því hvernig hún sjái greinina fyrir sér í fram-
tíðinni svarar Steinunn: „Eitt af framtíðarmarkmiðunum
er að geta spáð fyrir um jarðskjálfta en það getum við al-
mennt ekki í dag.“ Hún tekur þó fram að í einstaka tilfell-
um hafi verið hægt að segja til um jarðskjálfta og nefnir
seinni Suðurlandsskjálftann árið 2000 sem dæmi.
„Við vonumst til að verða sífellt betri í spám með því að
skilja ferlana,“ segir Steinunn. Hún telur það ekki fjar-
lægan draum enda megi draga lærdóm af veðurfræðinni.
„Fyrir tuttugu árum voru veðurspár ekki mjög nákvæmar
en þær eru mun betri í dag. Með því að vinna ötullega að
því að skilja ferlana og eftir því sem tölvurnar verða betri
aukast líkurnar á því að við getum sagt fyrir um skjálfta.“
Ráðstefnan sem Veðurstofa Íslands heldur í samvinnu
við Háskóla Íslands, Háskólann á Akureyri, Háskólann í
Reykjavík, Íslenskar orkurannsóknir, Uppsalaháskóla og
fleiri er haldin í Víðgelmi í Orkugarði að Grensásvegi 9 í
dag frá klukkan 8.30 til 18. Hún er öllum opin en þátttöku-
gjald er 5.000 krónur. Nánari dagskrá má nálgast á vef
Veðurstofunnar www.vedur.is solveig@frettabladid.is
VEÐURSTOFA ÍSLANDS: STENDUR AÐ JARÐSKJÁLFTARÁÐSTEFNU Í DAG
Framtíðardraumurinn að geta
spáð fyrir um jarðskjálfta
VERKEFNISSTJÓRI JARÐVÁREFTIRLITS Steinunn S. Stefánsdóttir jarðeðl-
isfræðingur setur í dag jarðskjálftaráðstefnu í Víðgelmi í Orkugarði á
Grensásvegi. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
timamot@frettabladid.is
Þökkum samúð og hlýhug við andlát og
útför eiginkonu minnar, móður, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
Halldóru Sigurlaugar
Jónsdóttur
Hverfisgötu 31, Siglufirði.
Þökkum starfsfólki Heilbrigðisstofnunar Siglufjarðar
fyrir einstaka umönnun og vinum og vandamönnum
fyrir trygga vináttu.
Jóhannes Þórðarson
Soffía Guðbjörg Jóhannesdóttir Ólafur Kristinn Ólafs
Ólafía Margrét
Guðmundsdóttir
Halldóra Sigurlaug Ólafs, Magnea Jónína Ólafs,
Jóhannes Már Jónsson, Kjartan Orri Jónsson,
Margrét Finney Jónsdóttir og Eydís Ósk.
Systir okkar, móðir, tengdamóðir, amma
og langamma,
Hákonía Jóhanna
Gísladóttir
síðast til heimilis á Hrafnistu við Laugarás,
lést mánudaginn 19. október. Jarðarförin fer fram í
kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Guðmundur Gíslason
Gunnar Gíslason
Gísli Gíslason
Gísli Karlsson
Kristjana Karlsdóttir Björn Pálsson
Sveinn Karlsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför elskulegs frænda
okkar,
Jóhannesar
Þorbjarnarsonar
(Jóa á veggjum), Borgarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Dvalarheimilis aldraðra
Borgarnesi fyrir einstaklega góða umönnun.
Systkinabörn og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
Hákon Bjarnason
frá Ísafirði,
andaðist þriðjudaginn 27. október. Jarðsungið verður
frá Ísafjarðarkirkju laugardaginn 7. nóvember kl. 14.00.
Erna S. Hákonardóttir Herbein Fjallsbak
Hermann Hákonarson Sigurveig Gunnarsdóttir
Stefán Hákonarson Elín Árnadóttir
Konný Hákonardóttir Heiðar Jóhannesson
Bjarni Hákonarson Guðríður Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
75 ára afmæli
Jónína Stella
Kristinsdóttir
Stella tekur á móti gestum laugar-
daginn 31. 10. í Sjálfsbjargarhúsinu
Hátúni 12 milli klukkan 15 og 16.
Fyrirtækið verður LOKAÐ föstudaginn
30. október vegna útfarar okkar elskulegu
Ólafíu Ásbjarnardóttur
(Lollýjar)
Okkar ástkæri eiginmaður, faðir, tengda-
faðir og afi,
Kjartan I. Jónsson
Sóleyjarrima 15, Reykjavík,
sem andaðist föstudaginn 23. október síðastliðinn,
verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju föstudag-
inn 30. október kl. 13.00. Blóm og kransar afþakk-
aðir en þeim sem vildu minnast hans er bent á
Krabbameinsfélag Íslands.
Ingibjörg Ámundadóttir
Árni Hrafnsson Birna Guðjónsdóttir
Jóhann Berg Kjartansson Lotte Munch
Margrét Björk Kjartansdóttir Stefán H. Birkisson
og afabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma, langamma og systir,
Guðlaug Guðjónsdóttir
áður til heimilis Njörvasundi 14,
Reykjavík,
lést á Hrafnistu, Reykjavík, mánudaginn 26. október.
Jarðarför auglýst síðar.
Þuríður V. Lárusdóttir Ari Leifsson
Þórdís Lárusdóttir Rúnar Lárusson
Erla Ósk Lárusdóttir
Jóhannes I. Lárusson Guðrún Reynisdóttir
Sveinbjörn Lárusson Arnfríður L. Guðnadóttir
Halla Jörundardóttir
barnabörn, barnabarnabörn og systkini.
Tilkynningar um merkis atburði, stórafmæli og
útfarir má senda á netfangið timamot@frettabladid.is.
Auglýsingar sendist á auglysingar@frettabladid.is
eða hringja í síma 512 5000.