Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 64
30. október 2009 FÖSTUDAGUR
helgi á Korputorgi um helgina.
Kári litli er bara hræddur við eitt:
KLÓSETTSKRÍMSLIÐ!
Bráðsniðug saga fyrir alla krakka
sem þurfa stundum að fara á klósettið.
Áhöfnin á
Halastjörnunni
Gylfi Ægisson, Hemmi Gunn og Ari Jónsson
ásamt ARIZONA - um helgina.
Meira fjör og fíflagangur finnst ekki
Aftur vegna fjölda áskoranna verður
30. og 31. október.
Mikilvæg og merk ævisaga
Bókmenntir ★★★★★
Jón Leifs - líf í tónum
Ævisaga eftir Árna Heimi Ingólfs-
son
Mál og menning
Var nauðsynlegt að taka saman
nýja ævisögu Jón Leifs? Það eru
tíu ár síðan sænsk ævisaga kom
hér út í íslenskri þýðingu. Saman-
burður á henni og nýrri ævisögu
eftir Árna Heimi leiðir í ljós að sú
sænska er vanbúið verk, meðan
Árni Heimir er að skila ákaflega
vönduðu verki, ítarlegra yfir-
liti með miklum samtímalegum
heimildum, ítarlegum greining-
um á helstu verkum Jóns sem
eru settar fram á mannamáli og
hljóta að opna öllum sem forvitn-
ir eru að kynnast þessum merka
íslenska tónsmið nýja gátt að
verkum hans. Og þannig er ævi-
sagan eftir Árna tímamótaverk.
Höfundurinn er ekkert að
draga fjöður yfir þá stóru bresti
sem voru í framagirni og metnaði
Jóns. Hann klæddi óbilandi sjálfs-
kröfu sína í undarlegt stórlæti
fyrir hönd íslensku þjóðarinn-
ar, einhverja mikilmennskubilun
sem fylgdi okkur lengstaf síðustu
öld og inn í þessa. Ímyndarnefnd-
in sem Halldór Ásgrímsson skip-
aði og það sögulega plagg sem frá
henni kom hlýtur að verðskulda
sérstakan kafla þegar einhver
tekur sig til og skilgreinir þetta
mikillæti okkar smáu þjóðar, þar
verður líka vænn kafli um Jón.
Ekki það að sú stóra hugmynd
um mikilfengleik íslensku þjóð-
arinnar og mikilvægi norrænnar
menningar sem hér var varðveitt
hafi ekki orðið okkur að gagni:
stórar hugmyndir Jóns fleyttu
okkur fram í ýmsum efnum. Og
þá er ekki það tekið til sem er þó
mest: Jón er gríðarlega mikilvæg-
ur stólpi í tónbókmenntum Vest-
urlanda og verður það áfram.
Árni rekur samt hvað sá árang-
ur kostaði hann og alla sem næst
honum stóðu. Verkið er þannig
öðrum þræði harmleikur og Árni
er ekkert að skafa af mikilvægum
niðurstöðum þó hann dæmi Jón af
mikilli kurteisi og oft ríkulegum
skilningi. Hann hefur í áralangri
vinnu sinni með gögn um ævi
Jóns lært að meta bæði kosti tón-
skáldsins og galla. En fórnirnar
sem Jón verður að færa eru stór-
ar. Örlög barna hans eru hörmu-
leg. Þær fórnir verða síðan hvati,
krafa um sköpun sem við getum
greint í verkum hans í dag.
Allur frágangur við verkið er
til fyrirmyndar, heimildaskrár,
athugasemdir við tilvitnanir,
verkaskrá, nafnaskrá: það var
helst að ég saknaði hljóðritaskrár.
Bókin er vel myndskreytt þótt
hugmyndir um veldi tengdafólks
Jóns verði mun skýrari af mynd
í sænsku ævisögunni sem sýnir
verksmiðju fjölskyldu Annie,
fyrstu eiginkonu hans.
Árni getur verið afar ánægð-
ur með sitt verk sem hlýtur að
teljast eitt það merkilegasta sem
komið er út á þessu ári og verð-
ur um langan aldur lykilverk um
ævi þessa merkilega en breyska
manns. Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Ítarleg og vönduð ævi-
saga um jöfur í íslenskri tónsköpun.
BÓKMENNTIR Árni Heimir hefur skilað
afbragðsverki um merkilegt líf Jóns Leifs
og hans örlagaríku tíma.
MYND FRÉTTABLAÐIÐ
TÓNLIST Jón Leifs var brautryðjandi
í tónsköpun á Íslandi og átti erindi
við allan heiminn: nokkur verka hans
eru enn óflutt og hafa ekki verið
hljóðrituð.
Á morgun koma sunnlenskir karlakórar saman í
Íþróttahúsi Sólvallaskóla á Selfossi og halda sam-
söng og syngja einnig hver fyrir sig. Þetta eru
Karlakór Selfoss, Karlakór Rangæinga og Karla-
kór Hreppamanna. Til stóð að Jöklar frá Höfn legðu
í púkkið en þeir áttu ekki heimangengt. Verkefna-
skráin er fjölbreytileg en öll lögin sem flutt verða
eru eftir sunnlenska höfunda. Stjórnendur eru þau
Edit Molnar sem stjórnar Hreppamönnum, Guð-
jón Halldór Óskarsson þeim Rangæingum og Loft-
ur Erlingsson Selfyssingum. Með leika Miklos
Dalmay, Stefán Þórhallsson, Hedi Maroti og Jörg
Sonderman.
Dagskráin hefst kl. 16.
Kóramót á Selfossi
KARLAKÓR SELFOSS Tekur á móti gestum.