Fréttablaðið - 30.10.2009, Qupperneq 66
38 30. október 2009 FÖSTUDAGUR
folk@frettabladid.is
Lambaréttur og desert
kr. 3.100
Fiskréttur og desert
kr. 2.600
BORÐAPANTANIR S: 544 4040
UM HELGINA KYNNINGARTILBOÐ
30.10.09 - föstudagskvöld
SIGGI HLÖ OG VALLI SPORT
31.10.09 - laugardagskvöld
VINIR VORS OG BLÓMA
www.spot.is
bar - bistro
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Föstudagur 30. október 2009
➜ Tónleikar
12.15 Margrét Árnadóttir sellóleikari
og Nína Margrét Grímsdóttir píanó-
leikari flytja verk eftir Mendelssohn og
Beethoven á tónleikum í Gerðubergi .
Enginn aðgangseyrir.
22.00 Hljómsveitin The Viking Giant
Show verður með tónleika á Kaffi
Rósenberg við Klapparstíg.
22.30 Hljómsveitirnar Nögl, Missing,
Two Tickets To Japan og Dynamo Fog
verða á Sódómu Reykjavík.
➜ Sýningar
Handverk og hönnun stendur fyrir
sýningu/kynningu á íslensku hand-
verki, listiðnaði og hönnun í Ráðhúsi
Reykjavíkur. Opið fös. kl. 10-19, lau. og
sun. kl. 12-18 og mán. kl. 10-19. Enginn
aðgangseyrir.
➜ Gjörningar
Listasafn Reykjavíkur og Gjörningalista-
hátíðin Sequences standa fyrir dagskrá
í Hafnarhúsinu við Tryggva-
götu, 30. okt.-7. nóv.
20.00 Opnunarmóttaka
20.30 Magnús Pálsson og
Nýlókórinn flytja gjörninginn
Taðskegglingar.
➜ Leikrit
20.00 Víðir Guðmundsson flytur verkið
„Brúðarræninginn“ (21 manns saknað)
í Landnámssetrinu við Brákarbraut í
Borgarnesi.
20.00 í Hafnarfjarðarleikhúsinu við
Strandgötu verður sýnt verkið „Fyrir
framan annað fólk“ eftir Kristján Þórð
Hrafnsson.
20.00 Leikfélag Ölfuss sýnir gaman-
leikritið „Maður í mislitum sokkum“
eftir Arnmund Backman. Sýningin fer
fram í Versölum í Þorlákshöfn.
➜ Opnanir
18.00 Í Lost Horse galleríi við Vita-
stíg 9a, verður opnuð sýning Anitu
Wernstrom, Line Ellegaard, Malin
Stahl, Pernille Leggat Ramfelt og Sofiu
Dahlgren.
➜ Dansleikir
Siggi Hlö og Valli Sport verða á Spot
við Bæjarlind í Kópavogi.
Sixties verða á Players í Kópavogi. Júlla-
disko spilar frá kl. 22.
Útgáfuhóf var haldið í bóka-
búð Máls og menningar á
Laugavegi til að fagna nýrri
bók veðurfræðingsins Sig-
urðar Þ. Ragnarssonar og
eiginkonu hans Hólmfríðar
Þórisdóttur.
Á meðal gesta var fyrrverandi
samstarfsmaður Sigurðar hjá Stöð
2, fréttamaðurinn Haukur Holm,
en báðum var þeim vikið úr starfi
á dögunum. Einnig mætti í hófið
Sævar Jóhannesson sem var sömu-
leiðis rekinn úr starfi yfirmanns
grafíkdeildar hjá Stöð 2. „Þetta
voru miklir fagnaðarfundir,“ segir
Siggi. „Þetta var eins og fjölskyld-
an væri að hittast enda erum við
búnir að vinna saman lengi.“
Haukur notaði tækifærið og
smellti vænum kossi á Sigga, sem
hafði gaman af.
„Það var rembingskoss þegar við
hittumst og af stærstu gerð en
hann var þurr hins vegar,“ segir
Siggi og hlær. Hann segist vera í
skýjunum þessa dagana, enda hafa
viðtökurnar við bókinni verið mjög
góðar. „Ég get ekki annað en brosað
framan í veröldina. Þetta er óvenju-
leg bók og það þarf svolitla stund til
að átta sig á henni. Ég er að reyna
að auka læsi fólks á veður og kenna
því að gera veðurathuganir án þess
að hafa mikið af tækjum og tólum.
Þarna er veður- og náttúruannáll
og líka veðurdagbók. Þar treysti ég
á að eldri kynslóðin kenni þeim sem
eru yngri.“ freyr@frettabladid.is
FAGNAÐARFUNDIR Í ÚTGÁFUHÓFI
REMBINGSKOSS Haukur Holm smellti rembingskossi á Sigga storm í útgáfuhófinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Siggi ásamt eiginkonu sinni Hólmfríði
Þórisdóttur sem vann bókina með
honum.
Pétur Már Ólafsson og Bjarni Þorsteins-
son hjá Veröld sem gefur Íslandsveður
út.
Lilja Hrönn og Helga Guðrún, systur-
dætur Hólmfríðar Þórisdóttur, mættu í
hófið.
> VILL EKKI GIFTAST
Söngkonan Shakira segist aldrei
ætla að gifta sig, því hún
myndi ekki þola það að fjöl-
miðlar færu að velta sér upp
úr skilnaðinum ef hjóna-
bandið entist ekki. Shakira
hefur verið á föstu í níu ár
og ætlar að fjölga mannkyn-
inu á næstunni – en hjóna-
band kemur ekki til greina.
Söngvarinn Bono segist hafa
orðið fyrir vonbrigðum með við-
brögðin við nýjustu plötu U2,
No Line on the Horizon. Plat-
an hefur selst í um 1,3 milljón-
um eintaka síðan hún kom út í
mars, sem er lélegasti árangur
U2-plötu í rúman áratug. Síð-
asta plata, How to Dismantle
an Atomic Bomb, hefur selst
í 3,2 milljónum eintaka og All
That You Can‘t Leave Behind
í 4,3 milljónum. Bono segir að
ekki hafi verið lögð áhersla á
að semja grípandi popplög fyrir
plötuna. „Okkur fannst plötu-
formið eiginlega vera að deyja
út. Við vildum leggja áherslu á
heildina og skapa flott andrúms-
loft með byrjun, miðju og endi.
Kannski er of erfitt fyrir fólk
að melta þetta sem hefur alist
upp við eintómar poppstjörn-
ur.“ Tónleikar U2 í Kaliforníu á
sunnudagskvöld sem voru send-
ir út beint á Youtube-vefnum
heppnuðust mjög
vel. Sveitin hefur
tilkynnt nýja
tónleikaferð um
Norður-Ameríku
sem hefst í júní þar
sem spilað verður
í Miami, Toronto,
New York og víðar.
Bjóst við
meiri sölu
„Við ákváðum þetta í fyrradag: Ég og Bubbi
Morthens ætlum að semja saman lag og texta í Eur-
ovision-forkeppnina,“ segir Óskar Páll Sveinsson,
höfundur „Is It True“ sem Jóhanna Guðrún söng
í annað sæti Eurovision í maí. Óskari var einum
boðið að semja lag og fer það sjálfkrafa í for-
keppnina með fjórtán lögum sem nú hafa verið
valin úr 150 innsendum lögum.
„Við erum ekkert farnir að spá mikið í
þetta. Ætlum bara að velja flytjanda fyrst og
semja svo lag og texta með hann í huga. Bubbi
ætlar ekki að syngja þetta sjálfur, hann er alveg
ákveðinn í því.“
Bubbi hefur hingað til ekki verið þekktur fyrir
Eurovision-aðdáun sína. Þvert á móti: Hann hefur
verið algjörlega á móti keppninni og fullyrti meðal
annars í einum forvalsþættinum 2007 að hann
myndi aldrei taka þátt í keppninni. Óskar Páll segir
að gamli hafi snúist í vor. „Hann hringdi í mig dag-
lega til að fá fréttir og sýna stuðning. Svo hélt hann
Eurovision-partí þegar við lentum í öðru sæti í
Rússlandi og gerðist einlægur aðdáandi keppn-
innar í kjölfarið.“
Lögin fjórtán sem etja kappi við lag Bubba
og Óskars Páls eru eftir Albert Guðmann
Jónsson, Birgi Jóhann Birgisson, Bryndísi
Sunnu Valdimarsdóttur og Daða Georgsson,
Grétar Sigurbergsson, Halldór Guðjónsson,
Harald G. Ásmundsson, Harald V. Svein-
björnsson, Heru Björk Þórhalls-
dóttur og Örlyg Smára, Jóhann-
es Kára Kristinsson, Matthías
Stefánsson, Rögnvald Rögn-
valdsson, Sigurjón Brink og
Steinarr Loga Nesheim.
Forkeppnin hefst 9. jan-
úar og það kemur í ljós 6.
febrúar hvaða lag keppir
fyrir Íslands hönd í Noregi í
maí á næsta ári. - drg
Bubbi Morthens í Eurovision
NÁGRANNAR VIÐ MEÐALFELLS-
VATNIÐ Óskar Páll og Eurovision-
aðdáandinn Bubbi Morthens
semja saman Eurovisionlag í
keppnina á næsta ári.
BONO Nýjasta plata U2
hefur aðeins selst í 1,3
milljónum eintaka.