Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 30.10.2009, Blaðsíða 68
40 30. október 2009 FÖSTUDAGUR Breska X-Factor stjarnan Leona Lewis neitaði Chace Crawford, úr þáttunum Gossip Girl, um koss í nýju tónlistarmynd- bandi sínu. Lewis segist ekki vilja kyssa aðra karl- menn af tillitssemi við kærasta sinn, Lou Al-Chamaa. „Leikstjórinn vildi kossasenu í myndbandinu en ég þvertók fyrir það. Það hefði einfaldlega orðið of vand- ræðalegt því við erum vinir. Hann er mjög myndarlegur, lítið bara á hann! En ég hef engan áhuga á honum þannig. Og það væri ekki rétt- látt gagnvart Lou ef ég væri að kyssa aðra karlmenn,“ sagði söngkonan. Myndbandið sem um ræðir er fyrir smáskífulagið I Will Be af nýrri plötu söngkonunnar. Kyssir aðeins kærastann Samkvæmt tímaritinu Skymag finnst leikkonunni Megan Fox ekk- ert að því að nota vöxt sinn sér til framdráttar. „Ég hef alltaf hlegið að leikkonum sem kvarta undan því að þurfa að spila með kyn- þokka sinn fyrst á meðan þær eru að reyna að skapa sér nafn. Hvern eru þær að reyna að blekkja? Kyn- þokki er lykillinn að því að fá fjöl- miðlaathygli og geta í kjölfarið valið betri hlutverk næst,“ sagði kynbomban, sem hefur svo sannar- lega nýtt kynþokka sinn til að verða sér úti um athygli. Kynþokki er lykillinn KYNÞOKKAFULL Megan Fox segir kyn- þokka vera lykilinn að velgengni. Tónlist ★★★ Swordplay & Guitarslay Retrön Metalkanar 1983 Reykjavíkurtríóið Retrön hefur starfað síðan 2004 og þetta er fyrsta platan. Hljómsveitin hefur legið yfir henni og látið hana malla. Bandið er þétt og kraftmikið og spilar dýflissumetal sem stundum rennur út í átta-bita tölvuleikjahljóð. Hið frábæra umslag og nöfn laganna (dæmi: „Toll of forgotten temples“) bera þess merki að meðlimirnir hafa annaðhvort gaman af hlutverka- leikjum, eða þykir gaman að gera grín að þeim. Þetta eru Íslendingar að þykjast vera Kanar sirka 1983 að spila metal úti í bílskúr og leika sér í tölvuleikjum í pásum. Þungarokki og tölvuhljóðum er þó að mestu haldið aðskildum, en sterkara og sérkennilegra samblandi hefði mátt ná með því að mixa þessu stífar saman. Sveitin trukkast í gegnum sex ósungin lög af öryggi og festu og fer ekki að syngja fyrr en í lagi númer sjö, „Slow me“. Það er flottasta lagið og minnir á Dinosaur Jr. í gruggviðleitni sinni. Einnig er sungið í næsta lagi, „Helgrindur“, en svo er trukkast í mark í tveimur lögum enn. Á köflum er þessi plata frábær, á öðrum köflum þreytandi hjakk, en allt í allt sýnir hún þétt band að gera það sem það fílar. Útkoman yrði eflaust geðveik ef þessir fagmenn myndu reyna að búa til tónlist sem skildi meira eftir sig, sterkari melódíur og skarpari riff. Kemur það ekki bara næst? Dr. Gunni Niðurstaða: Kraftmikil plata sem skilur lítið eftir sig. Ævisaga Vilhjálms Vil- hjálmssonar söngvara eftir Jón Ólafsson kemur út um miðjan nóvember. Jón kann vel við sig í þessu hlutverki. „Ég get alveg hugsað mér að skrifa meira í nánustu framtíð. En það verður að vera eitthvað sem heillar mig. Ég er þó ekkert farinn að spá í framhaldið. Mér fannst þetta verk- efni eiga vel við mig. Það er gaman að hitta fólk og spjalla,“ segir Jón Ólafsson, sem hefur skrifað ævi- sögu Vilhjálms Vilhjálmssonar, Söknuður. „En svo á auðvitað alveg eftir að koma í ljós hversu góður penni ég er. Ég hef búið mig andlega undir að verða slátrað af gagnrýn- endum frá því ég byrjaði að skrifa bókina.“ Von er á ævisögunni um miðj- an nóvember. Jón segist ekki hafa verið forfallinn aðdáandi Vilhjálms þegar ævisagnaritunin hófst. „Ég var samt hrifinn af mörgu, eins og Hana nú-plötunni til dæmis, en ég er orðinn mun meiri aðdáandi núna eftir bókaskrifin. Ég vissi takmark- að um hann í byrjun, enda er lítið til af rituðum heimildum, viðtöl- um og slíku. Svo bjó hann í Lúxem- borg í fimm ár. Ævisagan er byggð upp á samtölum við fólk sem hann umgekkst. Mér telst til ég hafi talað við á þriðja hundruð manns. Flesta hitti ég augliti til auglitis en aðra stóð ég í bréfaskriftum við.“ Sú mynd af Vilhjálmi sem Jón hefur er að hann hafi verið „magnaður náungi sem lét sér fátt óviðkomandi“. „Það eru margar frábærar sögur í bókinni og hann átti mjög viðburðaríka ævi. Bókin er hátt í 300 blaðsíður þótt Vilhjálmur hafi ekki orðið nema 32 ára. Hann var mjög leit- andi og forvitinn um flest. Hann var líka gömul sál.“ Margt athyglis- vert kemur fram um söngvarann, meðal annars að hann var ákafur lesandi vísindaskáld- sagna, var með próf í dáleiðslu, lagði stund á r úss - nesku og svahílí og tók virkan þátt í alþjóð- legri réttindabaráttu flug- manna. Jón grefur meira að segja upp „nýtt“ lag með Vilhjálmi, „Everybody‘s talking“ úr Midnight cowboy sungið á íslensku, lag sem kom út á hljómplötu Söngflokks Eiríks Árna árið 1976. „Maggi Kjartans stjórnaði upptökum á plöt- unni og fékk Vilhjálm til að koma í hljóðverið og syngja einsöng í lag- inu. En Vilhjálmur vildi einhverra hluta vegna ekki að nafn sitt kæmi fram á plötunni.“ Jón segir Vilhjálm ekki hafa verið óreglumann og því sé lítið um sukksögur í bókinni. „En hann var auðvitað í þessum músik- bransa og flugmaður þar að auki, svo það hefur örugglega oft verið til bjór í ísskápnum hjá honum. Hann kom ótrúlega miklu í verk á skammri ævi auk þess að vera sífellt í háloftunum. Tími til sukks var því af skornum skammti. En hann var svo sem enginn Jesús Kristur,“ segir höf- undurinn. drgunni@frettabladid.is Hafði ekki tíma til að sukka GAMAN AÐ HITTA FÓLK OG KJAFTA VIÐ ÞAÐ Jón Ólafsson segist hafa verið kominn með „duglegan vísi að alskeggi“ þegar hann skrifaði ævisöguna um Vilhjálm. OPIÐ ALLA DAGA FRÁ 10 - 18 VERIÐ VELKOMIN OG NJÓTIÐ FRÁBÆRS ÚTSÝNIS OG GÓÐRA VEITINGA Í VEITINGASAL PERLUNNAR Sími: 561-4114 Frá 30. október til 22. nóvember G Í F U R L E G T Ú R VA L A F Ö L L U M T E G U N D U M T Ó N L I S TA R R O K K - P O P P - K L A S S Í K - B L Ú S - K Á N T R Ý - S LÖ K U N A R T Ó N L I S T- Þ Ý S K , S K A N D I N AV Í S K O G Í R S K T Ó N L I S T O G A Ð S J Á L F S Ö G Ð U A L L I R N Ý J U S T U T I T L A R N I R Á B ET R A V E R Ð I E N Þ Ú ÁT T A Ð V E N J A S T Í FULLUM GANGI Í PERLUNNI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.