Fréttablaðið - 30.10.2009, Side 78
50 30. október 2009 FÖSTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. mælieining á spennu rafstraums,
6. fisk, 8. heldur brott, 9. hvíld, 11.
golf áhald, 12. tónstigi, 14. hlutdeild,
16. skst., 17. tugur, 18. sprækur, 20.
tveir eins, 21. dugnaður.
LÓÐRÉTT
1. loga, 3. ógrynni, 4. nennuleysi, 5.
þrí, 7. niðurlag, 10. saur, 13. farfa, 15.
ryk, 16. neitun, 19. ónefndur.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. volt, 6. ál, 8. fer, 9. lot, 11.
tí, 12. skali, 14. aðild, 16. no, 17. tíu,
18. ern, 20. ff, 21. iðni.
LÓÐRÉTT: 1. báls, 3. of, 4. letilíf, 5.
trí, 7. lokaorð, 10. tað, 13. lit, 15. duft,
16. nei, 19. nn.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1 Ólafs Thors.
2 Peshawar.
3 Katrín Ómarsdóttir.
„Mig hefur alltaf langað til að eiga
þessa síðu. Þegar hún var rosalega
vinsæl og fræg langaði mig alltaf
til að eiga hana,“ segir uppistand-
arinn Rökkvi Vésteinsson. Hann
hefur keypt lénið að tenglasíð-
unni Tilveran.is og ætlar að opna
hana með pompi og prakt á næstu
dögum. „Þetta var fyrsta tengla-
síðan á Íslandi og langstærst í
langan tíma. Síðan fór hún að dala
og ég reyndi að kaupa hana en átti
ekki nógan pening,“ segir Rökkvi.
Tilveran.is var eigu Ísars Loga
Arnarsonar sem átti tónlistarblað-
ið Undirtóna. Eftir að síðan hafði
legið niðri í nokkur ár reyndi
Rökkvi aftur að kaupa hana í
fyrra og þá varð honum að ósk
sinni. Kaupverðið var 200 þúsund
krónur. „Ef þú kaupir á 200 þús-
und kall ertu viss um að þú eyðir
vinnu í verkefnið. Ég sé engan veg-
inn eftir því,“ segir Rökkvi, sem
starfar sem vefhönnuður. Hægt
verður að skoða myndbandsbrot
á síðunni sjálfri án þess að verða
vísað á aðra síðu, sem er nýjung.
Einnig verður hægt að skoða ýmsa
skemmtilega tengla, bæði innlenda
sem erlenda.
Rökkvi segir að það sé tvímæla-
laust markaður fyrir svona síðu í
dag. „Tenglasíður eru mjög vinsæl-
ar, sérstaklega á Íslandi. Þær hafa
svolítið dalað eftir að Facebook og
annað kom. En það er orðið miklu
vinsælla að skoða vídeó á Netinu,
sérstaklega eftir að Youtube jók
gæðin á vídeóunum hjá sér.“ - fb
Tilveran.is opnuð á nýjan leik
STÓRHUGA Rökkvi Vésteinsson ætlar
að opna hina endurbættu heimasíðu
Tilveran.is. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
„Kenneth Máni meinar vel og er
góður strákur sem er auðvelt að
plata í innbrot á alls kyns for-
sendum. Hann er hins vegar allt-
af gæinn sem situr í súpunni og
endar einn í handjárnum inni í
lögreglubíl á meðan allir hinir
sleppa,“ segir Björn Thors, sem
farið hefur á kostum í hlutverki
áðurnefnds Kenneths í Fanga-
vaktinni. Kenneth hefur stimplað
sig það rækilega inn að samkvæmt
netkosningu á vísir.is er hann far-
inn að skyggja á hina heilögu
þrenningu, þá Ólaf Ragnar, Georg
og Daníel. Björn segist hafa fengið
mikil viðbrögð við þessum karakt-
er, fólk stoppi hann úti á götu og
hringi í hann um miðjar nætur til
að ræða hann aðeins frekar. „Ég er
nú búinn að vera leikari í nokkur
ár, svo leikur maður einn vitleys-
ing og það er eins og maður hafi
aldrei gert neitt áður.“
Björn vill þó ekki eigna sér heið-
urinn einn. Kenneth sé fyrst og
fremst barn handritshöfunda þátt-
anna. „Nafngiftin er náttúrulega
snilld, hún segir raunar allt sem
segja þarf,“ segir Björn og bætir
því við að Vaktarhópurinn svo-
kallaði leggi mikið upp úr spuna-
vinnu. „Þegar ég mætti á minn
fyrsta samlestur var handritið til
í grófum dráttum. Svo leggja allir í
púkkið, maður kynnist hinum per-
sónunum og ekki síst manns eigin.
Það er því mikil hugmyndavinna
sem liggur að baki hverri senu,“
útskýrir Björn. Miklar pæling-
ar liggja því að baki persónun-
um og hver og ein á sér sína sögu.
„Þannig er til að mynda ágæt saga
á bak við hárið hans. Kenneth var
sko með hanakamb, mjög töff han-
a kamb sem var aflitaður. En svo
var hann handtekinn og það er
auðvitað engin hárgreiðslustofa á
Litla-Hrauni þannig að kamburinn
er að vaxa úr.”
Kenneth er einn helsti meðreið-
arsveinn Georgs Bjarnfreðarsonar
á Litla-Hrauni og þar sem Georg er
ákaflega ýkt persóna þurfti Björn
að feta hárfínan milliveg í atrið-
unum á milli þeirra. „Maður má
ekki gera of mikið til að skyggja
á en heldur ekki of lítið þannig að
maður týnist bara. Annars er Jón
[Gnarr] svo ofboðslega flinkur
leikari og les mótleikara sinn svo
vel að þetta var aldrei neitt mál.“
freyrgigja@frettabladid.is
BJÖRN THORS: FER Á KOSTUM SEM KENNETH MÁNI Í FANGAVAKTINNI
Fær símhringingar að næt-
urlagi vegna Fangavaktar
VINSÆL PERSÓNA Kenneth Máni hefur slegið í gegn hjá áhorfendum Fangavaktarinnar og slær meðal annars hinni heilögu
þrenningu við í netkosningu á vísir.is. Kenneth er að sögn Björns Thors velmeinandi strákur sem yfirleitt lendir þó í súpunni á
meðan allir aðrir sleppa. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
„Mér finnst ótrúlega gott að
fara á Culiacan. Þar fæ ég mér
quesadillas með kjúklingi og
smá nachos til hliðar.“
Erna Hrönn Ólafsdóttir söngkona
Sópransöng-
konan Björg
Þórhallsdóttir
mun ekki
syngja á
An field
Road,
heimavelli
knatt-
spyrnu-
liðsins Liverpool, á þessu ári eins og
vonir stóðu til. Björg átti að syngja
einkennislag liðsins, You‘ll Never
Walk Alone, og einnig stóð til að
hún myndi snæða kvöldverð með
spænska knattspyrnustjóranum
Rafael Benitez eftir leikinn. Málið
hefur verið sett í biðstöðu þangað
til á næsta ári. Sú niðurstaða er
væntanlega reiðarslag fyrir Höskuld
Þórhallsson, alþingismann og
bróður Bjargar, en eins og kom fram
í Fréttablaðinu á síðasta ári er hann
stuðningsmaður Liverpool og hafði
hugsað sér að komast í návígi við
átrúnargoð sín við þetta tækifæri.
Tveir tónleikahaldarar bítast hat-
rammlega um áhorfendur og vini
á Facebook. Annars vegar Samúel
Kristjánsson sem skipuleggur
Frostrósatónleikana, og hins vegar
sjálfur Björgvin Halldórsson
sem undirbýr nú jóla-
tónleika sína af miklum
krafti. Stutt er síðan
Björgvin greindi frá því
að sínir tónleikar ættu
3.600 vini á Facebook,
sem þykir ansi gott.
Frostrósirnar hafa
engu að síður
tekið fram úr Bo
á örskömmum
tíma því vinir þeirra eru orðnir 3.700
talsins á aðeins átta dögum. Samúel
hefur því vinninginn enn sem komið
er. Þó skal spurt að leikslokum í
þessu einvígi.
Óheppnin elti sjónvarpsmanninn
og pókerspilarann Auðun Blöndal
á röndum á pókermóti sem hann
sótti í Tallinn í Eistlandi.
Þrátt fyrir að vera öflugur
spilari datt Auðunn út
strax á fyrsta degi og
herma sögur að herberg-
isnúmer hans hafi átt þar
hlut að máli því það
skartaði tvöfaldri
óhappatölu, eða
1313. - fb
FRÉTTIR AF FÓLKI
„Þetta er ekkert gert til að drulla yfir menn.
Maður er bara að fara yfir góða mannasiði
sem mér finnst vanta,“ segir Egill „Þykki“
Einarsson, eða Gillzenegger, um væntanlega
bók sína Mannasiðir Gillz. Þar skýtur hann
föstum skotum að þjóðþekktum aðilum á borð
við Egil Helgason, Steingrím J. Sigfússon,
Haffa Haff og Bjarna töframann. „Ég neydd-
ist til að minnast á Bjarna töframann,“ segir
„Þykki“. „Þetta eru menn sem þyrftu á því að
halda að skottast út í búð og ná sér í Manna-
siðabókina.“
Í einum kafla bókarinnar lýsir hann reynslu
sinni af kvenkyns nuddurum sem hafa óæski-
leg áhrif á „litla hershöfðingjann“. Þar segir:
„Til að forðast vandræðaleg móment er gott
að byrja, rétt áður en þú heldur að nuddar-
inn vilji að þú snúir þér, að ímynda þér Egil
Helgason á g-streng. Það hefur gefist mér vel
enda sofnar hershöfðinginn með það sama.“
„Þykki“ gerir sér grein fyrir því að
menn séu misviðkvæmir og til að hafa
vaðið fyrir neðan sig ætlar hann að láta
lögfræðing fara yfir textann áður en
endanleg útgáfa fer í prentun. „Eins
og maður hefur margoft rekið sig
á hérna á klakanum þá má maður
aldrei segja neitt, þá verður allt
vitlaust. Ég neyðist örugglega
til að láta lögmann forlags-
ins renna yfir þetta,“ segir
„Þykki“, sem hefur sjálf-
ur fengið á sig kærur
vegna ummæla á síð-
unni Gillz.is. „Það eru
örugglega einhverj-
ir sem verða pirraðir.
Þetta er svo lítið land og
það eru allir svo hörundssárir og
viðkvæmir.“ - fb
Kennir Agli og Steingrími J. mannasiði
TÚNFISKUR
LÚÐUFLÖK
XL HUMAR
SKÖTUSELUR
HARÐFISKUR
HUMARSÚPA
LAXAFLÖK
Auglýsingasími
– Mest lesið
STEINGRÍMUR
J. Steingrímur
fær skot á sig í
bók „Þykka“.
EGILL HELGASON
Egill þarf að laga
mannasiði sína sam-
kvæmt nafna sínum.
EGILL „ÞYKKI“ EINARSSON
Egill kennir Agli Helgasyni
og Steingrími J. Sigfússyni
mannasiði í nýrri bók sinni.