Ljósberinn - 01.10.1941, Qupperneq 15

Ljósberinn - 01.10.1941, Qupperneq 15
L JÖSBERINN ÍSS Við vorum alveg orðlausir — og höfum víst verið fremur fábjánalegir. »Flýtið ykkur nú, strákar!« sagði pabbi, — tók í handlegginn á mér, eins og hann ætlaði að henda mér eitthvað áleiðis,. Og það var ekkert við þessu að segja — ég tók til fótanna og Árni á eftir. Og svo skokkuðum við þetta berfættir, upp með ánni, steinþegjandi langa stund. »Petta er allt úr sveitakörlunum, sem sáu til okkar íí morgun. Eh ekki trúi ég því að klárarnir séu komnir á fjöll, því að ekki riðu*m váð þeim langt«. Pað var Árni, sem fyrr hafði rænu á að nota tal- færin. En svo var aftur þögn, — lengi. Og það mátti heita, að klárarnir væru komnir áfjöll. Því að þegar þeir voru orðn- ir viðskila við hina hestana og eftir að við skildum við þá, höfðu þeir lagt á rás, upp með ánni og voru komnir æði langt, þegar við náðum þeim. En alla leiðina hlupum við við fót. Og aldrei held ég að við höfum verið jafn fljótir í nakkurri hestaleit, og í þetta sinn. Enda var okk- ur mikið niðri fyrir. Við vorum víst hvor- ugur, að kvíða fyrir flengingunni. Hún var 'kkert aðalatriði. En við flýttum okkur fyrst og fremst, vegna þess, að við höfð- um fundið, að pabbi ætlaðist til þess, og hann hafði verið sanngjarn við okkur, við fundum það líka, — af því að hann var búinn að frétta, hvernig okkur hafði geng- ið um morguninn. En við flýttum akkur líka, til þess að þessu yrði sem fyrst af lokið. Og þá raunverulegu hegningu vor- um við búnir að taka út, því að ekkert var méiri óvirðing í okkar augum, en »að vera. kærður á kontórnum«, — og þá bætti það ekki úr, að nú vissu þetta alíir dreng- irnir í kaupstaðnum. Hvart við fengjum ekki að heyra það á næstunni — »kærð- ur á kontórnum!« Það var ónotaleg til- hugsun. Arni reið ótemju-bykkjunni heim, barð- ist um á hæl og hnakka og hafði í fullu tré við hana, svo að okkur gekk sæmilega. Þegar við komum í námunda við sýslu- njannshúsið, tókum við eftir því, að dreng- ir voru á gægjum hér og þar við næstu húsahorn. — Auðvitað. Þá langaði til að sjá vort við yrðum flengdir! Pabbi sá til ekkar út um skrifstofu- gluggann og kom út í dyrnar. »Jæja, — þið eruð komnir, karlarnir! Þið hefðuð ekki verið svona fljótir, ef ég hefði beðið ykkur að sækja fyrir mig hesta. Nei-ónei. Eh svona er samveizkan. Þegar hún lemur fótastokkinn, þá er ekki um annað að gera en að flýta sér. Bind- ið þið hestana við girðinguna. Karlinn sæk- ir þá hingað. — Botninn á ykkur hefir nú líklega ekki batnað við þetta, svo að drengirnir þarna, verða af þeirri skemmt- un, að sjá ykkur flengda ' þetta sinn. Og ég veit að þið takið ekki hesta trausta- taki næsta daginn! Verið þið sælir, Árni og Tiddi!« Frh. Pabbi stendur við stýrið. Einu sinni lenti skip á næturþeli í ofsa- roki. Allt valt hvað á annað, sem laust. var á þilfarinu, og farþegarnir þutu ótta- slegnir út úr klefum sínum til að vita, hvað um væri að vera. Litla dóttir skipstjórans vaknaði líka og spurði, hvað á gengi. Móðir hennar sagði henni,, að skipið hefði lent í ofsaroki. »Hvar er pabbi?« spurði litla stúlkan. »Pabbi stýrir skipinu«, svaraði mamma. »0, er það pabbi, sem stýrir, þá er öllu vel borgið«, sagði sú litla og lagðist aft- ur örugg til svefns. Við getum allt af verið óhult, ef við lát- um okkar himneska föður s,týra æfifar- inu okkar. »Þú Guð, sem stýrir stjarnaher og stjórnar veröldinni, 5 straumi lífsins stýr þú mér m,eð sterkri hendi þinni«.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.