Ljósberinn - 01.04.1947, Blaðsíða 12

Ljósberinn - 01.04.1947, Blaðsíða 12
52 þekkja alla heimsins leyndardóma og eru svo góðir og hjálpsamir. En allt veltur á því, að Valgerður beri gæfu til að ná beltinu. Enginn mun gefa henni leyfi til þess. Það eru því ekki önnur ráð, en að Valgerður verður sjálf að ná því leyni- lega. Ég á í fórum mínum gull-lykil, sem getur opnað alla lása. Ég ætla að leggja hann í keltu hinnar sofandi stúlku. Og ef hún liefur kjark til, mun hún geta reynt það aðra nótt. Ef hjarta hennar er hreint og gott, þarf hún ekki að óttast ljónið. En ef hin vonda norn fer að beita við hana brögðum til að hræða hana, verð- ur hún umfram allt að vera svo hugrökk, að hún láti ekki h'eyra til sín hljóð. Ef hún hljóðar af hræðslu, er hún töpuð og hinn ungi kóngur fær aldrei bata. En ef ástin er svo sterk að hún láti ekkert á sig fá, hvað sem á gengur, þá er hún vernduð fyrir valdi þess vonda, og mun lieppn- ast áform sitt“. Litli gamli gráskeggjaði maðurinn þagnaði nú og var orðinn þreyttur af að tala svo lengi. Kóngurinn og drottningin voru nú hugsandi yfir því að þetta mundi vera alltof erfitt og áhættusamt verk fyrir svo óreynda gæsastúlku. „Þetta er ákaflega hættulegt“, sögðu þau. „Svo ákaflega hættulegt“, sagði allt liitt smáfólkið. Gamli maðurinn var nú búinn að hvíla sig svo að hann gat sagt: „Það er allt undir því komið, að ást Valgerðar til kóngsins sé nógu sterk“. Þá sagði Fríða litla: „Það er hún! Ég veit, að hún er nógu LJÓSBERINN sterk. Ó, kæri, gamli Pírus! Láttu míg hafa gull-lykilinn, ég vil leggja hann í keltu stúlkunnar, svo ég geti séð hana betur“. Gamli maðurinn lineigði sig og rétti henni lykilinn. Hægt, mjög liægt og varlega gekk nú litla Fríða til Valgerðar, lét lykilinn hægt í svuntu hennar og beygði sig alveg að eyranu á lienni og hvíslaði: „Þú hefur sjálfsagt heyrt hvert einasta orð, sem.Pírus sagði? Var það ekki?“ „Jú!“ sagði Valgerður lágt og varlega. Hún hafði ekki sofið, bara legið hreyf- ingarlaus, til þess að hræða ekki þetta ein- kennilega fólk. Og hún lá kyrr stundar- korn á meðan þessir litlu angar dönsuðu fjörugan dans, og hurfu svo á brott. Svo reis hún á fætúr og fór lieim og liáttaði I og svaf vært fram á bjartan dag. En hana dreymdi allan tímann um hinar gulu mel- ónustúlkur og graskersmenn, með græn- ar húfur, og um Sigurð konung. Allan næsta dag gætti hún gæsanna eins og alla aðra daga. En seint um kvöldið, þegar búið var að slökkva öll ljós í höll- inni, tók liún gull-lykilinn og læddist á tánum út að hallarhliðinu. Þessi litli gull- lykill passaði undarlega vel í hina stóru og ramgerðu skrá. Hliðið opnaðist strax hljóðlaust og Valgerður gekk inn. Svo gekk hún eftir dimmum gangi, og upp skínandi hvítar marmaratröppur og að dyrunum á sjálfu dýrgripasafninu. Gull- lykillinn opnaði líka þessar dyr umsvifa- laust. Og nú var Valgerður kominn inn á milli allra þessara dýru gripa kóngsins. Gegnum glugga, hátt uppi, skein tungl- ið, og af geislum þess glitraði á gull- og silfurgripi allt í kringum hana. Það var

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.