Ljósberinn - 01.04.1947, Blaðsíða 30
70
LJÓSBERINN
Kemur út einu sinni í mánuði, 20 síður. — Ár-
gangurinn kostar 10 krónur. — Gjalddagi
er 15 apríl.
Sölulaun eru 15% af 5—14 eint. og 20% af
15 eint. og þar yfir.
Afgreiðsla: Bergstaðastræti 27, Reykjavík.
Sími 4200.
Utanáskrift: LJÓSBERINN, Póethólf 304,
Reykjavík.
Prentsmiðja Jóus Helgasonar, Bergetaðastr. 27.
KALLI FRÆNDI
OG KRAKKARNIR
heitir ný mynda-
saga, sem hefst nú í
þessu blaði, prentuð
í tveim litum. Eng-
inn vafi er á því, að
hún mun verða hin-
um ungu lesendum
blaðsins til mikillar
ánægju, því í mörgum æfintýrum lenda þessir nýju
kunningjar okkar, bæði á sjó og landi.
AUKINN KOSTNAÐ
hefur þetta í för með sér fyrir blaðið, en það von-
ast til, að vinir þess launi það í auknu starfi fyrir það.
Vinnið að útbrciðslu blaðsins meðal leikfélaga ykkar
og nágranna. Sýnið þeim blaðið og segið þeim frá
þeim kostakjörum, sem boðin voru í síðasta tbl. —
síðaBta árganga blaðsins í kaupbæti, meðan upplag
endist, — en kaupbætirinn er því aðeins látinn, að
kaupandi greiði um leið árganginn 1947.
GJAFIR OG ÁIIEIT.
Þ. J. J. kr. 50,00; Marta Ágústsdóttir kr. 20,00; G. V.
Önundarholti kr. 10,00.
Á öld tækninnar.
//
HANSEN OG KRUMMI.
Ilansen læknir ótti lirafn, sem kunni að tala. Hrafn-
inn hélt sig venjulega á biðstofunni, þar sem lækn-
irinn tók á móti sjúklingum sínum, og hann heyrði
því oft er sjúklingarnir sögðu: „Ó, mér líður svo illu,
herra Hansen“. Á endanum lærði krununi að segja
þessi orð'.
Dag nokkurn flaug brafninn í burtu og fór þangað,
sem cnginn þekkti hann. Bóndi nokkur, sem líka
hét Hansen, kom auga á hrafninn og skaut á bann.
Hann hitti í annan vænginn og vesalings fuglinn féll
til jarðar, allur blóðugur. Bóndi tók til fótanna og
sótti ltann, og nærri má geta, hversu undrandi hann
hefur orðið, þegar hann heyrði krumma segja: „Ó,
mér líður svo illa, herra Hansen!“
//
Kennarinn: „Efri flötur liandarinnar er nefndur
handarbak, en hvað heitir þá neðri flöturinn?“
Hans: „Handarmagi“.
Bréfaviöskipti.
Finnur GuSni Þorlálcsson og Högni Marselíusarson,
báðir að Scebóli, Ingjaldssandi við Önundarfjörð, óska
eftir bréfavið'skiptum við dreng eða stúlku 11—13 ára.
Vilborg H. Kristjánsdóttir, Barmi, Skarðshrepp,
Dalasýslu óskar eftir að komast í bréfasamband við
pilt eða stúlku á aldrinum 16—17 ára, hvar sem er
á lundinu.