Ljósberinn - 01.04.1947, Blaðsíða 15

Ljósberinn - 01.04.1947, Blaðsíða 15
LJÓSBERINN álfar horfnir, en gimsteinahrúgan lá á borðinu, eins og hún hafði skilið við liana kvöldinu áður. Valgerður klæddi sig nú í skyndi. Rað- aði öllum steinunum ofan í kassa, og stakk honum svo undir rúmið sitt. Svo fór liún út og gætti gæsanna eins og ekk- ert hefði í skorizt. En áhyggjur hennar út af því, hvern- ig fara mundi, voru svo miklar, að hún hafði enga matarlyst. Hún hugði sífellt eftir gangi sólarinn- ar, og henni fannst hún aldrei liafa verið svo lengi á lofti, þar til loksins að hún seig niður í sjna rósrauðu skýjasæng. Loksins var orðið dimmt. Og þégar bú- ið var að slökkva síðasta ljósið í höllinni, læddist Valgerður út í hallargarðinn. Hún tók með sér reku og haka, og gamla kristalskáþ sem guðmóðir hennar liafði gefið henni á síðasta afmælisdegi hennar, og gimsteinakassann tók hún einnig með. Hægt og rólega gróf liún alla hina glitrandi steina niður í jörðina í kringum gamla reyniberjatréð, sem hún hafði áð- ur setið undir. Varla var síðasti steinninn hulinn moldu fyrr en hún sér, sér til mikillar gleði, ao það sprettur undur fallegt blóm upp af þeim fyrsta. Og svo spretta blóm- in hvert af öðru, fegurri og fegurri, þar til komin voru blóm upp af öllum stein- unum. Aldrei hafði hún séð jafn fögur blóm. Liturinn á hverju blómi var sá sami og á steinunum, sem undir þeim voru. Og blöð þeirra glitruðu eins og demantar. Valgerður sogaði að sér ilminn af blóm- unurn. En þá sá húji, að á hverri blóma- krónu var glitrandi daggardropi. Varlega Allir hinir álfarnir klöppuðu saman höndunum o$ þá vaknaöi Valgerður. hristi hún hvern dropa niður í kristalls- skálina og áður en hún vissi af, var skál- in full upp á barma af tærum, ilmandi vökva. Valgerður kyssti nú öll blómin að skiln- aði, og gekk svo burt. En þegar hún leit til baka, sá hún þessa indælu litlu álfa, sem hún hafði séð í draumi um nóttina. Þeir sendu lienni allir koss af fingrum sínum, lineigðu sig svo vinalega og hurfu svo á bak við gamla reyniberjatréð. Svo gekk Valgerður glöð og róleg heim og háttaði. Hún sofnaði á svipstundu. En alla nóttina fram á bjartan dag, dreymdi liana unga kónginn. Næsta dag þvoði hún sér og greiddi með mikilli vandvirkni, fór svo í beztu fötin, sem hún átti til, og fór beina leið heim að höllinni og bað um leyfi til að tala við kónkinn. Strax og kóngurinn heyrði, að það var litla, fallega gæsastúlkan hans, skipaði hnn að láta liana kom inn. „Kær Valgerður“, sagði hann. „Hvað hefur þú merkilegt að segja mér?“

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.