Ljósberinn - 01.04.1947, Síða 29
LJÓSBERINN
69
lauk máli sínu með því að fullyrða, að
þessar litlu stúlkur væru áreiðanlega frá
móður Brown, því að tötralegustu börnin
væru ætíð þaðan.
Barnardo bafði lieyrt nóg. Hann skildi
pakkann eftir á borðinu hjá kaupmann-
inumog gekk til stúlknanna.
„Lízt ykkur ekki vel á pylsurnar þær
arna?“
Sú eldri leit snögg\rast upp, hallaði lítið
eitt höfðinu, en sagði ekkert.
„Iíafið þið ekki lyst á einni pylsu?“
Eldri stúlkan kinkaði kolli. En augna-
ráðið, sem fylgdi þeirri höfuðhneigingu
var svo biðjandi, að Barnardo hlýnaði
um hjartaræturnar.
„Komið með mér inn fyrir“.
Þær fengu sína pylsuna hvor. Að
augnabliki liðu höfðu þær lokið við þær.
„Viljið þið meira?“
Nú kinkuðu báðar stúlkurnar kolli og
litlu til skiptis á Barnardo og rjúkandi
pylsurnar innan við borðið. En nú fengu
þær ekki nerna sína hálfa pylsuna hvor,
því að Barnardo var hræddur inn að þær
yrðu veikar, ef þær fengju meira.
„Getið þið borðað meira?“
„Já“.
„Því get ég trúað, en sjáið þið nú til.
Ég er hræddur um að ykkur geti orðið
illt, ef þið borðið meira af lieitum pyls-
um“.
„Getum við fengið nokkuð handa
Tommy?“
„Tommy — hver'er það?“
„Bróðir minn og hann er veikur“,
sagði önnur stúlkan.
„Hlustið nú, stúlkur mínar. Við kaup-
um pylsu lianda Tommy, og svo fer ég
heim með ykkur til hans“.
Ljúfi Faðir leið þú mig
Herra, Guð, ég hrópa á þig
hjarta míns af innsta grunni.
Ljúfi Faðir leið þú mig
lífs að lielgum náðarbrunni.
I líknarhendur legg ég þínar
lífsins allar vonir mínar.
Lífs á daginn líða fer.
Það liggur viS ég gráti’ ’ann.
Tíminn hefur tapast mér;
til hvers? ÞaS er gátan.
Lárus Eiríksson frá EiSum.
Stærri stúlkan varð sýnilega hrædd.
„Það er ekki hægt, amma vill það
ekki“.
„Hver er amma þín og hvernig veiztu,
að hún vill ekki að ég komi lieim til ykk-
ar?“
„0, ég veit fyrir víst, að liún vill það
ekki“.
„Er hún raunverulega amma þín?“
„Nei, það er hún nú ekki, en við köll-
mn hana ömmu“.
„Jæja, það er þá móðir Brown“.
Stúlkan gapti af undrun og starði á
Barnardo. Hann reyndi að róa hana og
sagði henni, að hann væri læknir og
mætti þess vegna líta á Tommy. Síðan
tók liann í liendur þeirra og leiddi þær
lieim.