Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1964, Blaðsíða 28
Gervigúm. sem skreppur saman
við hita
Nýlega eru komnar á markaðinn
pípur og fleiri fullgerðir hlutir úr
kísilgúmí, er nefnist „Silastic 1410“.
Pípur þessar hafa þann eiginleika að
þær þrengjast og herpast saman nið-
ur í helming hins upphaflega þver-
máls ef þær eru hitaðar stutta stund
i um 150°C. Þetta hlaup á sér þó að-
eins stað á vídd pípunnar, en lengd
hennar hleypur aðeins um tæplega
5%.
Með þessum hætti er unnt að gera
þétta klæðningu um hluti, aðeins
með því að beita hitunarlampa, og
þarf enga fagkunnáttu til. Tíma- og
vinnusparnaður er talinn um 50%.
Þetta kísilgúm hefur sömu góðu
eiginleikana og aðrar kísilgúmteg-
undir: Ágæta rafmagnseinangrun,
rakavörn og hitaþol - nothæft við
73-26o°C. Það er því engin hætta á
ofhitun meðan verið er að herpa það
saman með hita. Efnið er þétt og
þolir vel núning og tog. Erfitt er að
rífa það. Þá er það einnig góður
kostur, að hægt er að brenna það
burt með háhitaloga. Á mynd 1 má
sjá hlutföll þvermálsins á pípum,
fyrir og eftir hitun. Á mynd 2 er sýnt
hvernig myndað er þétt slíður um
leiðslur. Hitabyssan sést á bak við.
Á mynd 3 er sýnt endaslíður á raf-
leiðslu, þétt og viðnámsgott gegn
loga. Greina má, hvernig slíðrið
hleypur saman um helming þvermáls
þar sem hitabyssunni er beint að því.
Framleiðandi er Dow Corning
Corp., Midland, Michigan 48641,
USA.
I.T.D. nr. 1676
BLIKKSMIÐJAN GRETTIR
BRAUTARHOLTI 24.SÍMAR: 1041 2, 12405 OG 17529
HÖFUM FYRIRLIGGJANDI:
Vatnskassaelement í Ford, Chevrolet, jeppa og ýmsar aðrar
tegundir bíla, einnig hljóðdeyfara.
Smíðum eftir pöntun:
Vatnskassa, hitablásara, hita- og kælielement.
Þakrennur, þakglugga, rennujárn og allt, sem tilheyrir blikk-
smíði vði húsabyggingar.
VÖNDUÐ VINNA! FLJÓT AFGREIÐSLA! SANNGJARNT VERÐ!
112
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA