Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1964, Qupperneq 32
hefur leitt af sér margþætt og torleyst vandamál, sem
nú ber flestum þjóðfélagsvandamálum hærra.
Aðilum kjarabaráttunnar hefur veitzt erfitt að koma
sér saman um grundvöll til viðmiðunar við gerð kjara-
samninga. Veldur þar miklu um hin sérstæða þróun
efnahagsmála frá stríðslokum. Fyrstu árin eftir styrj-
öldina bjó þjóðin við mjög góð lífskjör, en þeim hrak-
aði síðan verulega. Launþegasamtökin hafa aldrei við-
urkennt í orði orsakir þess og nauðsyn, að svo skyldi
fara. Hafa forsvarsmenn þeirra margsinnis vísað til
hinna fyrri lífskjara og fært fram tölur um lakari kaup-
mátt almennra verkamannalauna á síðari árum sem
rökstuðning fyrir kröfum sínum.
Meðan útreikningar þjóðartekna voru ekki fyrir
hendi, var ekki hægt að skoða þá breytingu, sem orðið
hafði á kjörum einstakra stétta, í ljósi þeirra breyt-
inga, sem orðið höfðu á afkomu þjóðarinnar allrar.
Var þá ekki nema von, að því væri haldið fram, að
kjörum launþega, eða einstakra hópa launþega, hefði
hrakað meir en svaraði til breytinga á afkomu þjóðar-
innar. Eftir að áætlanir um þjóðartekjur tóku að koma
fram, hefur samanburður á þróun kauptaxta í al-
mennri verkamannavinnu í Reykjavík og þróun þjóð-
artekna verið talin sýna, að hlutur launþega í tekju-
skiptingunni hafi verið mjög skertur. Kauptaxtar eru
hins vegar ekki sambærilegir við þjóðartekjur á mann.
Breytingar þeirra eru aðeins einn þátturinn af mörgum
í breytingum launatekna. Því síður er þróun kauptaxta
takmrakaðs hóps á ákveðnum stað til þess fallin að
sýna hlutskipti launþega almennt, og enn síður þegar
svo hagar til, að stöðugt færri og vandaminni tegundir
vinnu hafa heyrt undir þann kauptaxta, sem um ræðir.
Rannsóknir á hlutdeild launþega í þjóðartekjunum
verða að byggjast á samanburði launatekna við þjóð-
artekjurnar, en ekki á samanburði kauptaxta við þjóð-
artekjurnar. Víðtækasta skýrsluefni um launatekjur eru
úrtaksathuganir á tekjum verkamanna, sjómanna og
iðnaðarmanna, og hefur sá samanburður, sem gerður
er í þessari grein, verið byggður á því efni. Hve mik-
inn þátt breytingar samningsbundinna kauptaxta hafa
átt í þróun launateknanna er að sínu leyti einnig merki-
legt rannsóknarefni. Unnið hefur verið að athugunum
á því sviði, en þær eru ekki komnar á það stig, að nið-
urstöður þeirra sé hægt að leggja fram að svo stöddu.
Helztu niðurstöðurnar, sem komizt varð að og nánar
hafa verið raktar í köflunum hér að framan, eru sem
hér segir:
i) Tekjuskiptingin, mæld eftir afstöðu atvinnutekna al-
þýðustéttanna, verkamanna, sjómanna og iðnaðar-
manna, til þjóðartekna á mann á föstu verðlagi, var
116
NÝJUNG í
B YGGING ARIÐN AÐI
FLOTEX PLAST-NVLON-TEPPI er langbezta efni sinnar
tegundar, sem nokkurntíma hefur verið framleitt til þess að
setja á gólf.
í tíu ár samfleitt voru gerðar vísindalegar tilraunir með það á
frönskum efnarannsóknarstofum, það endurbætt og lagfært í
samráði við færustu kunnáttumenn heimsins á þessu sviði —
þar til fullgerður var FLOTEX-dúkurinn — FLOTEX-teppið,
sem er undravert efni, mjög flókinn efnasamsetning, vinyl-
polichlorure, þar sem efraborð er eins og fegursta teppi, þ. e.
nælonþræðirinr soðnir við geysiháan þrýsting og hátt hitastig
inn í plastdúkinn, sem límdur er á gólfið með sérstöku lími.
FLOTEX er svo endingargott
að segja má að það slitni ekki.
Sólarljósið vinnur ekki á lit-
um þess.
Fjölbreytt litaval með ótal
blæbrigðum, eftir því hvernig
ljósið fellur á það.
FLOTEX er hægt að líma
á öll gólf.
FLOTEX er auðvelt að þrífa.
FLOTEX er hægt að ryksuga.
FLOTEX er hægt að þvo.
FLOTEX er alltaf eins og nýtt.
Sölumenn úti á landi:
AKUREYRI: Haraldur M. Sigurðsson, Byggðavegi 91,
sími 1880.
AKRANESI: Kirstmundur Árnason, Hjarðarholti 4, sími 1707.
SELFOSSI: Skúli B. Ágústsson, Tryggvagötu 7, sími 63 og 208.
VESTMANNAEYJUM: Húsgagnaverzlun Marinós Guðmunds-
sonar, sími 1289.
NESKAUPSTAÐ: Erlingur Ólafsson, byggingarmeistari.
HAFNARFIRÐI: Verzlunin Málmur, Austurgötu 17, sími
50230
KEFLAVÍK: Björn & Einar, sími 1888.
F L O T E X á öll gólf
FLOTEX-UMBOÐIÐ á íslandi
Brautarholti 20 . Reykjavik . Simar 21999 og 92847.
FRANSK-ÍSLENZKA
VERZLUNARFÉLAGIÐ
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA