Tímarit iðnaðarmanna - 01.09.1964, Síða 37
Tœkifcerí til kynníngar
á íslenzkum iðnaðar-
uarningi erlendís
Landssambandi iðnaðarmanna hefur nýlega borizt
bréf frá Viðskiptamálaráðuneytinu, þar sem skýrt er
frá starfsemi Gjafamiðstöðvar Sameinuðu þjóðanna
(United Nations Gift Center). Er þar skýrt frá því, að
sú stofnun hafi áhuga á því að hafa samband við ís-
lenzka aðila, sem afgreitt geta heppilegar íslenzkar
vörur handa gjafamiðstöð þessari.
Hér er áreiðanlega um að ræða gott tækifæri fyrir
framleiðendur allmarga íslenzkra handiðnaðarvara til
að koma vörum sínum á framfæri erlendis.
Vörutegundir þær, sem helzt koma til greina, eru
ýmsir smámunir til skreytingar innanhúss, m. a. leir-
munir og hlutir skornir úr tré, ýmiss skrautvarningur,
svo sem hálsfestar, armbönd og eyrnalokkar úr silfri og
gulli og ýmsir smáhlutir til að hafa á skrifborðum, svo
sem bréfahnífar, öskubakkar og vindlakassar. Enn-
fremur koma til greina hlutir úr leðri, t. d. veski og
smátöskur o. s. frv.
Tilgangurinn með Gjafamiðstöðinni er að gefa
ferðamönnum þeim, sem heimsækja aðalstöðvar Sam-
einuðu þjóðanna í New York, tækifæri til að sjá og
kaupa sýnshorn af iðnaðarvörum hinna ýmsu landa,
sem aðild eiga að Sameinuðu þjóðunum. Er hér fyrst
og fremst um kynningu á list- og handiðnaði að ræða.
Ennfremur veitir Gjafamiðstöðin framleiðendum iðn-
aðarvarningsins upplýsingar um sölumöguleika, gefur
þeim ráðleggingar um útlitsbreytingar o. s. frv.
Hlutir þeir sem eru á boðstólunum eru í Gjafamið-
stöðinni verða annað hvort að hafa hagnýtt notagildi
eða vera smekklegir skrautmunir. Áherzla er lögð á, að
Gjafamiðstöðin verzlar ekki með minjagripi. Hlutirnir
mega ekki vera mjög fyrirferðamiklir eða þungir og
miðstöðin verzlar ekki með hluti, sem seldir eru eftir
máli eða stærð.
Gjafamiðstöðin býður einstökum iðnaðarmönnum
eða iðnfyrirtækjum, sem framleiða einhverja þá hluti,
sem líklegt er að unnt sé að selja í Gjafamiðstöðinni,
að skrifa og lýsa þeim munum, sem helzt er um að
ræða. Skýra þarf frá verði einstakra hluta og æskilegt
er, að mynd fylgi.
Ef álitið er, að hlutir þeir, sem boðnir eru, séu
markaðshæfir, mun Gjafamiðstöðin skýra viðkomandi
framleiðanda frá því og biðja um reynslusendingu.
Nánari skýringar um viðskiptahætti munu fylgja.
Þeim, sem áhuga hafa, er boðið að skrifa til:
United Nations Cooperative, Inc.
Box 20, Grand Central Post Office
New York 17, New York, U.S.A.
Allmikið hefur verið rætt um útflutning íslenzkrar
iðnaðarvara enda þótt lítið hafi orðið úr framkvæmd-
um til þessa. Hér er um einstakt tækifæri að ræða fyrir
sumar íslenzkar iðngreinar til að kynna framleiðslu
sína á erlendum vettvangi. Vonandi verða einhverjir til
að bjóða varning sinn til sölu á vegum Gjafamiðstöðv-
ar Sameinuðu þjóðanna, svo að ísland komist í hóp
þeirra landa, sem bjóða iðnaðarvörur sínar þar til sölu.
Iðnskólínn í Reykjauík
60 ára
Hinn 1. október n. k. verður Iðnskóiinn í Reykjavík
60 ára. Sögu skólans má reyndar rekja meira en ntu
áratugi aftur í tímann, en skólahald fyrir iðnaðarmenn
í Reykjavík hófst árið 1873 á vegum Iðnaðarmannafé-
lagsins. En það var ekki fyrr en árið 1904, að skólamál
iðnaðarmanna komust í svipað horf og á öðrum Norð-
urlöndum. Það var m. a. fyrir forgöngu Jóns Þorláks-
sonar, verkfræðings, sem síðar varð borgarstjóri í
Reykjavík, og með samvinnu hans og Iðnaðarmanna-
félagsins, að Iðnskólinn í Reykjavík var stofnaður fyrir
60 árum.
Fyrsti skólastjóri skólans var Jón Þorláksson og
gegndi hann því starfi í 7 ár. Síðan tók við Ásgeir
Torfason verkfræðingur og eftir hans dag Þórarinn B.
Þorláksson, sem gegndi starfinu til ársins 1923. Næstu
þrjá áratugina var Helgi Hermann Eiríksson skóla-
stjóri skólans, en hann er öllum iðnaðarmönnum vel
kunnur fyrir mikil og farsæl störf í þágu þeirra. Helgi
Hermann lét af starfinu skömmu áður en skólinn varð
hálfrar aldar gamall og varð fyrsti bankastjóri Iðnað-
arbankans. Þá tók við skólastjórastöðunni Þór Sand-
holt, og hefur hann gegnt því starfi síðan.
Iðnskólinn í Reykjavík hefur vaxið mikið á þeim
sex áratugum, sem hann hefur annast menntun reyk-
vízkra iðnaðarmanna. Skólinn var í nær 50 ár til
húsa í húsi Iðnaðarmannafélagsins á horni Lækjargötu
TÍMARIT IÐNAÐARMANNA
121