Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Page 88
gagni. í þessu efni verðum við að vera vel á verði og
reyna að tryggja, að íslenskt hugvit og verkkunnátta
njóti góðs af þeim verkefnum, sem fylgja rekstri
stórf yrirtækja. Sé þessa gætt ætti fjölskrúðugur smá-
iðnaður að geta vaxið og daf nað við hlið stórfyrir-
tækja.
JÖFNUN STARFSSKII.YRÐA
Skömmu eftir að núverandi ríkisstjórn tók við völd-
um flutti ég tillögu um að gerð yrði ýtarleg könnun á
starfsskilyrðum atvinnuveganna og í framhaldi af
því skipaði forsætisráðuneytið nefnd til að vinná að
málinu. Hefur hún nú skilað áfangaskýrslu, og eru
embættismenn nú að fara yfir niðurstöður nefndar-
innar til að undirbúa tillögur um aðgerðir til aðjafna
starfsskilyrðin, að svo miklu leyti sem það er á færi
hins opinbera og pólitísk samstaða tekst um.
Starfsskilyrði iðnaðarins hafa verið mjög í brenni-
depli að undanförnu. Áfangaskýrsla Starfsskilyrða-
nef ndarinnar er mjög ýtarleg og tekur til allra þátta,
nema markaðs- og gengismála. Lokaskýrslu frá
nefndinni er að vænta innan tíðar. Eg ætla hér ekki
að ræða um niðurstöður nefndarinnar, en vil aðeins
segja, að hún hefur skilað vandaðri greiningu á
starfsskilyrðum atvinnuveganna og er ljóst, að um
verulega mismunun í starfsskilyrðum þeirra er að
ræða.
Rekstur iðnfyrirtækja í tæknivæddu þjóðfélagi er
hins vegar margþætt viðfangsefni og þess þarf að
gæta að túlka það ekki of þröngt.
Þannig er stuðningur við rannsókna- og þróunar-
starfsemi í þágu atvinnulífsins einn þáttur starfsskil-
yrðanna, og sama má segja um aðbúnað á vinnu-
stöðum, svo og fjárveitingar til tækniþjónustu og
starfsþjálfunar.
Hér á eftir mun ég drepa á nokkra þætti, er snerta
starfsskilyrði iðnaðarins og sem meira og minna
varða málefni ykkar samtaka.
ENDURKAUPALÁN OGSJÓÐIR IÐNAÐARINS
Iðnaðarráðuneytið hefur á þessu ári átt nokkrar
viðræður við Seðlabankann um að iðnfyrirtækjum
yrði veittur greiðari aðgangur að endurlánakerfi
bankans. Þessi stefna var sérstaklega áréttu% í efna-
hagsáætlun ríkisstjórnarinnar við síðustu áramót.
Iðnaðarbankinn hefur samfara þessu gert átak til að
kynna iðnfyrirtækjum rekstrarlánamöguleika í
gegnum endurkaupalánakerfið. Hefur bankinn
m. a. sent starfsmann til iðnfyrirtækja úti á landi
vegna þessa máls.
Allt þetta starf hefur leitt til þess, að endurkaupa-
lán Seðlabankans vegna iðnfyrirtækja hafa aukist
verulega. Til að mynda var aukningin á fyrstu 5
mánuðum þessa árs meiri en aukningin allt árið
1980. Hlutfall iðnfyrirtækja í endurkaupalánum var
á sl. sumri komið í tæp 15% af heildarendurkaupum
bankans, en var á sama tíma 1980 11.8%.
Á seinasta Iðnþingi greindi ég frá því, að fram-
undan væri endurskoðun á lögum um Iðnrekstrar-
sjóð og gert væri ráð fyrir að Landssamband iðnað-
armanna fengi fulltrúa í stjórn sjóðsins. Á Alþingi
vorið 1980 voru síðan samþykkt ný lög um sjóðinn.
Markmið hans er nú hliðstætt því sem gerist um
svipaða sjóði á öðrum Norðurlöndum, og er sjóðn-
um ætlað að stuðla að margvíslegu nýsköpunar- og
umbótastarfi í iðnaði.
Fjárframlög til sjóðsins voru í fyrra margfölduð
með framlagi af aðlögunargjaldi, og á næsta ári
kemur til framkvæmda ákvæði í lögum þess efnis, að
framlag ríkissjóðs miðist að lágmarki við 0.6% af
vinnsluvirði iðnaðar samkvæmt áætlun Þjóðhags-
stofnunar. Framlag ríkissjóðs samkvæmt fjárlaga-
frumvarpi fyrir 1982 er 10 m. kr., en nam árið 1978
500 þús. kr. og hefur þannig tuttugufaldast í krón-
um talið á 4 árum.
Lánasjóðir iðnaðarins, Iðnlánasjóður og Iðnþró-
unarsjóður, hafa sterka eiginfjárstöðu og hefur
heildarráðstöfunarfé þeirra farið stöðugt vaxandi.
Samkvæmt lánsfjáráætlun er gert ráð fyrir að ráð-
stöfunarfé sjóðanna verði á næsta ári samtals 230
millj. kr., þar af Iðnlánasjóður 148 millj. kr. og Iðn-
þróunarsjóður með 82 millj. kr.
Framboð á fjármagni til fjárfestingar í iðnaði er
nú ekki lengur jafn takmarkandi þáttur og áður, og
er það mikil breyting frá því, sem var fyrir fáum
árum.
Ríkisstjórnin samþykkti nýlega skipun nefndar,
sem hefur það verkef ni, að endurskoða útflutning$-
lána- og útflutningstryggingakerfið með hliðsjón af
samsvarandi starfsemi í helstu viðskiptalöndum
okkar. Á þessu sviði höf um við ekki fylgt þeirri þró-
un, sem orðið hefur í þessum málum erlendis, tjl
dæmis á öðrum Norðurlöndum. Það sem erfiðast er
viðureignar eru þeir niðurgreiddu vextir, sem oft
eru í boði við kaup á fjárfestingavörum erlendis frá,
og þarf að leita lausnar á þeirri mismunun.
LEIFDRÉTTING Á AÐFLUTNINGSGJÖLDUM
Samkvæmt ákvæði í tollskrá er fjármálaráðherra
heimilt að endurgreiða eða fella niður gjöld af hrá-
efni, efnivörum og hlutum til framleiðslu imj-
lendra iðnaðarvara, sem tollar hafa verið felldir ni$-
ur af samkvæmt ákvæðum í fríverslunarsamning-
um, svo og af vélum, vélahlutum og varahlutum,
sem notaðir eru til framleiðslu sömu vara.
Endurskoðun á aðflutningsgjöldum til sam-
keppnisiðnaður leiddi til afnáms á þessum gjöldum í
verulegum mæli í ársbyrjun 1981. Tekjuskerðing
ríkissjóðs af þessum sökum var talin nema um 15
millj. kr. á ársgrundvelli. Enn eru nokkrir flokkar,
86
Timaril iðnaöarmanna