Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Qupperneq 89
Frá 39. Iðnþingi Islendinga.
sem bera aðílutningsgjöld að einhverju marki. Má
þar nefna rafeindabúnað, tölvur, flutningatæki og
ýmsar byggingavörur. Stöðugt er unnið að því af
hálfu iðnaðarráðuneytisins að ná fram leiðrétting-
um í þessu máli. Þess má einnig geta, að nú stendur
yfir heildarendurskoðun á lögum og reglum um
gjöld af innflutningi og innlendri vöruframleiðslu.
Endurskoðunin er við það miðuð að fækka tekju-
stofnum og samræma gjaldtöku ríkissjóðs af inn-
ttutningi og innlendri framleiðslu.
EFLING ÚTFLUTNINGSMIÐSTÖÐVAR
IÐN AÐARINS
Mikil nauðsyn er á að örva útflutningsviðleitni í ís-
lenskum iðnaði, jafnhliða því sem reynt er að halda
velli og sækja f rarn í markaðshlutdeild innanlands. í
þessu sambandi vek ég athygli á stórauknu framlagi
ríkissjóðs til Útttutningsmiðstöðvar iðnaðarins, sem
samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir næsta ár nemur
2.1 76.000 kr. ogsvarar til þessaðgreiddur sé grunn-
kostnaður við starfsemi stofnunarinnar. Hefur
framlag ríkisins hækkað margfalt að raungildi á
undanförnum árum, en það nam 173'þús. nýkr. á
fjárlögum árið 1978. Eðlilegt er aðjafnframt sé gerð
krafa um að aðstandendur Útflutningsmiðstöðvar-
innar leggi fram aukinn lilut til starfsemi hennar,
þar á meðal samband ykkar, og starfsemi stofnunar-
innar verði markvissari en verið hefur.
IÐNRÁÐGJAFAR í LANDSH LUTUNUM
Fyrir fáum dögum var lagt fram á Alþingi stjórnar-
frumvarp um iðnráðgjafa. Þetta mál hefur verið í
undirbúningi í rúmt ár, og ég tel að það geti haft
rnjög mikla þýðingu fyrir iðnþróun í landinu, bæði
þjónustu- og framleiðsluiðnað. Frumvarpið felur í
sér heimild til að greiða framlag úr ríkissjóði, sem
nemi launum iðnráðgjafa, er ráðnir yrðu á vegum
samtaka sveitarfélaga eða iðnþróunarfélaga.
Meðal verkefna, sem iðnráðgjöfum er ætlað að
sinna, má nefna:
a) að aðstoða iðnfyrirtæki og aðila, sem hyggja á
iðnrekstur við að greina þörf sína fyrir sérfræði-
aðstoð og veita upplýsingar um, hvar slíka aðstoð
sé að fá.
b) að skapa tengsl milli tækni- og þjónustustofnana
iðnaðarins og þeirri aðila, sem starfa í iðnaði og
að iðnaðarmálum í landshlutanum.
c) að miðla upplýsingum um tækni og rekstrarmál-
efni og hafa ntilligöngu um námskeiðahald og
aðra fræðslustarfsemi, sem völ er á fyrir starfs-
fólk í iðnaði.
d) að aðstoða sveitarstjórnir, félagasamtök, fyrir-
tæki og einstaklinga við athuganir á nýjum við-
fangsefnum í iðnaði.
e) að stuðla að aukinni samvinnu iðnf yrirtækja.
Timarit iðnaðarmanna
87