Tímarit iðnaðarmanna - 01.10.1982, Síða 91
Frá 39. Iðnþingi íslendinga.
A sviði húsgagna- og inm éttingaframieiðslu hef-
ui' \erið unnið að margvíslegum aðgerðum. Leitað
var til fmnskra ráðgjafa í sambandi \ið tækni- og
markaðsmál. í tengslum við þetta verkefni hefur
myndast \ ísir að trétæknideild innan Iðntæknistofh-
unar. Húsgagna- og innréttingaiðnaður hefur búið
við síminnkandi markaðshlutdeild að undanförnu
og staða lians er nú á margan hátt erfið. Stjórn\öld
hafa nú til athugunar með hvaða hætti er unnt að
aðstoða þessa grein frekar.
í sælgætisiðnaði hefur staðið yflr skipulegt átak
fyrir forgöngu Félags íslenskra iðnrekenda í sam-
vinnu \ið iðnaðarráðuneytið og Iðntæknistolnun,
og nýlega samþvkkti ráðuneytið stuðning \ ið vöru-
þróunarátak í hrauð- og kökugerð.
INNLEND ENDURNÝJUN BÁTAFLOTANS
Á fundi sínum í gær samþykkti ríkisstjórnin áætlun
um innlenda endurnvjun bátaflotans á næstu 3—I
árum, en áætlunin hefur verið undirbúin á \egum
iðnaðarráðuneytisins og sjá\ arútvegsráðuneytisins.
Gerir hún ráð fyrir, að smíðaðir verði 5-7 stærri
bátar á ári, þ. e. hjá Slippstöðinni ;í Akureyri,
Þorgeiri og Ellert á Akranesi og Stálvík í Garðabæ í
santvinnu við aðrar skipasmíðastöðvar. Verði veitt
ríkisábyrgð allt að 80% fyrir smíði 4 skipa hverju
sinni, ef nauðsyn krefur. Markmið þessarar áætlun-
ar er að stuðla að lækkun á kostnaði \ ið smíði skipa
hjá innlendum skipasmíðastöðvum með raðsmíði og
hagkvæmari vinnutilhögun, svo og því að endurnýj-
un f iskiskipa fári fram með reglubundnum hætti og
byggð verði skip fyrir íslenskar aðstæður.
Stefna stjórnvalda varðandi stærð fiskiskipastóls-
ins er byggð á því meginsjónarmiði, að ekki verði um
að ræða stækkun fiskiskipaflotans á næstu árum.
Sú endurnýjun, sem reiknað er með í þessari áætl-
un, er vel innan \ ið þau mörk, sem áðurnefnd stefna
setur.
Áætlun þessi tengist sérstöku Samstarfsverkefni
um hönnun og raðsmíði fiskiskipa, sem Félagdrátt-
arbrauta og skipasmiðja stcið fyrir í samvinnu við
iðnaðarráðuneyti og sjávarútvegsráðuneyti.
Á vegum samstarfsverkefnisins hafa verið hann-
aðar nokkrar skipsgerðir, og hefur í því efni verið
tekið mið af kröfum og hugmyndum útvegsmanna
\ íða um land. Á grundvelli þeirra upplýsinga, sem
safnað var saman, \ ar gerð frumhönnun á þremur
skipastærðum, 23, 26 og 35 metra að lengd, og virð-
ist mestur áhugi á 35 metra gerðinni.
Ráðuneytin munu nú taka málið upp við viðkom-
andi sj()ði, svo sem Fiskveiða- og Byggðasjóð vegna
lánveitinga, en gert er ráð fyrir að þessi nýsmíði njóti
í heild 90% lánafyrirgreiðslu. Einnig þarf að afla
lagaheintilda fyrir ríkisábyrgð vegna þessara smíða.
Á þessu ári er samkvæmt lánsf járáællun gert ráð
Timarit iðnaðarmanna
89