Vikan - 05.05.1960, Blaðsíða 6
<j>jfjvUuUa\
'
<X
HrútsmerJciö (21. marz—20. apr.): Líklega kemur
eitthvað fyrir um eða eftir helgina, sem kemur þér
til þess að hugsa alvarlega um, hvort ekki sé þörf
á breytingu á háttum þínum, bæði heima og á vinnu-
stað. Þetta er þér mikilvægt mál, svo að þú skalt
hugsa þig vandlega um, áður en þú tekur nokkrar ákvarðanir.
Vikan virðist hentug til kaupskapar og viðskipta.
NautsmerkiÖ (21. apr.—21. maí): Ef þú hefur átt
von á, að kunningi þinn veiti þér aðstoð, og það
bregzt, skaltu leita til hans á ný. Hann er einungis
lengi að taka ákvarðanir, en getur orðið þér að
ómetanlegu liði. Gamalt vandamál skýtur upp koll-
inum í nýrri mynd. Þetta getur valdið þér nokkrum áhyggj-
um í fyrstu, en endalokin verða þó fremur skemmtileg en
hitt. Stutt ferðalag um helgina. Heillalitur rautt.
Tvíburamerkiö (22. maí—21. júní): Þú skalt ekki
skipta þér um of að málefnum kunningja þinna, en
gott væri að þú fylgdist með gangi málanna. Var-
aztu að sóa kröftum þínum og tíma í einskisnýt
verkefni, og reyndu að sjá fyrir hvernig endalokin
verða. Þú verður að vera sanngjarn og hreinskilinn á vinnu-
stað, ef ekki á að fara illa.
KrabbamerkiÖ (22. júni—23. júlí): öllu andstreymi
í vikunni skaltu taka sem hvatningu til aukinna
dáða. Nú er einmitt rétti tíminn til þess að greiða
úr leiðinlegum misskilningi. sem hefur orðið til þess,
að þið kunningi þinn litið hvor annan ekki réttu
auga. Stjörnurnar lofa annars framförum og miklum afköst-
um.
LjónsmerkiÖ (24. júli—23. ág.): Þú virðist ætla að
leita langt yfir skammt I vikunni, því að hamingjan
er í rauninni á næsta leiti. Vikan færir þér mikla
gleði í sambandi við vinnu þína, og hugmyndin,
sem þú færð um helgina getur orðið einkar ánægju-
leg í framkvæmd, og úr þvi verður líklega á þriðjudag eða
miðvikudag. Keyndu að þiggja heimboð, sem þú færð.
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.): Einn kunningi
þinn verður fyrir aðkasti nokkurra félaga þinna,
og er það nú þitt hlutverk að rétta hlut hans, því
að ef einhver á þetta ekki skilið, er það hann. Sýndu
félögum þinum fram á, að þetta getur komið fyrir
hvern sem er, hvenær sem er. Þér berast undarlegar fréttir
um helgina.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.): Þú skalt reyna
að leysa deilu þá, sem staðið hefur milli þin og
vinnufélaga þins, því að þetta er bæði ykkur og
öðrum til mikils ama, og allt bendir til þess, að ein-
mitt þið getið orðið hinir mestu mátar. Allt bendir
til þess, að þér áskotnist fé óvænt. 1 sambandi við eitt áhuga-
mál berst Þér tilboð, sem stjörnurnar vilja ráðleggja þér að
taka. Farðu ekki út eftir miðnætti á fimmtudag.
JDrekamerkiÖ (24. okt.—22. nóv.): Varastu allar deil-
ur og rifrildi, sem líklegt er að þú kunnir að flækj-
ast i. Þú mátt fyrir alla muni ekki láta tilfinningar
þínar ráða, þegar þú tekur ákvörðun i máli, sem
sízt af öllu snertir tilfinningar þínar. Reyndu að
lifa rólegu lífi, og reyndu að koma auga á allar þær gleði-
stundir, sem dagurinn hefur upp á að bjóða.
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Deiluefni innan
fjölskyldunnar hverfur eins og dögg fyrir sólu um
eða eftir helgina. Vikan virðist ætla að verða einkar
ánægjurík, einkum vilja stjörnurnar benda á mikla
rómantík. Eiginkonur ættu að reyna að láta að ósk
eiginmanns sins, þótt það kosti þær talsvert erfiði, því að
manninum er þetta mjög mikilvægt og getur jafnvel orðið til
þess að hagur ykkar batnar til muna.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): í vikunni gerist
margt, sem gæti breytt framtið þinni til batnaðar,
ef vel er haldið á spöðunum. Varastu að stofna
heilsu þinni í voða með því að ofþreyta þig. Reyndu
að sætta þig við það þótt dagarnir séu ekki eins til-
breytingarríkir núna og áður, því að skemmtilegar vikur eru
í vændum. Maðurinn, sem kom til þín í vikunni sem leið,
kemur mikið við sögu, og skaltu sýna honum nærgætni.
____ Vatnsberamerkiö (21. jan.—19. feb.): Taktu sjálfan
þig ekki allt of alvarlega, þótt þú mætir nokurri
andspyrnu. Þér gefst óvenju glæsilegt tækifæri í
vikulokin, og skaltu ekki hugsa þig um tvisvar áður
en þú tekur það, þvi að stjörnurnar segja, að tæki-
færið sé alveg einstakt. I vikunni skiptir það þig ákaflega
miklu, að þú sért hreinskilinn i einu og öllu.
Fiskamerkiö (20. feb.—20. marz); Vingjarnleiki og
samúð af þinni hálfu getur gert vikuna mjög
ánægjulega og fyllt þig auknum krafti. 1 vikunni
kynnist þú konu, sem verður þér að miklu liði síðar.
Gamall félagi þinn, sem þú varst eitt sinn ekki alls-
kostar ánægður með, sýnir nú hvað í honum býr, og Þið mun-
uð eiga saman margar ánægjustundir.
Útgefandi: VIKAN H.F.
Rilstjöri: Hítstjórn og :mglýsingar:
Glsli Signrðsson (ábm.) Skipliolti 3.'i.
Auglýsingastjóri: ’ Símar: 35320, 35321, 35322.
yisbjörn Magníissson I óstbólf 149.
Franikvæmdasljóri: Afgroiftsla og drcifing:
Hilmar A. KristjánSHon Blaý'admfing, Miklubríuit i.5, sími 15017
Verð i lausasölu kr. VÍÖ? Askriftarverð kr. Prenlun: Milmir h.f.
ZV-i.V'i fyrir hálft árið, greiCist fyrirfram,- Myndamól: Myndamót h.f. *
/ næsta blaði verður m. a.:
♦ Fjórði og síðasti þáttur verðlaunakeppninnar, Kaup-
mannahafnarferð fyrir tvo að launum.
♦ Maðurinn, sem stjórnaði náðaraftökum nazista.
♦ Hugsað heim um nótt — íslenzk smásaga.
♦ AIK undirfatatízkan anno 1960.
♦ Ertu snobbari — nokrar samvizkuspurningar.
♦ Sumarbústaðurinn.
♦ Viðtal við skáld úr afskekktinni.
♦ Sagt í steininum — viðtal við fangavörð.
♦ Grein um Doris Day.
Hvað segja stjörnurnar u mhæfileika yðar, möguleika
og framtíð?
Viljið þér fá svar við þessu þá sendið upplýsingar um
nafn, heimilisfang, f*>ð(r;gardag og ár, fæðingarstað og hve-
nær sólarhringsins þér fæJdust ásamt kr. 500,00, spádómur
fyrir 1 ár kostar 200 krónur, í umslagi merkt pósthólf 2000,
Kópavogi og svarið mun berast yður með pósti.
GLEYMSKA EÐA
FRÆGÐ.
I London og París velta menn
því nú fyrir sér, hvort Elizabeth
Taylor sé orðin mjög gleymin upp
á síðkastið. Ástæðan er sú, að hún,
sem er talin ein launahæsta kvik-
myndastjarnan, heimsótti þessar
tvær höfuðborgir nýlega, en þegar
hún hélt vestur um haf aftur,
skildi hún eftir f jölda af ógreiddum
reikningum. Þarna var um að
ræða reikninga frá beztu tízku-
húsunum, skartgripaverzlunum og
gistihúsum. Mönnum er ekki alveg
ljóst, hvort Elizabeth er virklega
orðin svona gleymin eða hvort hún
heldur, að hún eigi að fá allt ókeyp-
is vegna Þeirrar auglýsingar, sem
þessum stöðum hlotnast af þvl að
fá hana sem viðskiptavin.
I