Vikan - 05.05.1960, Síða 7
Fyrir hverju er draumurinn?
Nú hafið þið tækifæri til þess að fá rétta ráðningu á draumum. Um það sér drauma-
ráðningamaður, sem VIKAN kemur ykkur í samband við. Utanáskrift: VIKAN, póst-
hólf 149.
Til Draumráðandans.
Fyrir nokkru dreymdi mig, að ég ók í litlum
bil eftir Miklubrautinni, þar sem alltaf er verið
að vinna, þú veizt. Ég var á vegarkaflanum fyrir
ofan HliSarnar, þar sem vegurinn er ekki breið-
ur og ekki er enn búið að gera hann tvöfaldan.
Skyndilega sá ég geystistóran Henschelvörubíl
koma æðandi á móti mér, ~ oó að Mikla-
brautin sé allbreið, komst ég ekki fram hjá
bílnum, og hann ók beint yfir mig, og þá vakn-
aði ég við vondan draum. Hvað heldurðu, að
draumurinn þýði?
Með þökk fyrir ráðninguna,
Stjáni.
Svar til Stjána.
Draumur þessi er allathyglisverður, og er
mér næst að halda, að verið sé að hlunnfara
þig í viðskiptum. Það að vera staddur á Miklu-
brautinni er alltáknrænt, því að mikið hefur
verið um hana rætt í sambandi við mikinn
kostnað. Ég vildi ráðleggja þér að athuga
gaumgæfilega gang þinn í fjármálunum. Ekki
þætti mér ósennilegt, að þú sért í félagsskap
með einhverjum manni í sambandi við fyrir-
tæki, sem hefur vafasaman rekstrargrundvöll.
Ég held, að þú ættir að hafa fjárreiður fyrir-
tækisins sjálfur með höndum. Sýnilegt er samt
sem áður, að til tíðinda mun draga í ykkar
viðskiptum innan skamms og það þér í óhag.
Öll verðum við fyrir áföllum f lífinu, fleiri
eða færri, og er ekki annað að gera en taka því.
Draumráðandi Vikunnar.
Fyrir nokkru dreymdi konu, sem ég þekki,
en vil ekki nafngreina, svo einkennilegan draum,
að ég vil endilega segja þér hann, ef vera kynni,
að þú gætir varpað ljósi á þá furðulegu at-
burðarás, er átti sér stað i draumnum. Nafn
konunnar vil ég ekki gefa upp til að valda
henni engum óþægindum.
Konunni birtist í draumi ákaflega bjartur og
friður maður. Virtist henni sem bjarmi stæði
út frá honum. Hann hafði „túrban“ á höfði eins
og Indverjar. Komumaður heilsaði konunni
vingjarnlega og kvaðst vera kominn til að fræða
hana um ýmsa dulfræðilega hluti, sem konan
hafði ekki getað skilið áður. 'Hann sagði meðal
annars: „Þú hefur oft brotið heilann um endur-
holdgun og ástæðuna fyrir henni. Eðlilegt er,
að fólk hugsi mikið um þessi efni. Á Vestur-
löndum er almennt litið svo á, að aðeins sé um
eitt lif að ræða og siðan deyi fólk og bíði dóms-
dags. í Austurlöndum, þar sem mikill meiri
hluti jarðarbúa býr, er hins vegar litið svo á,
pð menn endurholdgist mjög oft og þróist til
mannlegrar fullkomnunar hér á þessari jörð.
Dvöl vor á jörðinni samsvarar skólavist. Vér
göngum í skóla, unz vér höfum þekkingu og
hæfni til að taka fullnaðarpróf. Þá væri oss
gefinn kostur á upprisu á hærri og dásamleg
tilverustig, en þar eins og hér eru einnig við-
fangsefni til enn meiri þróunar. Sumir efnis-
hyggjumenn halda þvi fram, að ekkert lif sé til
eftir dauðann, og svo undarlega vill til, þegar
þeir missa jarðlíkamann og koma inn á tilveru-
svið dáinsheima, að þeim er ekki enn ljóst, að
þeir eru dánir. Þeir berja i borðið og segja:
„Sjáðu bara, þetta er algerlega fast fyrir. —
Framhald á bls. 34.
Þegar uppfinningamaSur sam-
kvæmisins hafði útskýrt, að hann
ætlaði að finna upp sjálfsala, þar
sem menn gætu stungið í tíkalli og
fengið nýja konu, sagði einn gest-
anna: „Því ekki að finna upp nýj-
an sjálfsala, þar sem hægt er að
setja konuna sína í og fá tíkall
til baka.“
Elliott O'Donnell, sem er sér-
fræðingur í öllu, sem varðar
drauga, hefur skrifað bók um sýn-
ir næturinnar, þar sem hann ásamt
fleira segir frá kvensama draugn-
um í Hove, litlu sjávarþorpi i
Sussex. I sumargistihúsi í Hove
bjó frá Ball frá Richmond í sum-
arleyfi sínu. Dag einn, er hún stóð
við glugga á herbergi sínu, sá hún
miðaldra mann veifa upp til sín.
Hann var smekklega klæddur og
hafði hvítt blóm í hnappagatinu
og brosti til hennar.
Sér til undrunar og hræðslu sá
frú Ball frá Richmond, að maður-
inn gekk inn í húsið, og augnabliki
siðar gekk hann inn I herbergi
hennar. Undrandi á þessari frekju
skipaði hún manninum að fara út.
Nokkrum dögum síðar sat mað-
urinn aftur inni í herbergi hennar
og brosti ástúðlega til hennar.
Skjálfandi af reiði fór frú Ball frá
Richmond til hótelstýrunnar, frú
Smith, og bað hana að láta fjar-
lægja hinn óboðna gest Föl og
óttaslegin fór frú Smith upp í
herbergi frú Ball frá Richmond,
en kom aftur og sagði, að það væri
enginn maður í herberginu.
Eg hef merkilega sögu að segja
yður, sagði frú Smith. Fyrir fimm
árum hafði herra Price á leigu
tvö samliggjandi herbergi á fyrstu
hæð í gistihúsinu.
Ég hafði ekkert út á hann að
setja, fyrr en ung og falleg ekkja
kom hingað. Nokkrum dögum síð-
ar kvartaði hún um, að herra Price
elti hana. Hann lofaði að hætta
því, en hélt ekki orð sín og ekkjan
fluttist burt.
Eftir það leitaði hann á aðrar
konur í gistihúsinu, og frú Smith
var neydd til að segja honum upp.
Herra Price varð svo reiður, að
hann sór, að hann mundi ganga
aftur og heimsækja gistihúsið eftir
dauðann, svo lengi sem frú Smith
væri þar.
Hann dó ári síðar, og gekk þetta
svona, þar til frú Smith seldi gisti-
húsið. Eftir það varð enginn var
við hann.
Tryggingu
fyrir öruggum rekstri
veita rafmótorar vorir fyrir jafn-
straum og víxlstraum. Þeir fást I
mjög miklu úrvali af ýmsum teg-
undum og gerðum, allt að 4000
kw lyftumótorar, sem bæði eru
eldtraustir og vatnsþéttir.
Gjörið svo vel að heimsækja okk-
ur þar sem við sýnum á XXIX. al-
þjóðlegu kaupstefnunni í Poznan
12. til 26. júní 1960 í skála nr. 11.
Einkaútflyt jendur:
Polish Foreign Trade Company
for Electrical Equipment Ltd.,
Cléktfluí'
Warszawa 2, Czackiego 15/17,
P. O. Box 254. Sími: 6-62-71.
Umboðsmenn: TRANS OCEAN BROKERAGE
AUSTURSTRÆTI 14,
REYKJAVÍK.