Vikan - 05.05.1960, Qupperneq 24
Hin margumtalaða kvikmynd
frá Metro Goldwin Mayer
Ólgnndi
blóð
Aukið blæfegurð Iiársins . ..
með hinu undraverða
HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F.
Hverfisgötu 103 — Simi 11275.
YVHÍTE RAIN fcgrand i Shampoo . . . petta
undraverða shampoo, sem gefur hárinu
silkimjúka og blæfagra áferð.
Petta ilmríka WHITE RAIN shampoo . . .
gerir hár yðar hæft fyrir eftirlætis hár-
greiðslu yðar.
petta frábæra WHITE RAIN shampoo
. . . lætur æskublæ hársins njóta sín og
slær töfraljóma á pað.
Hvítt fyrir venjulegt hár —
Blátt fyrir purrt hár —
Bleikt fyrir feitt hár.
WHITE RAIN shampoo-hæfir yðar hári.
Pete Rugolo
Pietro Rugolo eða „Pete“, eins og hann hefir
venjulega verið kallaður, er einn þekktasti útsetjari,
sem hingað til hefur komið fram i heimi jazzins.
Hann er ítalskur að ætterni, fæddur í Messína á jóla-
dag 1916. Þegar hann var fjögra ára, flutti fjölskyld-
an til Ameríku og þar lærði Pete að spila á píanó
og var seinna við nám á „Mills College“ í San
Fransisco. Og um sama leyti gerðist hann atvinnu-
hljóðfæraleikari og spilaði þá með ýmsum óþekkt-
um hljómsveitum. Á árunum 1941—42 vakti hann
athygli fyrir útsetningar, sem hann gerði fyrir hljóm-
sveit Johnny Richard og var litlu seinna orðinn víð-
frægur útsetjari.
Eftir að liafa gegnt herþjónustu í nokkur ár, réð-
ist hann til Stan Kenton og fyrir hljómsveit hans
skrifaði Pete næstum allar útsetningar til ársins 1950
og m. a. margar mjög svo nýsárlegar fyrir hinn
heimsfræga söngkvartett „Four Fréshmen“.
Er hann liætti störfum hjá Kenton varð hann leið-
andi tónlistarmaður hjá hljómplötufyrirtækinu
„Capitol“ og „MGM“ og stofnaði eigin hljómsveitir,
sem eingöngu léku inn á hljómplötur.
Pete Rugolo hefur löngum borið af flestum öðrum
jazzútsetjurum fyrir skemtilega tilbreytni i útsetn-
ingum sinum og nýstárlegar hugmyndir. ★
24
VIKAN