Vikan - 05.05.1960, Blaðsíða 25
KVIKMYNDIR
með Frank Sinatra og Ginu Lollobrigida í aðalhlutverkum
Tom Ueynolds höfuðsmaður (Frank Sinatra)
er yfirmaður innfæddra hersveita í Burma,
sem hafa því hlutverki að gegna að verjast árás-
um Japana inn í landið. -A Japanir gera árás
og margir hermenn særast — þar á meðal
Mortimer höfuðsmaður, vinur Toms. (Richard
Johnson). Engir læknar eru þarna nálægir, svo
Tom fer til Kalkútta i flugvél með Mortimer,
til þess að koma honum til læknis. Mortimer
er á batavegi og þeir félagar fara út að skemmta
sér og gleyma áhyggjum stríðsins um stund. f
næturklúbb einum hitta þeir gamla vinkonu,
hjúkrunarkonuna Margaret Fitch (Kipp Ham-
ilton). ★ Yfirmaður hennar, Parkson ofursti
(Robert Bray), er einnig þarna staddur og í
fylgd með honum eru Nikko Regas (Paul
Henreid) og hin fagra, svarthærða Carla Vesari
(Gina Lollobrigida), sem er ungversk. Tom
verður hugfanginn af þessari ungversku stúlku,
en hún tekur honum kuldalcga. Regas býður
honum að dvelja á landsetri sínu og þar hittir
Tom aftur Cörlu og eyða þau saman nokkrum
dögum á þessum friðsæla stað. ★ Þau ferðast
þarna um umhverfið og skemmta sér ágætlega.
En þá veikist Mortimer hastarlega af malariu.
Eftir að Tom hefur náð í lækni, tekur hann
þá ákvörðun að fara aftur til hersveitanna, þó
að honum sé ekki ljúft að yfirgefa hina fögru
vinkonu sína. En áður en hann fer, reynir
hann að tala alvarlega um málin við Clöru, en
hun vill ekkert með hann hafa — segir að það
geti aldrei orðið neitt á milli þeirra, en hún
muni aldrei gleyma honum. -jtc Þegar Tom er
að stíga upp í flugvélina, kemur Carla til hans
til að kveðja hann og binda endi á þessa róman-
tísku daga. Carla er ásamt Regas í leyniþjón-
ustunni — en Tom veit ekkeri um það, né það,
að fólk, sem gegnir slikum störfum á erfitt með
að breyta til og snúa aftur til borgaralegs lífs.
•Ar En aðskilnaðurinn varir ekki lengi. Tom er
ekki fyrr komin til Kalkútta en hann fær heim-
sókn. Þar er Carla komin, þrátt fyrir ásetning
sinn — og segir, að hún geti ekki án hans ver-
ið. En dýrðin stendur ekki lengi. Tom hefur
tekið hernaðarlegar ákvarðanir á eigin spýtur,
er talinn hafa brotið lög og reglur og er leidd-
ur fyrir herrétt. En eftir mikið þóf, sleppur
hann samt við að verða dæmdur. Carla fagn-
ar Tom þegar réttarhöldunum loksins lýkur.
Hún lofar. að fara ekki frá honum aftur og nú
er ekkert, sem skyggir á hamingju þeirra.
/
V I K A N
25