Vikan - 25.08.1960, Blaðsíða 9
Næturlífið í Rómaborg er mjög fjölskrúðugt og þátttakendur þess ent
ekki sízt aðalsfólk borgarinnar, sem hefur of mikla peninga og of fá við-
fangsefni fyrir utan nætur- og nautnalíf. Þar hefur hvert hneykslið öðru
verra verið dregið fram í dagsins ljós og nú hefur Frederico Fellini gert
kvikmynd, sem fjallar um þetta efni.
BORG PAFANS
Mílanó eru frægir iðjuhöldar allir á nálum, dauð-
hræddir um að nafn þeirra verði nefnt í sambandi
við þetta- hneyksli.
... OG f VERZLUN SEM SELDI MYND-
SKREYTTAR ÁSTARSÖGUR ...
1 Róm er lögreglan nú að fletta ofan af enn
einu hneykslinu. 1 þetta sinn voru það sóðalegar
Ijósmyndir. Að minnsta kosti 45 stúlkur eru riðnar
við þetta mál. Margar þeirra eru aðalbornar.
Myndirnar voru teknar á vinnustofu, sem hafði
það af yfirskyni að selja myndskreyttar ástar-
sögur. Stöku sinnum auglýstu forráðamenn eftir
ungum stúlkum, til þess að sitja fyrir. Myndirnar
áttu að birtast í þessum „myndskreyttu ástarsög-
um“. Upp komust svikin, þegar faðir 16 ára stúlku,
Franca Aloisi, tjáði þetta lögreglunni. Þrír ungir
menn eru álitnir sekir. Þeir eru alilr af aðals-
ættum.
HENNAR HÁTIGN BARNAMORÐINGINN ...
Konurnar á Italíu eru ekki barnanna beztar. 1
fyrra komst upp um enn eitt hneykslið, þegar
hin þrituga, efnaða greifynja Paola del Landerset
og sextug móðir hennar voru handteknar og sak-
aðar um barnamorð, notkun nautnalyfja og al-
mennt siðleysi. Paola greifynja, sem hafði ekki
búið með manni sínum i mörg ár, hafði eignast
barn á laun. Móðir hennar og hún kyrktu barnið,
strax eftir fæðinguna.
Enginn þjónanna á sveitasetra greifynjunnar,
Selva del Monteiio í Trevise nálægt Feneyjum,
hafði haft nokkra hugmynd um, að greifynjan
hafði verið með barni. Likið fannst í síki, sem
flýtur um skemmtigarð Selva del Montello. Báðar
konunnar játuðu á sig glæpinn, en neituðu að
segja til um föður barnsins.
Það kom brátt í Ijós, að greifynjan og móðir
hennar höfðu í tíu ár haldið samkvæmi fyrir há-
aðalinn i Feneyjum, þar sem neytt var morfins
'og kókaíns. Samkvæmt lögregluskýrslum hafa
konurnar eytt hálfri milljón líra i þessar nautna-
samkundur. Lögreglan heldur því einnig fram,
að barnið hafi verið drepið er konurnar voru í
eiturlyfjavímu. Greifynjan og móðir hennar eru
nú á hæli fyrir áfengissjúklinga og eiturlyfja,-
neytendur.
PIGNATELLI PRINSESSA ... EKKI BEIN-
LÍNIS NEINN DÝRLINGUR ...
Nú er efst á baugi hneykslið um Giovanna
Pignatelli prinsessu og hinn fræga franska visna-
söngvara Dany Daubenson. Prinsessan er t.uttugu
og sex ára og bráðfalleg. Árið 1954 giftist hún
hinum þekkta franska kvikmyndaleikara Georges
Brehat, sem hætti að leika og settist að í' Róm
sem kaupsýslumaður. Þau skötuhjú eignuðust nú
barn. Eftir nýárið hvarf prensessan skyndilega
að heiman. Stuttu siðar kom hún aftur, en aðeins
til þass að setja ofan í nokkrar ferðakistur og
hverfa síðan á nýjan leik. Nú sakar Georges
Brehat Dany Dauberson um að hafa fíflað konu
sína og eyðilagt hjónaband þeirra. I Róm, og þá
helzt í Vatikanrikinu, standa menn á öndinni.
Prinsessan er beinn niðji Innócentíusar páfa, sem
er nú dýrlingur, og jesúítans José Pignateili, sem
einnig er dýrlingur.
En samkvæmt frásögn eiginmannsins er
Giovanna sjálf enginn dýrlingur. Þegar hún hvarf
í annað sinn, bað hann lögregluna að leita hennar.
Þá skaut prensessan upp kollinum og hafði viðtal
við blaðamenn í Róm. Hún sagði blaðamönnum,
að hún og Dauberson hefðu skroppið tii Capri
og síðan farið í smáferð til Aþenu. Nú vill prins-
essan skilnað, en verður líklega að láta sér nægja
aðskilnað. Eins og menn vita, er afar erfitt. að
fá skilnað á Ítalíu, þegar vígt hefur verið í kirkju,
eins og prinsessan og maður hennar.
„CLUB 84“ OG RÓMYERSKUR
„ARMSTRONG-JONES“.
Ef menn vilja kynna sér til hlítar gerðir háað-
alsins, eins og honum er lýst í „Dolce Vita“, er
„Club 84“ mjög hentugur staður til þess að kynn-
ast næturlífinu. Klúbbinn á Guerini markgreifi
og fleiri stórbokkar. Þó gæti orðið erfitt að kom-
ast inn, því að klúbburinn er lokaður jafnoft og
hann er opinn. Og þegar hann er lokaður, er þaS
samkvæmt skipun lögreglunnar — eins og kom
fyrir fyrir skemmstu, eftir mikla ölvun og slagsmál
og einu sinni var honum lokað, er nokkrir furst-
ar og greifar voru staðnir að þvi að kaupa eitur-
lyf í klúbbnum. Furstarnir og greifarnir voru
keyrðir í fangelsi, og Það var ekki í fvrsta sinn,
því að allir voru þeir forfallnir „snjó“-neytendur.
E’inn þessara manna var hinn tvítugi furstí
Guiseppe Aragona-Pignatelli Cortis, og hann varð
að dúsa í fangelsi í marga mánuði. Sama dag og
hann slapp út, giftist hann ungri rómverskri
stúlku af góðum ættum, Guili Gallarati, sem virð-
ist vera tvíburasystir Soraya fyrrverandi keisara-
ynju. Nú sjást ungu hjónin tíðum í „Club 84“.
. Þar sést einnig spjátrungurinn Dado Ruspoli
fursti, sem einnig er kunnugur fangelsunum, sakir
eiturlyfjaneyzlu. Dado er 34 ára, glæsilegur mað-
ur, og að sögn jafnvinsæll meðal karla og kvenna.
Dado er giftur Francescu prinsessu, fæddri Blanc,
en hann hefur ekki búið með konu sinni í mörg
ár. Þar sem hann er af „svarta aðlinum” — það
er að segja titlaður af Páfa — getur hann ekki
fengið skilnað. Fjölskylda hans er vellrík, en engu
að síður er hann einn þeirra fursta sem vinnur.
Framliald á bls. 32.
Dado Ruspoli prins hefur margoft verið handtekinn vegna eiturlyfjanotkunar. Þrátt fyrir
það hefur hann auðsýnilega haldið valdi sínu yfir veikara kyninu, og sést stöðugt með nýj-
um vinkonum. Upp á síðkastið hefur hann mjög óft sést með stúlkunni á myndinna, Mara
Lane að nafni.