Vikan - 25.08.1960, Side 11
Fjórði og næstsíðasti bátturinn
fJtvarpsskrifborð frá Edda Radio — Verðmæti kronar 15.000.00
Umboð á Islandi: Sveinn Björnsson & Co.
f þessari verðlaunakeppni Vikunnar, er um
mjög glæsilegan vinning að ræða. Það er út-
varpsskrifborð frá Edda radio í Noregi, en um-
boð fyrir það fyrirtæki hefur Sveinn Björnsson
& Co. Borðið er í senn fegurt og hagkvæmt,
það tekur lftið pláss, en rúmar vel og
er sannkallaður prýðisgripur, hvar sem væri.
Efnið er tekk, en mssinghólkar á fótunum. f
því er bókahilla og skápur fyrir ritvél og ann-
ar fyrir^ segulband, eða hvað sem vera skal
annað. Útvarpið er innbyggt og það er mjög
hagkvæmt fyrir ungt fólk, sem býr þröngt. Það
er mjög gott og skulu hér talin upp nokkur
tæknileg atriði, sem prýða gripinn; en þó er rétt
að taka það fram, að þau Jón Pétursson og
Hildigunnur Dungal fylgja ekki vinningnum.
Helztu kostir útvarpstækisins eru þessir:
* Sjö lampa móttökugerfi, Novallampar af
nýjustu gerð, þrettánföld lampavirkni, ótrú-
legur næmleiki og hrein tóngjöf.
* Metramerktur bylgjuborði, stillingin ónæm
fyrir truflunum og samruna frá öðrum
stöðvum.
* Fjórir sérskildir bylgjuborðar, sem ná yfir
bylgjusvið 13—2000 m, eða það svið sem
heimilað er fyrir útvarpssendingar nú og
framvegis.
* Víkkað bátabylgjusvið, 1650—5900 kc/s.
* Stöðvastillir með jafnvægishjóli og mismuna-
drifi, sem gerir stillinguna ótrúlega auðvelda
og hraðvirka.
* Sérstakir stillar framan á, sem skipta á
grammófón og segulbandstæki eftir vild, svo
ekki þarf að tefja sig á að tengja leiðslur
eða öðru þessháttar.
* Sjálfvirk hljómstilling, sem heldur jafnari
hljómfyllingu hversu lágt sem útvarpið er
stillt.
* Ljósauga með tveim næmleikagráðum, sem
gefur til kynna nákvæma stillingu, bæði á
veikar og sterkar stöðvar.
* „Tal og hlustunarkerfi“, sem gerir kleift að
tónlist og tal berist um viðtækið milli
tveggja herbergja — meðal annars má nota
þetta tæki til að fylgjast með börnum í öðru
herbergi.
* Fimmskipt dískantstilling, sem nær bæði til
hljómfyllingar og tóngæða. Sérstök bassa
stilling, svo maður getur alltaf ráðið sam-
hljómuninni eftir sínum eigin smekk.
* Ómvíddarkerfi, — High Fidelity — sterkur
konserthátalari og tveir dískanthátalarar,
stilltir fyirr þrívíða rétthljómun.
* Tengsli fyrir aukaleiðslur til hátalara í eld-
húsi eða öðrum herbergjum — tækið er
nægilega sterkt fyrir nokkra slíka hátalara
samtímis.
* Innstungur, sem gera kleift að skipta frá
segulbansdtæki á plötuspilara með einu
handtaki.
* Innbyggt loftnet fyrir lágbylgjur, sem einnig
má nota í sambandi við önnur bylgjusvið.