Vikan


Vikan - 25.08.1960, Síða 13

Vikan - 25.08.1960, Síða 13
LÆPAMANNSINS • y „Þessar yndislegu hendur hafa drepið betri menn en þig,“ sagði faðir minn reiður og hélt, að ég væri að gera gys að honum fyrir að vera hræddur við Antonio. Nú loks rankaði ég við mér, og það var sem ískalt vatn rynni mér milli skinns og hörunds. Florella var dóttir Antonios, morð- ingjans. Mér varð svo hverft við, að ég náfölnaði, og móðir mín tók eftir því. „Hvað er að þér, drengur?" spurði hún og greip til smjörolíunnar, en frá þvi að ég mundi eftir mér, hafðis mjörolía verið allsherjar-læknisráð móður minnar við öllum kvillum minum. „Ég er ástfanginn,“ flýtti ég mér að segja, því ég vissi, að allar aðrar afsakanir mundu enda með því, að ég yrði að gleypa nokkrar skeiðar af viðbjóðslegri smjörolíu. „Ástfanginn!" æpti móðir mín skelfingu lostin. „Hvar er meðalaskeiðin?" sagði hún, um leið og hún sneri sér að föður mínum, og áður en ég fékk > nokkurri vörn við komið, hafði ég gleypt fjórar skeiðar af smjöroliu. „Þetta læknar þig af allri ást,“ sagði hún síðan sigri hrósandi. Lengi, lengi eða næstum heila viku lifði ég í minningunni, en þá fór minningin um hana að fölna smátt og smátt, og mér varð ljóst, að jafnvel þótt það væri sjálfur andskotinn, sem hún væri komin út af, þá yrði ég að fá að sjá hana aftur. Snemma næsta sunnudag sat ég á knæpu einni og beið, þar til að Eugenia og Florella gengu fram hjá á leið til kirkju, hin fyrrnefnda bogin og kerlingarleg, en hin síðarnefnda i senn tiguleg og glæsileg. Hún hafði yfir höfði sér sömu svörtu slæðuna sem venjulega skýldi andliti hennar, en nú vissi ég af eigin reynslu, hvílík töfrandi fegurð leyndist þar að baki. Hendurnar á mér skulfu, og ég hafði næstum misst miðann, sem ég ætlaði Flórellu. Á miðanum var kvæði, þar sem sagði, að ég væri að deyja af ást til hennar og að hún, ef hún liti út um gluggann á herbergi sínu( klukkan tvö næstu nótt, mundi sjá mig standa undir kirsuberjatrjánum i garði föður hennar. Ég flýtti mér yfir torgið, tilbúinn með miðann x hend- inni, og komst að kirkjudyrunum rétt á eftir Florellu og nornarskarninu, sem gætti hennar. Ég ruddist að Florellu og snerti hönd hennar með hvössu horninu á samanbrotnum bréfmiðanum. Enn einu sinni heyrði ég hina guðdómlegu rödd segja: „Ó, Jesús" — og fann, að hinir fíngerðu fingur tóku viðbragð af undrun, en lukust síðan saman um bréfmiðann. Næstu nótt, þegar tunglið kom upp og hundarnir tóku að ýlfra í fjalls- hlíðunum í fjarska, klifraði ég yfir vegginn á garði signor Antonios og var sannast sagna með hjartað í buxunum. Hnén á mér skulfu, er ég settist niður við stofninn á digru tré, og ég andaði léttar augnablik. Ég virti fyrir mér dyrnar á eldhúsinu og eina sex glugga á þeirri hliðinni, sem að mér sneri. Ef signor Antonio hefði komið út á þeirri stundu, hefði ég verið dæmdur maður, því að ég hefði ekki getað gert hið minnsta til að bjarga mér. Ég mundi hafa legið þarna kyrr, meðan hann tæmdi marg- hleypu sina á mig, og eina von mín hefði verið, að það yrði hún, sem fá mundi það hlutverkið að loka augum mínum í hinzta sinn, augum, sem brostið hefðu vegna hennar. Langt í burtu sló bæjarklukkan tvö högg, og timinn var kominn. Hvað var þetta? Lítill smellur heyrðist, og ég sá svefnherbergisglugga opnast hægt og varlega. Ég hélt niðri i mér andanum og starði ákaft á mannveru, sem kom i ljós i glugganum. Jú, það var ekki um Það að villast, þetta var ... Florella. „Florella!“ æpti ég og stökk á fætur. Hvilíkur bjáni var ég að hafa aldrei lært á hljóðfæri, t. d. á gítar eða fiðlu. En hvað um það, ég mundi þó að minnsta kosti geta sungið fyrir mína heittelskuðu, og ég byrjaði eins hjartnæmt og ég gat: „O, sole mio!“ Klædd náttkjól og með hárið líkt og foss um yndislegar axlirnar stóð Florella á svölunum og hallaði sér yfir handriðið í áttina til mín. „Uss,“ hvíslaði hún með angist í hreimnum, þegar ég byrjaði að syngja, og ég mundi allt í einu eftir signor Antonio og Eugeniu. Ég þagnaði skelfingu lostinn, en læddist samt nær húsinu. „Teygðu þig niður til min,“ hvíslaði ég, og hún hallaði sér niður til mín, þar til fingur minir gátu næstum snert andlit hennar. „Það er mjög rangt af þér að koma,“ hvislaði hún. „Ég veit það,“ svaraði ég aðeins. Ef ég bara hefði munað eftir þvi að hafa með mér eitthvað til að standa á, þá hefði ég getað snert hár hennar og ef til vill kinnar hennar, hvað þá heldur ef ég hefði haft með mér stiga ... „E’r stigi í garðinum þínurn?" hvíslaði ég. „Ó, guð minn góður!“ stundi Florella. „Hvernig dettur þér annað eins i hug? Ef þú svo mikið sem snertir við stiganum neðst i garðinum, þá er ég viss um, að Eugenia mundi heyra það.“ En ég var þotinn þegar i stað eftir stiganum. Síðan setti ég stigann traustlega fyrir neðan glugga Florellú og klifraði upp hann, þar til and- lit mitt var í sömu hæð og andlit hennar. „Þetta máttu ekki,“ stundi Florella. „Þetta er afskaplega rangt af þér.“ „Ég veit það,“ tautaði ég og hélt hári hennar upp að kinn minni. öxl hennar, slétt sem fílabein undir baðmullarnáttkjólnum, var aðeins þuml- ung frá vörum minum. „Ó,“ andvarpaði hún, þegar ég kyssti hana á öxlina. Það var líkt og rafmagnsstraumur færi um hverja einustu taug líkama míns, svo að ég hristist allur, þar sem ég stóð í efsta þrepi stigans, og Florella greip utan um mig með handleggjunum. „Þú dettur niður,“ hvíslaði hún. „Farðu niður!“ En hendur hennar héldu nú utan um mig og hendur mínar utan um hana. „Ef ég kæmist upp í gluggakistuna, þá væri ég öruggari," sagði ég. „En væri ég Þá öruggari?“ hvíslaði hún. Varir hennar titruðu af hræðslu, og ég róaði Þær á þann eina veg, sem ég sá mér mögulegan: Ég kyssti þær. „Ó, Pietro!" hvíslaði hún, þegar hún gat hvíslað aftur. „Hversu oft hef ég ekki séð þig við messu, og hvernig gat ég vitað, að þú værir svona slæmur?" „Ó, Florella," stundi ég. „Hversu oft hef ég séð þig við messu, og hversu lítið vissi ég um það, hve fögur þú værir." Höfum við, raunverulega kysstst, eða hafði mig dreymt það? Ég beygði mig áfram til að fullvissa mig, þrýsti handleggjum mínum utan um mjúkar, eftirlátar axlir hennar, hallaði mér fram yfir grindverkið, og ... skyndi- lega féll stiginn fram, en hann hafði alltaf verið reikull undir fótum mér, og datt síðan niður. Eitt augnablik, sem virtist mér heil eilífð, hékk ég hjálparlaus og hélt mér í Florellu. Þá heyrðist allt i einu feikna-hávaði fyrir neðan, þegar stiginn féll niður. Það var líkt og hundrað tré hefðu verið höggvin niður I einu, og hver einasti hundur í nágrenninu byrjaði að gelta. „Ó, guð minn góður," æpti Florella, Eugenia hlýtur að heyra þetta. Farðu strax.“ „Stiginn," stundi ég. „Stiginn er dottinn, — hvernig kemst ég niður?“ 1 stað þess að hoppa niður klifraði ég yfir grindverkið. upp í gluggakist- una, þar sem ekki var hætta á því, að ég dytti niður, og síðan inn í her- bergi Florellu. Þegar hún sá þetta. rak hún upp ógurlegt óp, eins og ég væri ókunnugur, og á sama augnabliki var dyrunum hrundið upp, og Eugenia kom þjótandi inn með lampa í annarri hendi. „Þú!“ skrækti hún ógurlegri röddu. Úr herberginu við hliðina heyrðist í jafnvel enn hræðilegri rödd, rödd signors Antonios, sem öskraði: „Hvað er þetta? Hvað er um að vera? Hvar er byssan min?“ Og þá var sem fæturr mínir færu að starfa af sjálfs- dáðum, því að ég sneri mér við, hljóp í áttina að glugganum, dró djúpt að mér andann og kastaði mér yfir handriðið á svölunum eitthvað út í loftið. Ég veit ekki, hvar ég hef búizt við að hafna, en lenti hins vegar mitt í kirsuberjatré og féll niður á jörðina með heil kynstur af brotnum grein- um og kirsuberjablómum með mér. Ég byrjaði að hlaupa, áður en fætur mínir höfðu snert jörðina, og hentist í áttina að veggnum líkt og gúmmi- bolti. Fyrir aftan mig opnaðist annar gluggi, og signor Antonio öskraði út í nóttina: „Stanzaðu, eða ég hleypi af!“ Augnabliki síðar heyrðist ógur- legur hvellur líkt og í fallbyssu, og kúla þaut rétt fram hjá mér. En ég var kominn yfir vegginn og farinn að hlaupa heimleiðis fljótari en nokk- ur veðhlaupaklár. Ó, bara að þetta allt hefði endað á annan hátt. En því var ekki að heilsa, þvi að það hafði sézt til mín, og mannorð Florellu, jafnvel líf hennar, var í hættu. Mundi faðir hennar drepa hana? Ég hægði skyndilega á hlaupunum. Mundi hann myrða mig? Ég herti hlaupin aftur. Mér flugu i hug steypu- vestin frá Brooklyn, og ískaldur hrollur fór um mig, Ætti ég að flýja til Framhald á næstu síðu. Allt jborp/ð óttaðist föður hennar, ég ekki síður en aðrir. En jafnvel Jbótt hún væri dóttir sjálfs djöfulsins, Jbd yrði ég að fá að sjá hana aftur tflKAN 13

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.