Vikan - 25.08.1960, Síða 22
Fyrir hverju er draumurinn?
Draumspakur maður ræður drauma fyrir lesendur Viknnnar
Ef yður dreymir þá drauma, að yður leiki forvitni á um þýðingu þeirra, þá skrifið Vikunni,
pósthólf 149 og bréfinu verður komið til draumráðningamannsins. Ráðning á draum kostar 20
krónur, nema menn vilji fá skriflegt svar beint frá draumráðningamanninum þá kostar ráðn-
ingin 50 krónur.
Dráumráðandi Vikunnar.
Fyrir hálfum mánuði dreymdi mig, að ég
kæmi inn í herbergi hér á heimili minu, og fannst
mér ég sjá dóttur mina litla liggja þar á sófa.
Ég gekk til hennar og sá bá, að hún var öll
blóðug í framan. Mér fannst ég verða hrædd
og taka lakið og reyna að þurrka af henni, en
það var eins og það kæmi strax aftur á hana,
— sama hvað ég þurrkaði. Við þetta hrökk ég
upp. Draumurinn var ekki lengri, en mér leið
mjög illa, þegar ég vaknaði.
Sigurbjörg.
Svar til Sigurbjargar.
Barninu er ráðlagt að fara mjög gætilega
á næstunni, því að þessi draumur er fyrir
meiðslum og vandræðum.
Til Draumráðandans.
Nýlega dreymdi mig draum, sem mig langar
að biðja þig að ráða fyrir mig, og hann er svo-
hljóðandi:
Mér fannst ég sjá hátt fjail með þurrum lækj-
arfarveg, sem náði ekki upp á fjallsbrún, en
endaði þar við klöpp. Og þótti mér ég sjá
feiknarstóran orm, sem líktist ánamaðki og mjög
áberandi rauður. Leitaði hann upp lækjarfar-
veginn og virtist ætla að komast upp á klöpp-
ina, en tókst ekki og rann þá niður fjallið, og
þegar hann kom niður, líktist hann stórum
snigli. Hann reyndi jjrisvar að komast upp aft-
ur, en ailt fór á sömu leið. Þar til mér finnst
ég segja -við einhvern: „Sjáið þið bara stóra
orminn jjarna í fjallinu." En þá var hann liorf-
inn. Og þar skammt frá var sprunga eða jarðfall
i fjallinu, og þóttist ég vita, að hann hefði lent
niður í það, og fannst mér það vera eins og
blóði drifið í kring. Þóttist ég vita, að það væri
úr orminum. -— Með þökk fyrir birtinguna.
Húsmóðir.
Svar til húsmóður.
Draumurinn merkir, að vandamál þín eru
að leysast í sambandi við smávægilegar
f jölskylduerjur.
Draumráðandi Vikunnar.
Mig dreymdi, að ég væri innan um marg-
menni. Mér varð allt í e-inu litið á hægri hönd
mér. Mér fannst ég vera með örmjóan gifting-
arhring og snúru fyrir framan hringinn. í
draumnum fannst mér ég livorki vera trúlofuð
né gift, en samt fannst mér ekkert vera athuga-
vert við að hafa liringinn.
Með fyrir fram þökk,
• Ynnos (Sonny).
Svar til Ynnos.
Hringurinn í draumnum táknar nýtt ástar-
ævintýr hjá þér á næstunni, sem gæti leitt af
sér áframhaldandi náin kynni.
Kæri drauinráðningamaður.
í nótt dreymdi mig draum, sem mig mundi
langa mikið til að vita, hvað þýddi.
Mér fannst ég vera að aka í bil með kunningja
mínum. Allt í einu tók ég eftir því, að í bíln-
um var líkkista, sem mér fannst í vera lík móð-
ur þessa kunningja míns. Mér varð náttúriega
mjög illt við að sjá þetta, og fannst mér ég
fara að gráta yfir þessu. (Það skal tekið fram,
að þessi kona, sem mér fannst vera dáin, er
enn iifandi, en ég hef aldrei séð hana.) Þegar
ég fer að aðgæta kistuna nánar, tek ég eftir
því, að í staðinn fyrir að vera skreytt blómum,
eins og yfirleitt er gert, þá voru hér og þar
á stangli hálfvisnaðar smáar trjágreinar. Mér
Framhald á bls. 29.
Nýlega var
haldin mjög ó-
venjuleg tízku-
sýning í Róm.
Hún var þannig,
að allir kjólarnir,
hvort sem þeir
voru ætlaðir til
hversdags eða
spari, litu út fyr-
ir að vera gerðir
úr gömlum af-
göngum. Það eru
óhlutlægu mál-
verkin, sem hafa
ráðið svipnum á
þessari sýningu,
því að efnin eru
gerð beinlínis eft-
ir þeim. Hver
kjóll var líka sýndur við hliðina á sliku málverki, til
þess að auðveldara væri að gera sér grein fyrir skyld-
leikanum. í sumum kjólunum voru samsett óskyld efni
eins og flauel og silki. Þessari snjöllu hugmynd er hér
með komið á framfæri. Hún ætti að koma sér vel fyrir
kvenfólkið hér, þar sem kjólefnin kosta, svo að hundr-
uðum króna skiptir metrinn.
Tízkukjólar úr
tauafgöngum.
RAUSNARMENN, SKANDÍNAYAR.
Svíar hafa lagt langsamlega mest af mörkum í sjóð Sam-
einuðu þjóðanna til hjálpar þjóðum, sem skammt eru á
veg komnar efnahags- og menningarlega, og er þar auð-
vitað miðað við fólksfjölda. Hver íbúi í Svíþjóð hefur gefið
(reiknað í dollurum) 40,8 cent, en stórveldi eins og
Bandarikin eru aðeins með 23 cent á nef. England er með
15,5 og Vestur-Þýzkaland með 6,5. Noregur kvað vera
þriðja hæsta landið.
Rockefeller-
rokk
Danskur for-
stjóri og frú hans
voru gestir á
norsku háfjalla-
hóteli. Fyrsta dag-
inn báðu þau um
morgunkaffið í
rúmið, eins og
gengur. Frúin
vildi gjarnan
snyrta sig ofur-
lítið, áður en
kaffið kæmi, og
stóð því fyrir
framan spegilinn
— Blessaður, hypjaðu þig í náttjakkann, sagði
liún við mann sinn, — stúlkan kemur á hverri
stundu.
Eiginmanninum fannst þetta óþarfa pjatt, en
fór samt i jakkann.
— Flýttu þér upp í aftur, maður. — Ekki stend-
urðu hér á náttfötunum, þegar stúlkan kemur.
Forstjórinn snaraðist upp í og breiddi sængina
upp undir höku.
— Annars væri ekkert á móti því, að þú lagaðir
þig aðeins til, sagði frúin.
í því var barið að dyrum, svo að hann hætti að
greiða sér og bredddi sængina upp að eyrum.
Inn kom þjónn hótelsins með morgunkaffið á
bakka.
á náttkjólnum einum fata.
GNÍSTRAN TANNA.
Gnístið þér tönnum í svefni? Afsakið, að
við spyrjum svona dónalega. En það er
vegna þess, að bandarískur tannlæknir, dr.
Allen Brewer að nafni, segir, að það sé al-
veg nóg að tyggja svona tiu mín. að deg-
inum, og þess vegna sé alveg óþarfi að halda
áfram klukkustundum saman á nóttinni.
Þetta erfiði er allt til ónýtis, og aulc þess
eyðileggur það tennumar fyrir tímann.
Þetta eru hinir 21 árs gömlu
Rockefeller-tviburar, dansandi
á Lorry í Kaupmannahöfn.
Þangað fengu þau aö fara tvö
ein á heimleiðinni úr brúð-
kaupi bróður síns og Önnu-
Maríu frá Sogni. Þau dönsuðu
alltaf saman, systkinin, svo að
Dönunum gafst ekkert tæki-
færi til þess að kokettera við
milljónaprinsessuna. Blöðin
sögðu, að kvöldið hefði kostað
50 danskar kr. og „missan"
þættist aldrei hafa skemmt sér
eins vel — það er að segja 1
Evrópu.