Vikan - 22.12.1960, Side 3
— Mér er smám sarnan farið að þykja vœnt
um hana mömmu þína.
Endur fyrir löngu (ég lield mér sé óhætt að
segja það) kom út blað, sem nefndist Fálkinn.
Ég keypti það alltaf, en nú er það hætt að koma
út. í blaðinu voru tvær framhaldssögur, Stjörnu-
hrap eftir Patricia Fenwiek og bróðurleitin, ég
man ekki i bili eftir hvern liún er. Ég get full-
vissað þig að þessar sögur eru báðar spennandi,
þessvegna langar mig til að biðja þig að koma
með þessar sögur i blaðinu eða iáta mig vita
hvar ég get fengið þær. Þá myndi ég verða þér
þakklát. Vikan er góð, Skuggi er ágætur og
ágætt að það eru farnar að koma smásögur og
greinar eins og ura Kennedy og eins um Gyð-
ingana. Þið ættuð að koma með eitthvað svo-
leiðis oftar.
Með fyrirfram þakklæti.
S. G.
Sennilega ertu búin að fá lausn á vanda-
málinu þínu, áður en þetta svar kemur, því nú
er Fálkinn risinn úr rekkju á ný eftir langa
og þunga sjúkralegu, og væntanlega hefur
hann þá haldið áfram með framhaldssög-
urnar. Hins vegar tökum við aldrei upp sög-
ur, sem önnur íslenzk blöð eru með eða hafa
verið með, og allra sízt ef þau eru dauð, því
það væri líkrán. — Ef Fálkinn skyldi samt
ekki hafa haldið áfram með sögurnar þínar,
minnist ég þess, að Stjörnuhrap eftir Patriciu
Fenwick var í Norsk Ukeblað í fyrra um
þetta sama leyti, ef þú getur nokkurs staðar
haft upp á því.
Lyfjafræði
Kæra Vika!
Beztu þakkir fyrir allt gott. Nú langar mig
til að spyrja þig hvað maður þarf að vera gamall
til að læra að verða aðstoðarstúlka lyfjafræð-
ings og hvort maður þarf einhverja menntun.
Með beztu kveðjum.
Anna.
Eftir því, sem við höfum komizt næst, þarftu
að vera 16 ára eða þar um bil, og hafa mið-
skólapróf. Að öðru leyti vísast til viðtals við
aðstoðarstúlku lyfjafræðings, sem birtist í
41. tbl. Vikunnar á þessu ári.
„BONGÓLÓ"!
Hvað er
„BONGÓLÓ“?
MMNMMM
l-»itur»í
ELECTROLUX-UMBOÐIÐ
Laugavegi 176.
Sími 36200.
i E =* •
S f 30 S * „ n
ódýrastur
allra kæliskápa
af svipaðri stærð,
7,4 rúmfet
(210 lítra)
Haliðaskilmálar.
vucam 3