Vikan - 22.12.1960, Page 24
mouth eða sherry og sitrónusafa. Skipt í glös.
Skreyft með verjum og berjablöðum séu þau fyr-
ir hendi. Kælt. Borðað sem fyrsti réttur til mið-
degisverðar eða sem ábætisréttur og er þá
fallegl og gott að setja rjómatopp á hvert glas.
Appelsínubúðingur.
2 egg (stór), 80 gr sykur, 2Vi appelsína,
l'/2 sítróna, 4 blöð matarlím, 2*/2 dl rjómi.
Matarlímið er lagt i bieyti, brætt. Eggjarauð-
urnar þeyttar með sykrinum léttar og ljósar.
Sitrónusafanum og safanum úr annarri appel
sínunni blandað saman við ásamt fínrifnu hýði
af annarri appeisinunni. Matarlímið ksejt með
1 msk. af köldu vatni. Þegar það hyrjar að
þykkna er þeyttum rjómanum og stífþeyttum
eggjahvítunum blandað saman við. Skreytið
með appelsínubátum og rjómatoppum. Rifnu
hýði stráð yfir. Einnig er fallegt að bera
þennnan búðing fram í appelsínukörfum.
Appelsinurnar eru skornar i tvennt og hoiaðar
innan fylltar með búðingi og skreyttar á sama
hátt.
Aprikósubúðingur.
250 gr aprikósur,
sykur eftir bragði, 6
biöð matarlím, safi
úr hálfri sítrónu, 3
dl rjómi. — Rjómi,
aprikósur, makkar-
ónukökur.
Aprikósurnar eru lagðar i bleyti og soðnar
til þær eru meyrar. Nuddað i gegnum gata-
sigti. Sykur látinn eftir bragði. Kælt. Matarlímið
lagt í bleyti, brætt og kælt, sitrónusafanum
blandað saman við og þessu hrært saman við
aprikósumaukið, þegar það fer að þykkna er
þeyttum rjómanum blandað saman við, mjög
varlega annars er hætt við að búðingurinn
mærni. Látinn i mót eða skól þegar hann
byrjar að stífna. Kældur. Borinn fram i skál-
inni eða hvolft varlega á fat og skreyttur með
soðnum hvitum aprikósum, rjóma og makk-
arónukökum.
Hrísgrjónaábætir (Ris a la mande).
1 djúpur diskur hrísgrjónagrautur, eða 70
gr hrísgrjón soðin í Vi 1 af mjólk, 50 gr
sykur, 25 gr möndlur, vanilja, 2/2 dl rjómi.
Heppilegt er að nota afgang af jólagrautn-
um í þennan rétt. Sykri, söxuðum möndlum
og þeyttum rjóma er blandað saman við kald-
an grautinn. Skreytt með þeyttum rjóma og
sveskjum sé sveskjusósa borin með en rauðu
hlaupi ef höfð er saftsósa.
Saftsósa.
5 dl góð saft og vatn, 2 tesk. sléttfullar kart-
öflumjöl, vatn.
Saftin er iótin sjóða, jöfnuð með kartöflu-
mjölsjafningnum. Suðan látin koma uppi.
Sveskjusósa.
150 gr sveskjur, /2 1 vatn, 1—2 msk sykur,
V4 msk kartöflumjöl, vatn.
Sveskjurnar eru lagðar i bleyti, soðnar og
marðar í gegnum gatasigti. Látið sjóða, sykur
settur eftir bragði. Jafnað með kartöflumiöls-
jafningnum.
Sósurnar eru bornar fram volgar með köld-
um á bætisréttinum. Súkkulaðisósa er einnig
mjög góð hér með (uppskrift síðar).
Eplamarange.
'/2 1 vatn, 1 dl sykur, Vi kg epli, 3 eggja-
hvítur, l'/i dl sykur.
Eplin eru þvegin, skorin í tvennt, fræhúsin
ttekin úr. Vatn og sykur soðið saman. Eplin
hálfsoðin þar í. Raðað i eldfast mót. Kæld.
Hvíturnar eru þeyttar, sykrinum blandað
vandlega saman við. Þeytt fljótt saman tvisvar
til þrisvar. Látið yfir eplin með skeið. Bakað
ið hægan hita (150°) þar til hvítan liefur lyft
sér og er ljósbrún, um það bil 20 mín.
Borðað með þeyttum rjóma.
I staðinn fyrir epli er gott að liafa aðra
ávexti t. d. sveskjur, aprikósur o. fl.
Hulin epli eða bananar.
6—8 epli, sykur og möndlur eða kanill og
rúsínur.
Smjördeig.
4 dl hveiti, 200 gr smjörlíki, 1 dl vatn, 3
tesk. edik.
Hveitið er sáldrað, % hiuti smjörsins mulin
saman við og vætt í með vatninu og edikinu.
Flatt út i ferkantaða köku. Smjörinu skipt í
tvo þriðju hluta deigsins, sem er síðan brot-
ið i þrennt. Smjörið barið inn í deigið, lagt
saman, kælt. Endurtekið þar til smjörið er
horfið inn i deigið. Flatt út fremur þunnt.
Eplin flysjuð, fræhúsin tekin úr og fylling
sett i þess stað. Annað hvort sykur og möndl-
ur sem áður eru saxaðar eða kanel, sykur
og rúsínur. Smjördeigið er skorið í það stóra
ferhyrninga að deigið hylji eplin. Eplin sett
á miðju hverrar köku og deiginu þrýst vel að.
Raðað á plötu þannig að samskeitin snúi
niður. Penslað með eggi og sykri stráð yfir.
Bakað þar til eplin eru gegnum bökuð ca.
20 mín. (Prófið með prjóni). Borðuð heit
með þeyttum rjóma. í staðinn fyrir epli eru
bananar ágætir, þó eru þeir nuddaðir með
sítrónu áður en deiginu er vafið Utan( um.
ís með súkkulaðisósu.
4 egg, 4 msk. sykur, Vi 1 rjómi, Vi—1 tesk.
vanilja.
Súkkulaðisósa.
1 Vi msk. kakaó, 2 msk. sykur, 3 dl vatn,
30 gr súkkulaði 2—3 msk. kaffi (sterkt),
2 tesk. kartöflumjöl.
ísinn:
Eggjarauðurnar eru þeyttar með sykrinum.
Vaniljunni bætt í ásamt þeyttum rjóma og
stífþeyttum hvítum. ísmótin eru skoluð úr
köldu vatni áður en fryst er i þeim. Gott er
að hræra upp í ísnum þegar hann er að
byrja að frjósa, þá botnfellur hann síður.
Látinn ó fat eða í skál og rifnu súkkulaði stráð
yfir. Borðaður með volgri súkkulaðisóss.
Súkkulaðisósa:
Kakaó, sykur og vatn er hrært saman og
soðið i 2—3 mín. Súkkulaðinu bætt í og hitað
þar til það er bráðið. Jafnað með kartöflu-
mjöli sem hrært er út með köldu kaffinu.
Þeyttum rjóma blandað saman við rétt áður
en sósan er borin fram. (Það má sleppa rjóm-
anum).
Mótkökur og tertur
Fallegt er að baka
sykurbrauðsdeig eða
möndlutertudeig i
stjörnulöguðu móti
í einu til tveimur
lögum. Þegar kakan
er bökuð og orðin
köld er búið til ó-
vaxtahlaup úr 5 d)
af ávaxtasafa og (5 matarlímsblöðum, sem
lögð eru í bleyti, brædd og kæld og hrærð
út í safann. Látið í mótið sem áður er skolað
úr köldu vatni. Þegar hlaupið er hálfstíft er
öðrum kökubotninum hvolt yfir. Á botninn er
látinn lieyttur rjómi með ávöxtum, örlitlum
sykri og sítrónusafa. (Hafið rjómann ekki of
mikinn). Hinum botninum er siðan hvolft yfir.
Kökufatið lagt yfir og öllu snúið við. Kakan
er síðan skreytt með þeyttum rjóma og ef
til vill ávöxtum, rifnu súkkulaði o. fl. Kerti
látið í miðja kö'kuna. (Vilji hlaupið tolla í mót-
inu er stykki undið úr volgu vatni og lagt yfir
augnablik þá losnar það.
Sykurbrauðsdeig.
4 egg, 175 gr sykur, 50 gr kartöflumjöl, 50
gr hveiti, 1 tesk lyftiduft, (safi úr Vt
sítrónu).
Eggin eru þeytt mjög vel með sykrinuin.
Hveiti, kartöflumjöli, lyftidufti blandað var-
lega i ásamt sítrónusafanum, sem gefur frísk-
andi bragð. Bakað strax í velsmurðu tertu-
móti einu til tveim, einnig er fallegt að baka
deigið í hringmóti og láta ís eða þeyttan rjóma
i miðjuna þegar kakan er borin fram.
Rjómaterta með vatnsdeigi.
100 gr smjör eða
smjörlíki, 100 gr
hveiti, 1—2 msk.
vatn eða rjómi.
VATNSDEIG.
1 Vi dl vatn, 50 gr
smjör eða smjörlíki,
l'A dl hveiti, 2 egg.
Hveitið er sóldrað,
smjörið skorið i með hníf. Vætt í með vatni
eða rjóma, hnoðað fljótt saman. Iíælt. Flatt
út. Bakað í kringlóttu móti við jafnan Iiita,
neðarlega i ofninum (ca. 200°)
VatnsdeigsboIIurnar.
Vatnið er látið sjóða, smjörið látið í og
hveitið þeytt saman við. Látið sjóða þar til
deigið er laust frá slcif og potti. Deigið er
kælt nokkra stund, síðan er eggjunum hrært
í einu og einu. Sprautað eða látið með teskeið
i litlar bollur á velsmurða plötu. Bakað við
meðalhita. Það má ekki opna ofninn fyrstu
10 minúturnar. Bollurnar ciga að vera i ofn-
inum um það bil 25 min., eða þar til þær eru
gegnumbakaðar. Fallegt er að dífa bollunum
í bráðið súkkulaði áður en þær eru látnar
á kökuna.
Kremið.
2 eggjarauður, 1 msk. sykur, 1 msk. kart-
öflumjöl eða maizenamjöl, (4 1 mjólk, 2 Vi
blöð matarlím, Vi tsk. vanilja, 2 eggjahvítur,
1 msk. sherry, Vi 1 rjómi.
Eggjarauðurnar eru hrærðar með sykrinum,
kartöflumjöli eða mayzenamjöli hrært saman
við. Hitað og hrært i þar til það fer að
þykkna. Þá er matarlíminu sem áður hefur
legið i bleyti bætt í. Ivælt. Stífþeyttum hvít-
unum blandað í ósamt sherry og vanilju.
Látið á kökubotninn. Vatnsdeigsbollunum rað-
að á. Þær eru áður fylltar með rjóma eða
kremi og rjómatoppum sprautað ó milli. Síð-
ast er ávöxtum, möndlum eða hnetum stráð
yfir.
Kakan er lögð saman rétt áður en hún er
borin fram, annars er hætt við að smjördeigs-
botninn verði seigur.
Súkkulaðikaka m/möndlum,
100 gr smjörlíki, 2 bollar sykur, 1 bolli
rjómi eða mjólk, 2 msk. kakaó, 2 bollar
hveiti, 2 tesk. lyftiduft, 50 gr afhýddar,
saxaðar möndlur.
24 ViKAK