Vikan


Vikan - 22.12.1960, Page 31

Vikan - 22.12.1960, Page 31
er þessi: Hvað mundi þjóð yðar óska sér að fá í jólagjöf? Forsætisráðherra svaraði Iciftur- skjótt, eins og skotið væri af byssu: — Það er friður og ekkert annað en friður, sem þjóð mín óskar sér. En vopn er liið eina, sem tryggt getur oss þennan frið. Og þau eru dýr og erfilt að útvega nóg af þeim til nauðsynlegra þarfa. Ef við gæt- um fengið, við skulum segja, rúmt reiknað, hundrað sjötíu og fimm milijarða. dollara, skyldi land mitt og þjóð mín ábyrgjast heiminum slíkan frið, að annað eins hefði aldrei þekkzt. Engillinn var vél upp alinn og þagði, meðan ráðherránn lauk riiáli sinu. Að þvi búnu spurði hann undr- andi: — nægir virkilega ekki minni fjárhæð? Þarf í rauninni svo mikla peninga? Forsætisráðlierrann virtist hugsa sig um dálitla stund, en svaraði síð- an: — Það getur verið, að hægt væri að komast af með allmiklu lægri upphæð. En að sjálfsögðu væri það með þvi eina móti, að við hefðum fengið vitneskju um leyniáform allra annarra þjó'ða, hefðum aðgang að teikningum af nýjustu vopnum þeirra, fengjum upplýsingar um her-jj styrk þeirra og svo framvegis ... | Engillinu litli punktaði niður hjá sér nokkur atriði, þakkaði forsæt- isráðherra fyrir viðtalið og flaug aftur til himna. Svo að segja á samri stundu komu allir liinir litlu englarnir, er jóla- sveinninn hafði sent. Og allir gáfu þeir skýrslu um heimsóknir sínar til forsætisráðherra allra þjóðlanda. 'Iárin risu á höfði jólasveinsins, ]>ess vitra og reynda manns, er hann hlustaði á allar þessar frá- sagnir. Allir þessir ríkisstjórar og stjórnarherrar, hvort sem þeir köll- uðu sig ofursta, hershöfðingja, for- ingja, landsfeður ellegar hæstráð- endur, vildu aðeins peninga, pen- inga og ekkert annað en peninga, — peninga til vopnakaupa, peninga til viggirðinga, peninga til að smíða flugvélar, peninga til kafbátasmíða og peninga til kafbátavarna, — pen- inga til að varðveita friðinn og pen- inga til alls, er stefndi í ])á átt. Aðeins voru upphæðirnar mishá- ar, eftir því í hvaða landi var. Við fljótlega samlagningu allra þeirra upphæða, sem óskað var eft- ir, kom frarn, segi og skrifa, ekki óálitlegri upphæð en fjörutíu og tvær trilljónir dollara. Meir að segja austantjaldslöndin höfðu hrugðið fyrir sig raunsæi og gefið sínar fjárhæðir upp í dollurum lika. Þvert ofan i allar gildandi reglur í ríki himnanna varð jólasveinninn vondur. Og það er eiginlega allt of veikt til orða tekið, hann varð hreint band ... nú —- jæja, jæja . ■. — Allur jarðarhnötturinn er ekki svo mikils virði, sagði hann bál- reiður. — En ég skal sýna þeim þarna, þeim ])arna ... hmmmm, þeim þarna, þessuin póíitikusum, hvaða álit ég hef á þeim ... Siðan ritaði jólasveinninn nokkr ar línur á blað i flýti, reif hlaðið úr og fékk það I hendur varðstjórn- arengli þeim, er á verði stóð f svip- inn. — Taktu við þessum miða, sagði hann, og fljúgðu með hann beint til deildar hinna iðrandi syndara. En fljúgðu sjálfur, eins og fjörtán púkar elti þig, heyrirðu það. Það gengur fljótar en að fara með þessum nýju hvellhettum, sem festa sig bara I skýjunum ... Engilvörðurinn við hliðið að deild hinna iðrandi syndara varð ekki smávegis forviða, er liann hafði lesið tilkynningu jólasveinsins. En svo braut hann miðann saman, gekk inn I deildina og opnaði fyrir hljóðnemann. — Gefið hljóð andar- tak ... Allir, sem stundað hafa sprengingar og peningaskápabjófn- að i jarðlífinu, eiga þegar í stað að gefa sig fram hér fyrir utan grind- urnar. Þar fá þeir nánari fyrirmæli. Hér er um starf að ræða, piltar. AÐETNS örskammri stundu síðar flugu allmargir dularfullir hópar út úr himnaríki og héldu í átt til jarðar. Hverjum hópi stýrði for- ystuengill, sem hafði ljósblátt band um hægri handlcgg til merkis uin virðingu sina. Að baki forystuengl- inum flaug sprengivargur eða pen- ingaskápaþjófur með súrefnisflösku Aukið blæfegurð hársins . .. með hinu undraverða WHITE RAIN fegrandi Shampoo . . . þetta undraverða shampoo, sem gefur hárinu silkimjúka og blæfagra áferð. petta ilmríka WHITE RAIN shampoo . . . gerir hár yðar hæft fyrir eftirlætis hár- greiðslu yðar. petta frábæra WHITE RAIN shampoo . . . lætur æskublæ hársins njóta sín og slær töfraljóma á það. Hvítt íyrir venjulegt hár — Blátt fyrir þurrt hár — Bleikt fyrir feitt hár. WHITE RAIN shampoo-hæfir yðar hári. HEILDVERZLUNIN HEKLA H.F. Hverlisgötu 103 — Stmi 11275. undir öðrum vængnum, en suðu- tæki undir liinum. Á eftir þeim komu svo þrir eða fjórir englar mfcð tómar körfur og skjalabindi, sömuleiðis aukalykla að öllmn teg- undum peningaskápa um allan heim. Allar ratsjárstöðvar hedmsins ætl- uðu að ganga af göflunum. Á spegl- um þeirra gat að líta skugga nokkra, sem að lögun til líktust helzt súr- efnisflöskum af venjulegri gerð. Nálguðust skuggar þessir jörðu með ferföldum hraða hljóðsins. Hljóð- múrinn var með öðrum orðum löngu brotinn, áður en ein einasta flug- vél var komin á fulla ferð. Þess ber að geta, að þótt súrefnisliylkin kæmu fram á ratsjárspeglunum, sá- ust englarnir vitanlega ekki. Þeir eru andar og hafa engan efnis- likama. BÆÐI könnunar og orustuflugvél- ar hófu sig á loft af fjölmörgum flugvöllum á jörðinni. En áður en þær fengju nokkuð að gert, voru allar þær sveitir, er jólasveinninn hafði sent, komnar aftur til síns heimar. Englarnir voru þó ekki komnir heim til sín og ekki jarðnesku flug- vélarnar heldur, er verðirnir við ratsjártækin urðu aftur varir við sömu dularfullu skuggana á spegl- óskar öllum viðskiptavinum sínum nær og fjær gleðilegra jóla, árs og friðar með þökk fyrir viðskiptin á liðna árinu. HANSA h.f. VMXN 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.