Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 84

Fréttablaðið - 05.12.2009, Side 84
Gerir sörur af því Mér finnst gaman að baka sörur,“ segir Álfheiður og meinar það greini- lega. Hún lærði handtökin í Tei og kaffi þar sem hún hafði baksturinn með hönd- um í níu ár. Eftir að hún hætti þar fyrir fimm árum hefur hún bakað þær heima fyrir jólin. Ýmsir hafa komist á bragðið, kunnað vel að meta og keypt af henni kökur. Hún selur þær í kílóavís á 4.500 kílóið eða rúmlega 100 kall stykk- ið. „Margir vilja sleppa við þenn- an bakstur, finnst hann vera mikið mál, en það finnst mér hins vegar alls ekki,“ segir Álfheiður. Hún kveðst ekki viðhafa annað handbragð en almennt gerist; gerir meira að segja allt frá grunni, malar möndlurnar og sýður sýr- ópið. „Mér finnst það best þannig,“ segir hún. Mest hefur hún bakað 100 kíló af sörum fyrir jól. Það var 2007. Í ár ætlar hún bara að baka til 8. desember til að eiga hluta af aðventunni sjálf en það hafi hún aldrei leyft sér áður. - gun Mörgum finnst sörur ómissandi á jólaborðið. SÖRUR 60-70 stk. 200 g möndlur með hýði 100 g flórsykur Malið þetta saman. 100 eggjahvítur (um það bil 3 stk.) 100 g flórsykur Þeytið eggjahvíturnar og flór- sykurinn þar til það er orðið stíft. Blandið möndl- unum með flór- sykrinum saman við og hrærið með sleif. Sprautið deiginu í fallega toppa á pappírsklædda plötu og bakið á 150 gráðu hita í 15 mínútur með blæstri. KREMIÐ 3 dl sykur 1 og 1/2 dl vatn 160 g eggjarauður (um það bil 8 stk.) 400 g smjör við stofuhita 2 msk. gott kakó Hitið vatnið og sykur- inn að 121 gráðu (Ef mælir er ekki fyrir hendi er hægt að láta dropa leka í vatnsglas og ef hann verður stífur er sýrópið tilbúið.) Þeytið eggjarauðurnar og blandið heitu sýrópinu saman við og látið hrærast þar til það er orðið kalt. Þá er smjörinu og kakóinu bætt út í. Smyrjið kreminu á kökurnar með hnífi og setjið þær í frysti yfir nótt. HJÚPUNIN 4-500 g Odense dökkt hjúp súkkulaði Bræðið súkkulaðið og dýfið kökunum í það til hjúpunar. SÖRUR AÐ HÆTTI ÁLFHEIÐAR Álfheiður er að útskrifast úr Menntaskól- anum í Kópavogi hinn 18. þessa mánaðar sem matartæknir og matsveinn. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A N TO N Nammi namm! AÐ ÞAÐ ER GAMAN Álfheiður Vilhjálmsdóttir hefur áralanga þjálfun í að baka hinar bráðvinsælu smá- kökur sem kenndar eru við Söru Bernhardt, eina frægustu leikkonu í heimi í lok nítjándu aldar. Hún gerir sjálf allt frá grunni, malar möndlurnar og sýður sýrópið. Fæst í flestum matvöruverslunum Fáðu þér hollan og góðan jóladrykk. Hollur, sykurlaus og lífrænn gosdrykkur. Engiferöl OUTLET LAUGAVEG 94 • sími 552 8090 Full búð af nýjum flottum vörum á frábæru verði. Kvenfatnaður frá MC Planet, allir jakkar á 5.000 í nokkra daga. KJÓLAR, JAKKAR, TOPPAR, BOLIR BUXUR. Nýtt kortatímabil í dag laugardag 5.des. Fallegur vandaður barnafatnaður í stærðum 74–164 á ótrúlega krúttlegu verði. Heelys rúllu skór á krakka á öllum aldri á 2.990, flott jólagjöf. HLÖKKUM TIL AÐ SJÁ YKKUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.