Vikan - 23.03.1961, Side 5
Það er lágt undir loft á neðri hæðinni og hlýlegt og góðar veigar
gera það enn hlýlegra.
Við barinn næst innganginum er þetta skemmtilega horn, búið lágum húsgögn-
um og japönskum skreytingum.
Kokkarnir við störf sín í eldhúsinu. Þeir verða
að hafa mörg járn í eldinum og vinna hratt, þeg-
ar fullt er af gestum.
<3 Listin er löng, en lífið er stutt, og þess vegna er
gott að fá sér hressingu í góðum hópi. Hér eru
frá vinstri: Valtýr Pétursson, listmálari, Sigurð-
ur Sigurðsson, listmálari og Hjörleifur Sigurðsson
— líka listmálari.
Blómaskálinn er ein fallegasta vistarvera Klúbbs- [>
ins og líkist japönsku tehúsi.
ViS höfum brugðið okkur i Klúbb-
inn, hinn nýjasta af öllum nýjum
skemmtistöðum í Reykjavík, og
staldrað þar við eina kvöldstund.
Við hittum að máli einn af forráða-
mönnum staðarins, Birgi Árnason,
og hann lét svo um mælt, að starf-
semin gengi vel og þeir þyrftu ekki
að kvarta um, að staðurinn væri
ekki sóttur.
Skipulagning Klúbbsins er með
nýju sniði, sem hefur talsvert rutt
sér til rúms í Evrópu, en megin-
fyrirmyndirnar voru þó veitinga-
og skemmtistaðirnir Syv Nationer
og Syv Smá Hjem í Kaupmanna-
höfn. Það er danskur maður, sem
talinn er höfundur þessa skipulags,
og þó er hann ekki arkítekt. Hins
vegar er hann svo frægur skipu-
leggjari, að enginn arkítekt i Dan-
mörku er talinn hafa tekjur á borð
við hann, enda vinnur hann mikið
(Framhald á bls. 35).
Þegar gnótt er góðra kvenkosta, er eðli-
legt, að þvælzt geti fyrir ungum manni,
hvar hann eigi að bera niður.
<] Þetta er í veiðikofanum, en sumir kalla
það Skinnastað. Gluggatjöldin eru úr
samanbundnum kálfsskinnum og Disley
Jones átti hugmyndina
Disley Jones, enski leiktjaldamálarinn, sem skreytti [>
Klúbbinn. Á bak við hann er frumleg og falleg vegg-
skreyting úr samlímdum litmyndum.
<3 Að lokinni máltíð í Blómaskálanum: Jón Leifs,
raular s t e f úr laginu, sem hljómsveitin er að
leika. Með honum er kona hans, Þorbjörg Leifs.
vikan 5