Vikan


Vikan - 23.03.1961, Side 17

Vikan - 23.03.1961, Side 17
|5murt brnuð Löng brauð. llöng brauö eru annaChvort höfO pylsubrauO, sem skorin eru eftir endilöngu eöa hveitibrauö (mót- brauð) sem einnig er skoriö eftir endilöngu í sneiðar og síðan í þá lengd, sem ákjósanleg er. Mismun- andi álegg 4—6 tegundir t. d. egg, síld, rækjur, kjöt, salöt, ostur, ávextir, og salatblöð ásamt steinselju eöa karsa, þegar það er fáanlegt. Fallegt er aö stinga pinna i brauð- sneiðina. Á því brauði sem myndin sýnir er reykt síld, sítrónusneið, tómatbátur, upprúlluð skeinka, sem mayonnese er sprautaö yfir, sveskja, ostur, ananas og mayonnessalat. Oft- ast er miðað við eina sneið á mann. Sneiðunum er raðaö á fat. Ef fáir eru, er líka ágætt aö setja þær á diskana. Þríhyrndar sneiðar. 1 staðinn fyrir löng brauö er til- breyting að skera brauðiö i þríhyrn- inga. Þá er fallegast að lengsta hlið- in sé hálfhringur, einnig er hægt aÖ hafa sneiðarnar ferkantaðar eða kringlóttar. Álegg er þaö sama og á löngum brauðum, en færri tegundir, til dæmis upprúllaður, reyktur lax með eggjabáti, ostasneið eða rifinn ostur með olivum og nautstunga með aspas. Miðað er viö tvær sneiöar á mann af þessu brauði. $murðdr bruuðsneiður Snittur Egg og sfld á rúgbrauði. Eggin eru söxuð, rauður og hvitur fyrir sig lagt I rööum með síldinni á brauðsneiðina. Fallegt er aö klippa dill, graslauk eöa steinselju yfir. Kavíar m/hrárri eggjarauðu. Kavíar er látinn í hring á kringlótta hveiti- brauðssneið eða kex (þunnt ósætt). 1 miðjuna er látin hrá eggjarauða og radisusneiðar i kring þegar radísur fást. Kavíar er einnig fallegt að setja í jafnt lag ofan á brauðsneiðina og skreyta meö hálfri sítrónusneið. Lifrarkæfa m/sveppum. Lifrarkæfunni er sprautað á rúgbrauö eöa hrökkbrauð. Sveppum raðað á. 1 staðinn fyrir þá er ágætt að hafa epli eða rauðrófur. Steik m/gúrkusalati. Fallegt er að láta kjötsneiðarnar rísa og siðan er gúrkusalat ásamt sveskjum, ferskjum, eða öör- um bragðgóðum ávöxtum haft meö. (Bezt með rúgbrauði). Skeinka (reykt, soðið svínakjöt). Er oftast haft með hrærðum eggjum, er þá fallegt að rúlla kjötsneiðinni I kramarhús utan um hræröu eggin. Prjónar nr. 2V* og 14 cm langur rennilás. Mynztur: 1. umf., 2. umf., 3. umf. og 4. umf. prjónast með gráu garni og sléttu prjóni (slétt frá réttu og brugðið frá röngu), byrjið með sléttri umf. frá réttu. 5. umf., prj. með hvitu garni og sléttprjóni. 6. umf., prj. með rauðu garni þannig: * 1 1. brugðin, 1 1. tekin óprjón- uð fram af prjóninum *, endurtakið frá * til * umf. á enda. 7. umf., 8. umf., 9. umf. og 10. umf., prjónast með rauðu garni og sléttprjóni. 11. nmf. prjónast með sléttprjóni og hvitu garni. 12. umf. prjónast með gráu garni á sama hátt og 6. umf. Endurtakið nú þessar umferðir frá 1. umf. og myndið þannig mynztrið. 16 lykkjur prjónaðar með mynztri = 5 cm. Framstykki: Fitjið upp 84 1. með rauðu garni og prjónið 2% cm brugðning, 1 1. sl. og 1 1. br. Prjónið 1 umferð brugðna og aukið út 18 1. með jöfnu millibili, Prjónið siðan mynztur. Þegar stykkið mælist 18 cm, er fellt af fyrir handveg- um, þannig að felldar eru af i byrjun prjóns, báðum megin, 5 1. — 3 1. — 2 1. — 11 — 11. Þegar handvegur mælist 8 cm, er aukin út 1 1. hvorum megin, í 7. hverri umferð, 2 sinnum. Þegar stykkið mælist 27 cm frá uppfitjun, eru 12 1. fyrir miðju felldar af fyrir hálslíningu. Nú er önnur hliðin prjónuð fyrst og tekið úr hálsmálsmegin 3 1. — 2 1. — 11. — 1 1. frá réttu. Þegar handvegur mælist 23 cm, er fellt af fyrir öxlum 4x7 lykkjur. Bakstykki: Fitjið upp 80 1 með rauðu garni (Framhald á bls. 29). Peysa Hér kemur uppskrift af fallegri peysu á 2— 4 ára snáða. Efni: 100 gr rautt og 50 gr grátt 4 þráða ullargarn. Dálitið af hvitu garni, af sama grófleika. Sjálfsagt er að nota afganga i litum, sem fara vel saman, séu þeir til. Harðsoðið egg m/rækjum og mayonnese. Harðsoðin egg eru skorin I tvennt og látin á brauðsneið. Gott er að hafa salatblað undir, en annars er mayonnese ásamt rækjunum lát- inn yfir eggin. May- onnesinn þarf að vera vel kryddaður. Gulrótasalat. Gulræturnar eru rifnar, bragðbættar með sitrónusafa, sykri og ef til vill þeyttum rjóma. Skreytt með sítrónusneið. Smurostur m/eplum. Smurosti er spraut- að á kex, eplaskífum raðað ofan á. Bananar m/ribsberjahlaupi. Bananasneiðum er raðað á kringlótta kexköku. Ribsberja- hlaup eða kokkteilber látið í miðjuna.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.